Allt í járnum tveimur dögum fyrir fyrri umferð forsetakosninganna í Frakklandi

Bergþór Bjarna­son fer yfir stöð­una í for­seta­kosn­ing­unum í Frakk­landi, sem verða einar þær sögu­leg­ustu sem haldnar hafa verið þar í landi.

For­seta­kosn­ing­arnar í Frakk­landi 2017 eru sögu­legar og ekki hægt að finna sam­bæri­leg dæmi í for­tíð fimmta lýð­veld­is­ins. Nú tveimur dögum fyrir fyrri umferð­ina er óvíst hvort að nöfn þeirra tveggja sem fara í aðra umferð þann 7. maí verði kunn klukkan átta nú á sunnu­dags­kvöld, eins og venja er að lok­inni fyrri umferð, svo lít­ill er mun­ur­inn á milli efstu fram­bjóð­enda. Fjórir þeirra ell­efu sem eru í fram­boði gætu kom­ist áfram.

Í byrjun var það val fram­bjóð­end­anna sem var merki­legt. Þeir sem voru taldir öruggir um að hljóta útnefn­ingu voru slegnir út (Sarkozy, Juppé, Valls, Montbourg). Svo dró for­set­inn sig út úr bar­átt­unni sem hefur aldrei gerst fyrr. Við þetta má bæta að Emmanuel Macron, fyrr­ver­andi efna­hags­ráð­herra sem er enn efstur í skoð­ana­könn­unum hefur aldrei verið í fram­boði, hvorki til þings né for­seta, var ráð­herra í tvö ár og hefur engan flokk að baki sér. Marcon en einnig ungur fyrir frönsk stjórn­mál, aðeins 39 ára en oft hafa stjórn­mála­menn hér 30 ára þing­mennsku að baki eins og François Fillon, fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins til dæmis sem fór fyrst á þing 1981, ári eftir kjör Vigdísar Finn­boga­dóttur til for­seta. Ein­hverjum kemur kannski orðið eft­ir­laun í huga. Hneyksl­is­mál Fillons vegna launa eig­in­konu og barna sem og ýmis önnur óút­skýrð mál, tengd gjöfum og fleiru, urðu til þess að hann hefur verið ákærður en þrjóskast við að draga sig í hlé. Hann hefur náð að neyða flokk sinn til að styðja sig á hverju sem dynur, ekki síst eftir úti­fund­inn á Trocadero í París í byrjun mars sem var vel heppn­aður vegna mik­ils stuðn­ings öfga­kaþ­ólikka úr „Sens commun“ sem þýðir mann­leg skyn­semi en þessi sam­tök vilja til dæmis minnka rétt á fóst­ur­eyð­ingum og banna sam­kyn­hneigðum að ætt­leiða börn maka sinna.

Yrði François Fillon for­seti nyti hann verndar fyrir mál­sókn meðan á kjör­tíma­bil­inu stendur. For­seta­frúin vænt­an­lega, sem einnig hefur verið ákærð, er aftur á móti aðeins venju­legur þegn og því gæti hún hugs­an­lega endað í fang­elsi. Fillon hefur spilað meira und­an­farna daga á velli Marine Le Pen þar sem að hann telur ólík­legt að hann geti unnið á miðj­unni. Ef hann kæm­ist í aðra umferð veit hann að margir til vinstri myndu kjósa hann gegn Le Pen. Athygl­is­vert þó að Macron myndi vinna Fillon með mestum mun allra hugs­an­legra mótherja myndu þeir mæt­ast í annarri umferð með 68 á móti 32 pró­sentum. Stefna Fillons er harður Thatcherismi sem erfitt er fyrir hann að verja eftir að hafa verið sak­aður um að mis­nota almannafé í þrjá­tíu ár. Hann boðar að stytta tíma­bil atvinnu­leys­is­bóta, fækka opin­berum starfs­mönnum um 500.000 og lengja vinnu­tíma án þess að hækka laun.

Flokka­kerfið í Frakk­landi virð­ist vera að lið­ast í sundur. Sós­í­alistar styðja margir hverjir ekki fram­bjóð­anda sinn, Benoît Hamon sem í fjögur ár hefur unnið á móti Hollande for­seta og rík­is­stjórn og telja hann allt of langt til vinstri og munu því kjósa Macron. Fylgi Hamon hefur farið úr fimmtán pró­sentum og er nú jafn­vel undir átta pró­sentum og ljóst að flokk­ur­inn klofnar eftir kosn­ingar. Annars vegar í miðju sós­í­alde­mókrata og svo vinstri arm. Þeir sem eru til vinstri í flokknum hafa verið að fær­ast til Jean-Luc Melanchon eftir því sem fylgi Hamon minnkar. Melanchon er fyrrum sós­í­alisti en stofn­aði sína eigin hreyf­ingu og nýtur stuðn­ings komm­ún­ista. Hann hefur verið á hraðri upp­leið í könn­unum og er nú eins og Fillon, í um nítján pró­sentum og gæti því kom­ist í aðra umferð. Melanchon er aðdá­andi Hugo heit­ins Chavez í Venes­ú­ela en það hlýtur að vekja spurn­ingar um hvað hann vill fyrir Frakk­land ef litið er á ástandið þar. Hann vill einnig færa sig nær Pútín Rúss­lands­for­seta og hefur meðal ann­ars gagn­rýnt einn af and­stæð­ingum hans sem var myrtur í Moskvu fyrir nokkrum árum. Melanchon vill auka ýmis rétt­indi launa­fólks, til dæmis ráða atvinnu­lausa í vinnu hjá rík­inu, hann er mik­ill umhverfis- og dýra­vernd­un­ar­sinni, svo mik­ill að Birgitte Bardot hrósar honum. Svo vill Melanchon gjör­breyta Evr­ópu­sam­band­inu og ef það gengur ekki þá ganga út úr því.

Fram­bjóð­andi öfga- hægri­flokks­ins Þjóð­ar­fylk­ing­ar­innar, Marine Le Pen, sem var komin upp í 28 pró­sent atkvæða í byrjun mars hefur hægt og rólega verið að tapa fylgi og er nú í um 22-23 pró­sentum en enn önnur í röð­inni í könn­unum. Le Pen hefur fátt nýtt fram að færa síðan 2012 og hefur smám saman verið að færa sig nær föður sínum í skoð­unum sem hún er búin að vera að reyna fela árum saman til þess að kynna flokk sinn sem „venju­legan“ hægri­flokk. Á dög­unum hneyksl­aði hún marga þegar hún sagði Frakk­land ekki bera ábyrgð á því þegar þús­undir gyð­inga voru reknir úr húsum sínum árið 1942 á leik­vang­inn Vel´if áður en þeir voru fluttir í útrým­inga­búðir. Það er því erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Grunur um að hún hafi mis­notað fé frá Evr­ópu­þing­inu í þágu flokks­ins með því að setja starfs­fólk hans á launa­skrá í Brussel hefur haft áhrif. Fram­bjóð­andi sem vill fara út úr Evr­ópu­sam­band­inu en mis­notar fjár­muni þess, notar þing­helgi sem afsökun til að neita að mæta til rann­sókn­ar­dóm­ara og kallar sig svo fram­bjóð­anda „anti-system“. Svo seg­ist Marine Le Pen vera að berj­ast fyrir verka­menn og lág­launa­fólk. Einnig gegn inn­flytj­endum sem ræna frönsku þjóð­ina. Það þarf því ekki stór­kost­lega vits­muni til þess að sjá í gegnum þetta. Kjós­endur hennar eru einmitt, sam­kvæmt rann­sóknum, þeir sem hafa minnsta menntun og búa við erf­iðar aðstæður sem og atvinnu­leysi og virð­ast ætla að kjósa millj­óna­erf­ingja og drottn­ingu kerf­is­mis­notk­unar. Er ein­hver far­inn að hugsa um Donald Trump?

Fyrrum efna­hags­ráð­herr­ann, Emmanuel Macron, sem hefur náð að halda efsta sæt­inu í könn­unum og ætti að eiga góða mögu­leika á að kom­ast áfram, myndi vinna alla mögu­lega mót­fram­bjóð­endur. Hann hefur náð að spila inn á þema eins og atvinnu­sköpun og „start-up“ en einnig reynt á jákvæðan hátt á draga fram alla þá mögu­leika sem Frakkar hafa milli hand­anna, meðal ann­ars með að ein­falda kerfið og lækka skatta á frum­kvöðla. Hann vill einnig að þeir sem taka áhættu og skapa fyr­ir­tæki geti fengið atvinnu­leys­is­bætur ef þeim mis­tekst, eins og aðrir sem missa vinn­una. Hann er eini fram­bjóð­and­inn sem ver Evr­ópu­sam­bandið en vill bæta það og telur það lyk­il­inn að friði í álf­unni og til að mæta sam­keppni bæði frá Austri og Vestri.

Stóra spurn­ingin er hins vegar hvað þriðj­ungur kjós­enda, sem ekki hefur tekið afstöðu, geri á sunnu­dag, sem er ein­stakt og áður óþekkt í for­seta­kosn­ingum hér. Yfir­leitt eru línur farnar að skýr­ast tveimur dögum fyrir kosn­ingar en í þetta skiptið virð­ist svo ekki vera. Önnur mik­il­væg spurn­ing er hver muni njóta atkvæða þeirra sem ákveða sig í kjör­klef­anum, sá sem hefur mest fylgi og er lík­leg­astur til að koma í veg fyrir að Marine Le Pen geti orðið for­seti. Eða munu Frakkar láta svart­sýn­ina ráða og kjósa ein­hvern af þeim svart­sýnu, Le Pen, Fillon eða Melanchon eða það sem er enn ótrú­legra, draum­óra­mann­inn Hamon sem sér allt í bleiku ljósi.

Á fimmtu­dags­kvöld buðu svo hryðju­verk sér aftur í bar­átt­una með skotárás á Champ-Elysée-breið­göt­unni, ein fræg­asta og fjöl­farn­asta gata í heimi, eitt af táknum Parísar. Lög­reglu­maður var skot­inn sem og árás­armað­ur­inn. í byrjun vik­unnar voru tveir menn hand­teknir í Marseille í íbúð þar sem fund­ust vopn og öfl­ugt sprengi­efni. Þeir voru að und­ir­búa árás. Frakkar standa þó upp­réttir og gætu farið enn fleiri að kjósa sem svar við þessum árásum. Spurn­ingin er hvort þeir muni halla sér að örygg­is­hneigðum fram­bjóð­endum eins og Le Pen og Fillon eða þeim sem vilja að Frakk­landi ljómi af menn­ingu og nýjum hug­myndum.

Pistill­inn birt­ist einnig á vef­svæði Berg­þórs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár