Veiran mögulega að missa þróttinn

Sótt­varna­læknir segir að hugs­an­lega sé kór­ónu­veiran að missa þrótt­inn. Þeir sem smit­ast hafa af COVID-19 und­an­farið eru ekki mikið veikir. Aðeins sex smit hafa greinst hér á landi í maí.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Aðeins sex smit af kór­ónu­veirunni hafa greinst hér á landi í maí. Ekkert smit greind­ist í gær. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir telur að veiran sé enn úti í sam­fé­lag­inu en að smitið sé almennt lítið. „Það sem er ein­kenn­andi fyrir þessa ein­stak­linga sem hafa greinst upp á síðkastið er að þeir eru ekki mikið veikir,“ sagði Þórólfur. „Og hvað þýðir það? Það er erfitt að segja til um það.

Það gæti verið að þetta séu ein­stak­lingar sem hafi verið búnir með sín veik­indi. Það gæti líka vel verið að það sé ein­hver þróttur að fara úr veirunni, hugs­an­lega. Allavega er til­hneig­ingin sú að veik­indin hafa minnkað eftir því sem liðið hefur frá 28. febr­úar. Það gæti gefið okkur hugs­an­lega vís­bend­ingu um það að veiran sé ekki eins ágeng og slæm og hún var. En tím­inn verður að leiða það í ljós. Það er örugg­lega smit þarna úti, það er lítið og við erum fljót að finna það og beita við­eig­andi ráð­stöf­unum ef að svo fer.“

Þórólfur sagði ómögu­legt að segja til um það á þess­ari stundu hvernig veiran muni haga sér í haust og næstu ár. Miklar vanga­veltur hafa verið um hverju hún gæti tekið upp á. Hann sagði að kór­ónu­veirur almennt væru ekki þekktar fyrir það að valda árs­tíða­bundnum sýk­ingum eins og inflú­ensan. Hann nefndi sem dæmi að veiran sem olli SARS hafi dáið út. „Það væri nýlunda ef þessi kór­ónu­veira færi að valda árs­tíða­bundnum, slæmum sýk­ingum. En þetta er ekki vitað. Við verðum bara að lifa nógu lengi til að sjá þetta, upp­lifa þetta.“

Í dag var síð­asti upp­lýs­inga­fundur almanna­varna vegna COVID-19, í bili að minnsta kosti. Enginn liggur á spít­ala með COVID en í heil­brigð­is­kerf­inu eru þó ein­stak­linga sem enn eru að glíma við eft­ir­köst sjúk­dóms­ins, sagði Þórólfur. Á fund­inum ítrek­aði hann að sjúk­dóm­ur­inn væri enn lífs­hættu­legur. Hann sagði rann­sóknir á lyfjum sem gagn­ist við sjúk­dómnum lofa góðu en að alltof snemmt sé að fagna sigri í þeim efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár