Skattrannsóknarstjóri: Munnlegt samkomulag um kaup á gögnum fyrir 200 þúsund evrur

„Það hefur náðst sam­komu­lag um kaup­verðið, hann fór fram á 150 millj­ónir en nú er búið að gera munn­legt sam­komu­lag um 200 þús­und evrur,“ segir Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri. Rík­is­stjórnin sam­þykkti í morgun auka­fjár­veit­ingu til emb­ætt­is­ins upp á 37 millj­ónir króna til þess að kaupa gögn um fjár­mála­legar eignir íslenskra aðila í þekktum skatta­skjólum.

Eins og Bryndís nefnir hafði aðil­inn sem hefur gögnin til sölu farið fram á að fá 150 millj­ónir króna fyrir gögnin, eða 2.500 evrur fyrir hvert ein­stakt mál. Málin eru 416 tals­ins. Í samn­ingum hefur þessi upp­hæð breyst niður í 200 þús­und evrur fyrir öll gögnin, eða sem nemur tæpum 30 millj­ónum króna. Virð­is­auka­skattur bæt­ist svo við þá upp­hæð, sem skýrir 37 millj­óna fram­lag stjórn­valda til máls­ins. Eins og greint var frá fyrr í dag ákvað rík­is­stjórnin á fundi í morgun að veita þeirri upp­hæð til kaupanna.

Bryndís segir verið að ganga frá því núna hvernig afhend­ingu á gögnum og greiðslu verði háttað. Ekki liggi enn fyrir skrif­legur samn­ingur en hún eigi ekki von á öðru en að þetta sam­komu­lag gangi eftir. Hún seg­ist vilja vera var­kár í sam­bandi við tíma­setn­ingar, því það geti alltaf komið eitt­hvað bakslag, en seg­ist von­ast til þess að hægt verði að ganga frá kaup­unum fyrir lok mán­aðar. „Ég legg upp með það að þetta klárist innan tíðar.“

Íslensk yfir­völd hafa aldrei fyrr keypt gögn sem þessi. Bæði banda­rísk og þýsk stjórn­völd hafa hins vegar farið þessa leið með nokkrum ávinn­ingi.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri fékk sýn­is­horn af gögn­unum send í fyrra, og lét fjár­mála­ráðu­neytið vita af mál­inu. Sýn­is­hornin 50 sem emb­ættið fékk bentu sterk­lega til þess að skattaund­an­skot hafi átt sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár