Hæstiréttur telur hleranir lögreglu í lagi

Hæsti­réttur seg­ist ekki fá séð hvernig lög­regla gæti almennt hagað sím­hler­unum á annan hátt en hún gerði í Al-Thani mál­inu. Þetta kemur fram í dómi rétt­ar­ins yfir Hreiðari Má Sig­urðs­syni, Sigurði Ein­ars­syni, Magnúsi Guð­munds­syni og Ólafi Ólafs­syni.

Hinir ákærðu fóru fram á frá­vísun máls­ins, meðal ann­ars á grund­velli þess að lög­reglan hafi tekið upp sím­töl þeirra við verj­endur sína. Sér­stakur sak­sókn­ari hefur við­ur­kennt að fjórum sím­tölum milli Hreiðars Más og verj­anda hans hafi ekki verið eytt á réttum tíma, en hefur ávallt neitað því að hlustað hafi verið á upp­tökur á milli sak­born­inga og verj­enda.

Í málsvörn ákærðu kom fram að lög­reglu­mann sem hafi hlustað á sím­töl hljóti að hafa þurft að hlusta á öll sam­töl í heild eða að hluta, þótt þeir hafi svo átt að hætta að hlusta ef sam­töl væru við verj­anda. Þannig hafi réttur sak­born­inga til trún­aðar um sam­töl við verj­enda verið skertur.

Hæsti­réttur segir í dómi sínum að ekk­ert sem teng­ist sím­tölum ákærðu og verj­enda þeirra hafi verið lagt fram í mál­inu. Þannig sé það alls kostar ljóst að slík gögn hafi á engan hátt verið nýtt til sönn­unar fyrir dómi. Engin rök hafi verið færð fyrir því að upp­tök­urnar hafi haft áhrif á rann­sókn máls­ins, eða að hætta hafi verið á því.

Ekki hægt að láta aðra um hleranir


Fyrir dómi sögðu verj­endur að lög­reglan hefði átt að haga hlustun á annan veg til að tryggja að trún­aður sak­born­inga við verj­endur sína væri virtur, til dæmis með því að aðrir en starfs­menn lög­regl­unnar hefðu gengið úr skugga um hvort sam­töl væru við verj­endur áður en lengra yrði haldið.

Hæsti­réttur segir hins vegar að ekki verði séð hvernig lög­reglan gæti hagað hlustun öðru­vísi en gert var. Lög­reglan geti ekki séð það fyrir hvort sím­tal sak­born­ings kunni að vera við verj­anda fremur en annan, og að lög­reglan hafi enga heim­ild til þess að láta aðra um „fram­kvæmd þess inn­grips í frið­helgi einka­lífs manna að hlusta á sím­töl þeirra.“

Kærðu hleranir til ríkissaksóknara


Hörður Felix Harð­ar­son, lög­maður Hreiðars Más, kærði málið til rík­is­sak­sókn­ara sínum tíma, eftir að í ljós kom að fjögur sím­töl þeirra á milli voru meðal varð­veittra sím­tala hjá sér­stökum sak­sókn­ara. Þetta fékk Hörður Felix upp­lýst í bréfi frá sér­stökum sak­sókn­ara í lok árs 2011. Hann kærði málið til rík­is­sak­sókn­ara 11. mars 2013. Í bréf­inu frá sér­stökum sak­sókn­ara kom fram að ekki hefði verið hlustað á sím­tölin á milli Hreiðars Más og Harðar Felix. Sagði sér­stakur sak­sókn­ari þá að fyrir mis­tök hafi sím­töl­unum fjórum ekki verið eytt eins og skylt var að gera sam­kvæmt lögum.

Rík­is­sak­sókn­ari tók skýr­ingar sér­staks sak­sókn­ara gildar, og taldi ekki ástæðu til frek­ari rann­sóknar. Líkt og kemur fram hér að framan hefur Hörður Felix byggt á því að á öll sím­töl sem tekin voru upp hafi verið hlustað að ein­hverju marki, þótt hlustun hafi verið hætt þegar í ljós hafi komið að um sam­töl við verj­anda væri að ræða.

Hörður fór fram á það að Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, og fimm starfs­menn emb­ætt­is­ins kæmu fyrir dóm og skýrðu hler­anir. Hæsti­réttur hafn­aði því.

Mikil umræða um hleranir


Mikið hefur verið rætt um fram­kvæmd hler­ana hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, ekki síst eftir að greint var frá umfangi hler­ana, en dóm­stólar veittu 875 leyfi til hler­ana á árunum 2008 til 2012. Aðeins sex beiðnum var hafnað.

Í dómi hér­aðs­dóms í svoköll­uðu Imon-máli í júní í fyrra var vikið að hler­unum emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara á sím­tölu ákærðu, Elínar Sig­fús­dóttur, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs Lands­bank­ans, Sig­ur­jóns Árna­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra og Stein­þórs Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi yfir­manns verð­bréfa­miðl­unar. Þar sagði:

„Með vísan til 1. mgr. 36. gr. laga um með­ferð saka­mála bar rann­sak­anda að láta af sím­hlustun og stöðva upp­töku þegar ljóst var að um var að ræða sam­tal milli ákærðu og verj­enda þeirra. Samkvæmt loka­máls­lið 1. mgr. 85. gr. sömu laga bar jafn­framt að farga upp­tökum sím­tal­anna þegar í stað. Hvorugt var gert og fólu fram­an­greindar rann­sókn­ar­að­gerðir, eins og að þeim var staðið, í sér brot gegn til­vitn­uðum ákvæðum laga um með­ferð saka­mála.“

Þá kom Jón Óttar Ólafsson, fyrr­ver­andi starfs­maður hjá emb­ætt­inu, fram í Frétta­blað­inu í sept­em­ber síð­ast­liðnum og sagði að lög­brot væru stunduð við sím­hler­anir og að hann hefði bent rík­is­sak­sókn­ara á það árið 2012. Hann sak­aði hana um að hafa látið undir höfuð leggj­ast að rann­saka ábend­ingar hans, en því vís­aði hún á bug. Hún sagð­ist jafn­framt hafa leit­ast við að koma á eft­ir­liti með hlust­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár