„Hvarflaði aldrei að okkur að börnunum hefði verið stolið“

Ingunn Unnsteins­dóttir Kristensen, sem var ættleidd frá Sri Lanka árið 1985, segir að margt bendi til að hún sé fórnar­lamb mansals. Foreldrar hennar segja tilhugsunina um að hafa óafvitandi tekið þátt í mansali hryllilega, aldrei hafi hvarflað að þeim að börnunum hefði verið stolið. Þau vilja að yfirvöld skipi rann­sóknarnefnd sem velti öllum steinum við.

Ingunn Unnsteinsdóttir Kristensen fékk á dögunum upplýsingar sem benda til þess að hún sé fórnarlamb mansals. Lilja Kristensen og Unnsteinn Jóhannsson, foreldrar Ingunnar segja að svo virðist sem málið hafi á sínum tíma verið þaggað niður.
Ingunn Unn­steins­dóttir Kristen­sen fékk á dög­unum upp­lýs­ingar sem benda til þess að hún sé fórn­ar­lamb mansals. Lilja Kristen­sen og Unn­steinn Jóhanns­son, for­eldrar Ingunnar segja að svo virð­ist sem málið hafi á sínum tíma verið þaggað niður. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Glæpirnir sem voru framdir snerta marga Íslendinga því um 80 börn voru ættleidd frá Sri Lanka á þessum tíma og þau eiga fjöl­skyldur og vinafólk sem er í sárum vegna málsins,“ segir Ingunn Unnsteins­dóttir Kristensen um ættleiðingar á börnum frá Sri Lanka á níunda áratug síðustu aldar, sem fjallað hefur verið um að undan­förnu en nokkur þeirra hafa komist að því og greint frá í fjöl­miðlum að ættleiðinga­pappírar þeirra séu falsaðir. 

Ingunn, sem nýlega lauk doktors­prófi í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og tók í nóvember við sem forstöðu­kona Opna háskólans við sama skóla, féllst á að segja sögu sína. Hún segist ekki hafa haft þörf fyrir að leita uppruna síns þótt hún skilji mætavel að fólk geri það. Hún hafi farið til Sri Lanka árið 2015 og fyrir tilviljun komist að því að ættleiðinga­pappírar hennar væru falsaðir. 

Fyrir nokkrum dögum fékk hún upplýsingar sem benda til …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinunn Grímsdóttir skrifaði
    Þau vilja að yf­ir­völd skipi rann­sókn­ar­nefnd sem velti öll­um Stein­um við enn ekki hvad
    0
  • SO
    Sigurður Oddgeirsson skrifaði
    Mikið hefði verið gaman að fá meira að vita um drenginn (soninn) í þessari umfjöllun.
    1
  • Matthildur Jóhannsdóttir skrifaði
    DNA próf hjá 23 and me. Það getur þrengt hringinn. Og fundið 50km radíus hérað. (Ég veit núna að forfaðir minn var ekki baski. Hann var frá sveitinni norður af Manchester.)
    Þegar héraðið er fundið er að tala við skattinn um stúlkur fæddar á sama ári en hafa aldrei skilað skattaskýslu, en skráðar lifandi. Ráða mann í að fara á síðasta heimilisfang. 4 á dag.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár