Topp 10 - Hver er mesta íþróttaþjóð í heimi?

Íþróttir spila stórt hlut­verk í dag­legu lífi fólks, og sumar þjóðir hafa náð ótrú­legum árangri í hinum fjöl­breyti­leg­ustu íþróttum. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kaf­aði ofan í íþrótta­sög­una og svar­aði spurn­ing­unni stóru; hver er mesta íþrótta­þjóð í heimi þegar allt er tekið með í reikn­ing­inn?

10. Suður-Kórea


Milli stór­veld­anna Kína og Japan liggur Kóreu­skagi og þar er hið eig­in­lega íþrótta­stór­veldi Asíu. Með „ein­ungis“ 50 millj­ónir íbúa hafa þeir náð árangri í greinum sem Asíu­þjóðir eru ekki sér­lega þekktar fyrir. Knatt­spyrnu­liðið þeirra hefur kom­ist á öll heims­meist­ara­mót í 30 ár og einu sinni haldið mótið, árið 2002 ásamt Japan. Þá komust þeir í und­an­úr­slit. Þeir eiga lang­sterkasta hand­knatt­leiks­lands­lið Asíu og náðu t.d. silfri á ólymp­íu­leik­unum árið 1988, á heima­velli í Seoul. Árangur þeirra á ólymp­íu­leikum er frá­bær og yfir­leitt eru þeir meðal 10 sig­ur­sæl­ustu þjóð­anna. Þeir hafa verið sig­ur­sælir í bar­daga­í­þróttum á borð við judó, taekwondo og glímu og einnig í bog­fimi, hafna­bolta og skauta­hlaupi. Næstu vetr­ar­ólymp­íu­leikar verða haldnir í Pyeongchang í Suður Kóreu.

9. Bandaríkin


Banda­ríkin telja um 320 millj­ónir og eru rík­asta þjóð heims. Vita­skuld skara þeir fram úr en það verður að segj­ast að yfir­burð­irnir eru svaka­legir. Þeir eiga 1072 gull­verð­laun á ólymp­íu­leik­unum og 2681 medal­íur alls, aðrir eru skildir eftir í ryk­inu. Yfir­burð­irnir eru mestir í frjálsum íþróttum og sundi. Á vetr­ar­leik­unum skara þeir mest frammúr á list­skautum. Þeir hafa haldið leik­ana átta sinnum, oftar en nokkrir aðrir. Þeir hafa yfir­burði í körfuknatt­leik, tennis, golfi, hnefa­leikum og mörgu öðru. Þeir eiga sínar eigin íþróttir sem velta millj­örðum þó að engir aðrir keppi í þeim. Má þar nefna amer­ískan ruðn­ing, NASCAR og fjöl­bragða­glímu. Banda­ríkja­menn þríf­ast á súper­stjörnum eins og Michael Jordan, Mike Tyson, Carl Lewis, Williams systrum og Tiger Woods. Árangur Banda­ríkja­manna er að miklu leyti öfl­ugu íþrótta­starfi háskól­anna að þakka. Oft er áhugi almenn­ings meiri á því en á atvinnu­mennsk­unni.

[caption id="attachment_25336" align="alignnone" width="800"] Draumaliðið, með Michael Jordan í broddi fylk­ingar.[/caption]

8. Króatía


Króatía er ein­ungis 24 ára gam­alt land með rúm­lega 4 millj­ónir íbúa og ekki háþró­aðan efna­hag. Engu að síður hafa þeir náð ótrú­legum árangri í íþróttum, þá sér­stak­lega liða­í­þróttum. Körfuknatt­leiksliðið þeirra hefur unnið silfur og brons á stór­mótum. Frægasta liðið þeirra inni­hélt m.a. Drazen Petrovic og Toni Kukoc sem kepptu úrslita­leik­inn við draumalið Banda­ríkj­anna á ÓL 1992. Knatt­spyrnu­lið þeirra náði bronsi á HM 1998, lið sem inni­hélt t.a.m. Davor Suker og Zvonimir Boban. Hanknatt­leiksliðið þeirra hafa samt risið hæst. Unnið tvö gull á ólymp­íu­leikum og einn heims­meist­ara­titil. Ivano Balic var á tíma­bili besti hand­knatt­leiks­maður ver­aldar. Sund­knatt­leiksliðið þeirra er einnig frammúr­skar­andi. Af ein­stak­lings­í­þrótta­mönnum má helst nefna skíða­fólkið og sér­stak­lega fjór­faldan ólymp­íu­meist­ara í alpa­greinum kvenna, Janicu Kostelic.

7. Noregur


Það er ekki til sú þjóð sem elskar vetr­ar­í­þróttir meira en Norðmenn gera. Þeir eiga líka flest verð­laun af öllum á vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum, 329 og þar af 118 gull. Þetta er í raun ótrú­legt miðað við að Norðmenn eru ekki nema rúm­lega fimm millj­ónir. Norðmenn eiga þrjá mest verð­laun­uðu íþrótta­menn­ina á vetr­ar­ólymp­íu­leikum, skíða­göngu­fólkið Björn Dæhlie og Marit Björgen og svo skíða­skot­fimi­mann­inn Ole Einar Björnda­len. Tvisvar hafa þeir haldið leik­ana, í Osló árið 1952 og Lil­lehammer árið 1994. Norsk kvenna­lið hafa náð góðum árangri í gegnum tíð­ina. Bæði knatt­spyrnu og hand­knatt­leiksliðið hafa unnið heims, evr­ópu og ólymp­íutitla. Hand­knatt­leiksliðið hefur haft algera yfir­burði í nokkuð mörg ár núna undir stjórn Þóris Her­geirs­sonar. Svo eiga Norðmenn Magnus Carlsen, stór­meist­ara og undra­barn.

6. Spánn


Fyrir um 15 árum síðan hefðu Spán­verjar tæp­lega kom­ist á þennan lista. Árangur þeirra á ólymp­íu­leikum er ekk­ert til að monta sig af (sér­stak­lega ekki vetr­ar­leik­unum). Knatt­spyrnu­liðið þeirra var aðal­lega þekkt fyrir að standa ekki undir vænt­ingum og önnur lið varla á kort­inu. Síðan hafa þeir sprungið út. Knatt­spyrnu­liðið sem vann þrjú stór­mót í röð er senni­lega það besta í sög­unni. Körfuknatt­leiksliðið hefur raðað inn verð­launum og er það næst besta í heimi. Hand­knatt­leiksliðið hefur líka skipað sér í sess með þeim bestu og unnið tvo heims­meist­aratitla. Auk þess hefur Fernando Alonso unnið tvo heims­meist­aratitla í Formúlu 1. Spán­verjar hafa lengi verið ein sterkasta hjól­reiða­þjóð heims. Miguel Indurain vann t.a.m. fimm Tour de France mót í röð á tíunda ára­tugnum. Þeir eru sterkir í tennis og lang­sterkasta golf­þjóðin utan hins ensku­mæl­andi heims.

5. Sovétríkin


Sov­ét­ríkin komu út úr ein­angrun eftir seinni heim­styrj­öld­ina og brut­ust fram á sjón­ar­svið íþrótt­anna með hvelli. Þeir urðu öfl­ug­asta íþrótta­ríki heims í 40 ár, eða þangað til ríkið lagð­ist af árið 1991. Rússar hafa ekki náð að leika eftir afrek Sov­ét­ríkj­anna og í raun fjar­lægj­ast þeir þau stöðugt. Á þeim 18 ólymp­íu­leikum sem Sov­ét­menn kepptu á, urðu þeir sig­ur­sæl­astir á 14. Þeir höfðu mikla yfir­burði í fim­leikum, lyft­ingum, glímu, blaki og fleiru. Eitt helsta stolt Sov­ét­manna var íshokkíliðið þeirra sem vann flest stór­mót. Íþróttaun­d­rið var þræl­skipu­lagt af stjórn­völdum og afrekin notuð í póli­tískum til­gangi. Íþrótta­menn­irnir voru ekki hetjur í sjálfu sér heldur hetjur Sov­ét­ríkj­anna og not­aðar í áróð­urs­skyni. Margar viður­eignir þeirra við Banda­ríkja­menn urðu hluti af kalda stríð­inu sjálfu. Má þar nefna úrslita­leiki í körfuknatt­leik (1972) og íshokkí (1980) á ólymp­íu­leikum og stór­meist­ara­ein­vígið í Reykja­vík.

4. Ástralía


Í þessu risa­vaxna landi búa ein­ungis rúm­lega 20 millj­ónir en sagt er að þjóðin sé íþróttaóð. Þeir hafa náð merki­lega góðum árangri á Ólymp­íu­leikum. Sér­stak­lega í sundi þar sem ein­ungis Banda­ríkja­menn hafa unnið til fleiri verð­launa. Fræg­astir voru sund­kapp­arnir Murray Rose og Ian Thorpe sem skáru fram úr í þau tvö skipti sem Ástralir hafa haldið leik­ana. Rose í Melbourne árið 1956 og Thorpe í Sydney árið 2000. Einnig eru Ástralir sterkir í frjálsum íþróttum, róðri, sigl­ingum og hjól­reiðum. Þeir eru lang­sterkasta krikket­þjóð heims og hafa unnið 5 af 11 heims­meist­ara­mótum. Þeir hafa einnig unnið tvo heims­meist­aratitla í ruðn­ingi. Ofan á þetta allt er golf­menn­ingin mjög sterk í land­inu. Kylfingar á borð við Adam Scott, Karrie Webb og hvíti hákarl­inn sjálfur Greg Norman koma þaðan.

3. Svíþjóð


Fyr­ir­mynd­ar­ríkið Svíþjóð er með heil­brigðan lífstíl og íþróttir á heil­anum. Svíþjóð er í sjö­unda sæti yfir sig­ur­sæl­ustu þjóð­irnar á ólymp­íu­leik­unum sem er stór­merki­legt í ljósi þess að Svíar eru ekki nema tæp­lega tíu millj­ónir. Knatt­spyrnu­liðið þeirra hefur náð silfri og bronsi á heims­meist­ara­móti, hand­knatt­leiksliðið hefur unnið fjöl­mörg heims- og evr­ópu­meist­ara­mót og íshokkíliðið þeirra hefur unnið níu heims­meist­aratitla. Þeir eru heldur engir aukvisar í ein­stak­lings­í­þróttum. Björn Borg er besti tennis­leik­maður allra tíma, Ingemar Stenmark besti alpa­greina­mað­ur­inn og Annika Sör­en­stem besti kven­kylfing­ur­inn. Svíar hafa meira að segja átt þunga­vigtar heims­meist­ara í hnefa­leikum, Ingemar „Þórs­hamar“ Johans­son.

2. Jamaíka


Þetta þriggja milljón manna þriðja-heims eyríki hefur heldur betur sett svip sinn á heim íþrótt­anna. Fræg­astir eru Jamaíku­menn fyrir sprett­hlaupara sína. Þeir eiga sam­tals 67 ólymp­íu­medal­íur og 66 af þeim hafa komið úr sprett­hlaupi. Af körlum má nefna einn besta íþrótta­mann heims Usain Bolt, sem og Asafa Powell og Yohan Blake. Af konum eru merkastar Merlene Ottey og Shelly-Ann Fraser-Pryce. Jamaísku hlaupararnir hafa haft algera yfir­burði á tveimur sein­ustu leikum. Jamaíku­menn hafa tvisvar orðið heims­meist­arar í krikket (í liði Vestur-Indía) og þeir hafa átt góða körfuknatt­leiks­menn eins og Patrick Ewing og Andre Drummond. Frægasta liðið þeirra er þó án nokk­urs vafa bobbs­leð­aliðið þeirra sem komst á vetr­ar­ólymp­íu­leik­ana í Calgary 1988........og svo fimm sinnum síðan þá.

Draumaliðið, með Michael Jordan í broddi fylkingar.
Draumaliðið, með Michael Jordan í broddi fylk­ingar.

[caption id="attachment_25337" align="alignnone" width="620"] Usain Bolt, sprett­harð­asti maður sög­unnar. Mynd: EPA.[/caption]

1. Finnland


Þessi fimm milljón manna þjóð er þekkt­ust fyrir sauna­böð og þungt skap en er einnig fremsta íþrótta­þjóð heims. Fólk á það til að líta fram­hjá Finnum vegna þess hversu afleitt knatt­spyrnu­liðið þeirra er en Finnar skara fram úr í mörgu öðru. Þeir eru sterkasta kappakst­urs­þjóð heims. Þeir eiga fjóra heims­meist­aratitla í Formúlu 1 og 14 í rallý. Mika Hakkinen og Tommi Makinen eru stór­stjörnur. Tvisvar hefur íshokkílands­lið þeirra unnið heims­meist­ara­titil. Árangur þeirra á ólymp­íu­leik­unum er aðdá­una­verður, sér­stak­lega í frjálsum íþróttum. Þar eiga þeir 48 gull og 114 medal­íur alls. Einungis Banda­ríkin, Sov­ét­ríkin og Bretland hafa halað inn fleiri medal­íum. Lang­hlaupararnir (hinir fljúg­andi Finnar) Paavo Nurmi, Ville Ritola og Lasse Viren eiga stóran þátt í þessum árangri. Árang­ur­inn á vetr­ar­leik­unum er líka góður, sér­stak­lega í skíða­stökki og skíða­göngu.

Usain Bolt, sprettharðasti maður sögunnar. Mynd: EPA.
Usain Bolt, sprett­harð­asti maður sög­unnar. Mynd: EPA.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár