Kínverjar teygja sig í vínið

Þeir sem hafa á liðnum árum ferð­ast um Bordeaux og nálæg svæði í Frakk­landi hafa séð þar vín­bú­garða í hund­raða­tali þar sem nöfnin eru Chateau hitt eða þetta. En núna má líka sjá á búgörðum, nöfn sem minna kannski frekar á kín­verska veit­inga­staði.

Kín­verskir ferða­menn, iðu­lega með fullar hendur fjár, hafa á síð­ustu árum orðið æ meira áber­andi í stór­borgum Evrópu. Tölur sýna að Kín­verjum sem ferð­ast til Vest­ur­landa hefur fjölgað mjög á síð­ustu árum. Ástæðan fyrir þess­ari miklu fjölgun er bættur efna­hagur almenn­ings í land­inu og þar er orðin til fjöl­menn milli­stétt sem hefur mikið á milli hand­anna. Kín­versku ferða­menn­irnir fara iðu­lega um í stórum hópum, þeir fylla litlar sér­versl­anir og kaupa dýra merkja­vöru, fatnað, úr, skart­gripi og snyrti­vörur.

Höfundur þessa pistils var fyrir skömmu á ferð í París og í hinni þekktu stór­verslun Galeries Lafayette voru Kín­verjar mjög áber­andi í hópi við­skipta­vina. Í versl­un­inni eru heims­þekkt fyr­ir­tæki, Gucci, Yves Saint Laurent, Chanel og fleiri slík, með sér­stakar deildir. Pistla­höf­undur veitti því athygli að við deildir tísku­fyr­ir­tækj­anna voru biðraðir, og hleypt inn í hollum, meiri­hlut­inn Kín­verjar.

Ekki bara úr og töskur

En Kín­verjar eru ekki bara að kaupa úr og töskur til að taka með sér heim. Þeir hafa á allra síð­ustu árum keypt mörg stór fyr­ir­tæki, og hluta fyr­ir­tækja, á Vest­ur­löndum og seil­ast þannig víða til áhrifa. Franska dag­blaðið Le Monde birti fyrir skömmu lista yfir frönsk fyr­ir­tæki sem Kín­verjar hafa fjár­fest í að und­an­förnu og þar kennir margra grasa. Kín­verjar eiga til að mynda rétt tæpan helm­ing, 49.99 pró­sent, í flug­stöð­inni í Toulouse (um hana fóru 10 millj­ónir manna í fyrra). Tölvu­fyr­ir­tækið Linxens keyptu Kín­verjar fyrr á þessu ári, þeir eiga mat­væla­fyr­ir­tækið St-Hubert, umbúða­fyr­ir­tækið Axilone og tvær stórar hót­el­keðjur. Þeir eiga enn­fremur 14 pró­senta hlut í bíla­fram­leið­and­anum PSA Renault Citröen Peugeot, sem eftir fyr­ir­hug­aða sam­ein­ingu við Fiat og Chrysler verður fjórði stærsti bíla­fram­leið­andi heims. Knatt­spyrnu­fé­lagið Sochaux-Mont­bé­li­ard (sem leikur í 2. deild) er að fullu í eigu Kínverja og svona mætti áfram telja.

Landakaup

Í áður­nefndri umfjöllun Le Monde kemur fram að kín­verskt fyr­ir­tæki eigi um það bil 3 þús­und hekt­ara rækt­un­ar­lands í Suður- og Mið- Frakk­landi. Það er svo sem ekki ýkja stórt land­svæði enda virð­ast Frakkar ekki hafa miklar áhyggjur af þessum landa­kaupum. Þessir 3 þús­und hekt­arar eru hefð­bundið land­bún­að­ar­land þar sem einkum er ræktað naut­gripa­fóður. Það eru hins­vegar ann­ars konar jarða­kaup sem vakið hafa athygli og umræður í Frakk­landi.

Kínverjar hafa keypt nær 200 franska vínbúgarða

Vín­bónd­inn Loic Grassin seldi fyrir nokkru búgarð sinn á Medoc svæð­inu skammt frá Bordeaux. Afi Grassin hafði keypt búgarð­inn sem er alda­gam­all, og hefur ætíð heitið Chateau Senilhac árið 1938.

[adspot]Kaup­end­urnir voru kín­verskir og mikil var undrun Loic Grassin þegar hann sá að komið var nýtt nafn á búgarð­inn. Í stað nafn­skilt­is­ins við þjóð­veg­inn með nafn­inu Chateau Senilhac var nú komið annað skilti við veg­inn „Tíbeska anti­lópan“. Loic Grassin sagð­ist i við­tali hafa þurft að lesa þrisvar á skiltið til að trúa sínum eigin augum. „Ég var satt að segja ekki hrif­inn, hef ekk­ert á móti þess­ari dýra­teg­und en að skíra búgarð þessu nafni, hver er eig­in­lega mein­ingin með því?“

Rit­höf­und­ur­inn Philippe Sollers, sem einnig er þekktur vín­dóm­ari, skrif­aði borg­ar­stjór­anum í Bordeaux opið bréf. Þar mót­mælti hann því að skyndi­lega væri hægt að breyta um nafn á alda­gömlum búgörðum, bara si svona. „Ég er fæddur og upp­al­inn í Bordeaux og get full­yrt að ég hafi aldrei séð tíbeska anti­lópu og ekki heldur keisarakan­ínu. Er ekki hægt að stöðva þetta og láta hin alda­gömlu nöfn halda sér“ spyr Philippe Sollers í bréf­inu til borg­ar­stjór­ans.

Af hverju þessi nafnabreyting

Jean -Philippe Beja, franskur háskóla­pró­fessor sér­fróður um kín­versk mál­efni, sagði i við­tali við franskt dag­blað að með því að skíra búgarð­ana áður­nefndum dýra­nöfnum og fleiri slíkum væri ætl­unin að tengja vínin við Kína. Um það bil 80 pró­sent þess víns sem fram­leitt er á búgörðum í eigu Kínverja eru flutt til Kína og selt þar. ,,Ég held hins­vegar að það að skíra búgarð­ana, og þar með vínið, þessum dýra­nöfnum hafi þver­öfug áhrif. Kín­verjar eru spenntir fyrir því sem erlent er, ekki síst franskt“ sagði franski pró­fess­or­inn.

Sumir hafa sett gömlu skiltin upp aftur

Sú gagn­rýni sem fram hefur komið á nafna­breyt­ingar á frönsku vín­bú­görð­unum hefur ekki farið fram­hjá kín­versku eig­end­unum. Sumir þeirra, sem höfðu breytt um nafn á búgörð­unum hafa fjar­lægt „nýju“ skiltin og sett þau gömlu upp aftur.

Skiptar skoðanir um kaup Kínverja

Meðal Frakka eru skiptar skoð­anir á kaupum Kínverja á frönskum vín­bú­görðum. Sumum þykir það jaðra við land­ráð að selja Kín­verjum, aðrir segja það sjálf­sagðan hlut. Allir eru þó sam­mála um að mik­il­væg­ast sé að orð­spor franskra vína, ekki síst Bordeaux, bíði ekki hnekki. Ein ástæða þess að franskir vín­bændur ákveða að selja búgarða sína í stað þess að láta eign­ina ganga til erf­ingj­anna eru háir erfða­fjár­skattar. Frönsk stjórn­völd hafa margoft verið hvött til að breyta regl­unum varð­andi erfða­fjár­skatt en fram til þessa hefur það ekki gerst. Á Bordeaux svæð­inu eru um það bil 6 þús­und vín­bú­garðar, þeir um það bil 200 sem nú eru í eigu Kínverja eru því rétt rúm 3 pró­sent heild­ar­fjöld­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár