Samfylkingin hafnar einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu samkvæmt nýrri ályktun

Kynntir voru fram­boðs­listar Sam­fylk­ing­ar­innar og ályktun flokks­stjórn­ar­fundar flokks­ins birt í dag föstu­dag­inn 6. októ­ber.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Sam­fylk­ingin hafnar einka­væð­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins og leggur höf­uð­á­herslu á að bæta heil­brigð­is­þjón­ustu í opin­berri eigu. Þetta kom fram í

ályktun flokks­stjórn­ar­fundar Sam­fylk­ing­ar­innar sem fram fór

föstu­dag­inn 6. októ­ber á Hótel Natura.

Á kom­andi kjör­tíma­bili leggur Sam­fylk­ingin meg­in­á­herslu á nokkur grund­vall­ar­at­riði. Í fyrsta lagi leggur flokk­ur­inn áherslu á betri lífs­kjör og auk­inn jöfn­uðu. Þrátt fyrir efna­hags­legan upp­gang þurfi margir í röðum öryrkja, eldri borg­ara, sjúk­linga og barna­fólks að ótt­ast um afkomu sínu um hver mán­aða­mót.

[adspot]

Lofa tvöfallt hærri barnabótum

Segir í álykt­un­inni að lág­launa­fólk og leigj­endur séu fastir í fátækt­ar­gildru með þeim afleið­ingum að mörg börn búa við fátækt og skort. Ungt fólk kom­ist ekki úr for­eldra­húsum. Jafnfram segir að næsta rík­is­stjórn verði að taka afdrifa­rík skref til þess að bæta kjör þessa fólks.

Þau ætla að auka veru­lega stuðn­ing við barna­fjöl­skyldur með tvö­falt hærri barna­bótum og auknum hús­næð­is­stuðn­ingi. Þau vilja s

tuðla að bygg­ingu þús­unda leigu­í­búða á vegum félaga sem starfa án hagn­að­ar­sjón­ar­miða, f

æra skatta­byrði frá milli- og lág­tekju­fólki til þeirra sem hana geta borið, t

ryggja að þjóðin fái rétt­látan arð af sam­eig­in­legum auð­lindum og b

æta lífs­gæði aldr­aðra og öryrkja, hækkum líf­eyri og drögum veru­lega úr tekju­skerð­ingu líf­eyris.

Stórauka framlög til heilbrigðisþjónustu, vegagerðar og löggæslu

Í öðru lagi segir í álykt­un­inni að flokk­ur­inn ætli að standa við stóru orðin í heil­brigð­is­málum.

Stór­auknum fram­lögum hafi verið lofað til heil­brigð­is­þjón­ustu, vega­gerðar og lög­gæslu í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu en um 86 þús­und manns skrif­uðu undir áskorun um að end­ur­reisa heil­brigð­is­kerfið. Frá­far­andi stjórn­ar­flokkar hafi lofað að setja þessi mál í algjöran for­gang en ekk­ert hafi verið gert með þennan vilja þjóð­ar­innar.

Þau vilja einnig lækka heil­brigðis­kostnað fólks veru­lega og auð­velda aðgengi að sál­fræði­þjón­ustu. Og ráð­ast í átak í geð­heil­brigð­is­málum og heilsu­efl­ingu almennt.

Tala um sókn í menntamálum

Í þriðja lagi er fjallað um sókn í mennta­málum. Þá segir að menntun sé lyk­ill­inn að auk­inni verð­mæta­sköpun og betri lífs­kjörum. Íslend­ingar standi í and­dyri tækni­bylt­ingar þar sem starfs­hættir eiga eftir að breyt­ast veru­lega. Miklar breyt­ingar verði á vinnu­mark­aði og skól­arnir þurfa að búa nem­endur undir þær með því að leggja áherslu á grunn­þætti á borð við félags­færni, sköpun og gagn­rýna hugsun.

Þau vilja gefa nem­endum tæki­færi til þess að þroska hæfi­leika sína í skap­andi greinum, listum, rann­sóknum og nýsköpun til að mæta nýjum áskor­unum í lífi og starfi. Þau vilja einnig auka virð­ingu fyrir kenn­urum og bregð­umst við kenn­ara­skorti, fjár­magna háskóla til jafns við það sem ger­ist ann­ars staðar á Norð­ur­löndum og styðja betur við fjöl­breytta fram­halds­skóla út um allt land og vinnum gegn brott­falli fram­halds­skóla­nema með mark­vissum aðgerðum.

Vilja vinna að nýrri stjórnarskrá

Enn­fremur segir í álykt­un­inni að þau vilji ráð­ast í átak gegn ofbeldi og taka á móti fleiri flótta­mönnum og vöndum mót­töku hæl­is­leit­enda, sér­stak­lega barna. Þau ætla að stór­auka fjár­fest­ingu í vega­gerð með fjár­mögnun sam­göngu­á­ætl­unar, taka mark­viss skref til þess að standa við skuld­bind­ingar þeirra í bar­átt­unni gegn hlýnun jarðar og súrnun sjávar og flýta orku­skiptum í sam­göngum með skipu­lagi og hleðslu­stöðvum um allt land. 

Að end­ingu segir að þau ætli að treystum þjóð­inni. 
Traust sé einn mik­il­væg­asti þáttur stjórn­mál­anna og til að vinna sér traust meðal þjóð­ar­innar verði alþing­is­menn að treysta þjóð­inni sem gaf þeim umboð, hlusta á hana og virða. Þeir megi ekki skýla sér á bak við laga­tækni þegar koma þarf í veg fyrir ómann­úð­lega með­ferð á börnum á flótta, veita á upp­lýs­ingar sem varða almanna­hags­muni eða virða nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Stjórn­mála­menn eigi ekki sjálfir að ráða leik­regl­unum sem þeir spila eftir.

„Vinnum af krafti á nýju kjör­tíma­bili að nýrri stjórn­ar­skrá á grunni vand­aðrar vinnu stjórn­laga­ráðs sem afger­andi meiri­hluti lýsti stuðn­ingi við í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu,“ segir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár