Hæstiréttur segir dómsmálaráðherra hafa brotið gegn stjórnsýslulögum

Máls­með­ferð Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra, þegar vék frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar um skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt, var and­stæð stjórn­sýslu­lögum. Vegna þess var einnig ann­marki á með­ferð Alþingis á mál­inu.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra braut gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún vék frá hæfn­is­mati dóm­nefndar um skipun 15 dóm­ara í Lands­rétt. Þetta er nið­ur­staða Hæsta­réttar Íslands. Í dómi hans sem birtur var í dag segir að Sigríður hafi að lág­marki átt að gera sam­an­burð á hæfni ann­ars vegar fjög­urra umsækj­enda sem dóm­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­ustu en Sigríður ákvað að gera ekki til­lögu um að yrðu skip­aðir, og þeirra fjög­urra sem hún ákvað frekar að skipa. Það hafi hún ekki gert og gögn máls­ins bentu ekki til þess að nein slík rann­sókn hefði farið fram af hálfu Sigríðar.

Í dómnum segir: „Samkvæmt því hefði máls­með­ferð hans verið and­stæð 10. gr. stjórn­sýslu­laga og af því leiddi að það sama ætti við um með­ferð Alþingis á til­lögu ráð­herra þar sem ekki hefði verið bætt úr þeim ann­mörkum sem máls­með­ferð ráð­herra var haldin.“

Umfangsmesta nýskipun dómara í Íslandssögunni

Þann 10. febr­úar 2017 voru emb­ætti 15 dóm­ara við Lands­rétt, nýtt milli­dóms­stig, aug­lýst til umsókn­ar, en rétt­ur­inn mun hefja starf­semi sína í byrjun árs 2018. Alls sóttu 37 um stöð­urn­ar, fjórtán konur og 23 karl­ar. Fjórir drógu síðar umsóknir sínar til baka.

Árið 2010 var lögum um skipan dóm­ara breytt þannig að fimm manna dóm­nefnd var sett á lagg­irnar til að velja dóm­ara og vægi ákvörð­unar nefnd­ar­innar aukið þannig að ráð­herra yrði bund­inn við nið­ur­stöðu henn­ar. Þessar breyt­ingar voru m.a. gerðar til að auka til­trú á dóm­stóla og þrí­skipt­ingu valds á Íslandi í kjöl­far afar umdeildra skip­ana dóm­ara þar sem rök­studdur grunur var um að annað ef hæfni hefði ráðið för við skip­un. Laga­breyt­ingin gerði þó ráð fyrir að dóms­mála­ráð­herra geti vikið frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar og lagt nýja til­lögu fyrir Alþingi til sam­þykkt­ar, sam­kvæmt lög­un­um.

Í ljósi þess að skipan í Lands­rétt var umfangs­mesta nýskipun dóm­ara í Íslands­sög­unni var ákveðið að list­inn yfir þá sem til­nefndir yrðu til verks­ins yrði lagður fyrir Alþingi óháð því hvort dóms­mála­ráð­herra legði til breyt­ingar eða ekki. Um yrði að ræða fyrsta skipti sem Alþingi kæmi að skipun dóm­ara.

12. maí birti Kjarn­inn lista yfir þá 15 sem dóm­nefndin hafði metið hæf­asta til að sitja í Lands­rétti. Um er að ræða þann lista sem sendur hafði verið út til umsækj­enda um emb­ætt­in. Það vakti athygli að dóm­nefndin hefði talið nákvæm­lega 15 umsækj­endur hæfa til að gegn nákvæm­lega 15 emb­ætt­um. Um var að ræða tíu karla og fimm kon­ur.

29. maí afhenti Sig­ríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra for­seta Alþingis til­lögu sín að skipun í emb­ætti 15 dóm­ara við Lands­rétt. Til­laga Sig­ríðar var önnur en sú sem dóm­nefnd hafði lagt til. Fjórir umsækj­endur sem dóm­nefnd hafði talið á meðal þeirra 15 sem hæf­astir voru í emb­ættin hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herra og í þeirra stað voru fjórir aðrir settir inn á list­ann. Kynja­hlut­föll voru nú þannig að átta karlar og sjö konur yrðu dóm­arar við rétt­inn. Í ljós kom að Sig­ríður taldi 24 umsækj­endur hæf­asta, en ekki 15, og hún valdi þá sem hún gerði til­lögu um úr þeim hópi.

Dóms­mála­ráð­herra rök­studdi þó ekki breytta röðun sína með kynja­sjón­ar­miðum heldur sagð­ist hún hafa aukið vægi dóm­ara­reynslu. Hún lagði ekki fram nein gögn sem sýndu fram á hvernig það hafi verið gert.

Rökstuðningur gekk illa upp

Ást­ráður Har­alds­son, einn þeirra sem dóm­nefnd hafði mælt með en Sig­ríður fjar­lægði af list­an­um, sendi sam­dæg­urs bréf til for­seta Alþingis þar sem hann sagði að þau frá­vik sem ráð­herra geri á til­­lögu dóm­­nefnd­­ar­inn­ar upp­­­fylli á eng­an hátt kröf­ur sem gera verði varð­andi skip­an dóm­­ara og sem umboðs­maður Alþing­is og dóm­stól­ar hafi lagt til grund­vall­­ar. Um sé að ræða ólög­mæta emb­ætt­is­færslu. Sig­ríður hafn­aði því algjör­lega.

Dag­inn eft­ir, 30. maí, birti Kjarn­inn lista dóm­nefnd­ar­innar yfir hæfi umsækj­enda. Þar kom í ljós að einn þeirra sem Sig­ríður fjar­lægði af list­an­um, Eiríkur Jóns­son, hafði verið með sjö­undu hæstu ein­kunn­ina sam­kvæmt nefnd­inni. Þar kom enn fremur fram að einn þeirra sem Sig­ríður ákvað að skipa, Jón Finn­björns­son, hafði verið met­inn á meðal þeirra minnst hæfu af nefnd­inni. Hann sat í 30. sæti á list­anum af 33 umsækj­end­um.

Auk þess var ljóst að rök­stuðn­ingur dóms­mála­ráð­herra, um að auka vægi dóm­ara­reynslu, rím­aði ekki við einu fyr­ir­liggj­andi úttekt­ina á dóm­ara­reynslu. Í 117 blað­­síðna ítar­­legri umsögn dóm­­nefndar um umsækj­endur er reynsla umsækj­enda af dóms­­störfum meðal ann­­ars borin sam­­an. Þar kom í ljós að þrír umsækj­endur sem lentu neðar en Eiríkur í heild­­ar­hæfn­is­mati dóm­­nefndar voru með minni dóm­­ara­­reynslu en hann, en röt­uðu samt sem áður inn á lista Sig­ríðar yfir þá sem hún vill skipa í dóm­­ara­­sætin 15.

Hæstiréttur Íslands birti niðurstöðu sína í málinu í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Hæsti­réttur Íslands birti nið­ur­stöðu sína í mál­inu í dag. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Jón Hösk­­ulds­­son, sem dóm­­nefndin setti í 11. sæti, hlaut heldur ekki náð fyrir augum ráð­herra. Jón er þaul­­­reyndur dóm­­ari og hefði átt að fær­­ast upp list­ann frekar en niður hann ef slík reynsla væri metin umfram aðra. Í hans stað ákvað Sig­ríður m.a. að skipa Ásmund Helga­­son, sem hafði verið settur í 17. sæti af dóm­­nefnd. Í umsögn Jóns til stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefndar kom fram að hann og Ásmundur hafi verið skip­aðir hér­­aðs­­dóm­­arar sama dag, 15. maí 2010. Ásmundur þótti þó hafa eilítið meiri reynslu vegna þess að hann hefur auk þess setið í félags­­­dómi og verið ad hoc-­­dóm­­ari í Hæsta­rétti í einu máli.

Þá er ótalið að Ólafur Ólafs­­son, sem dóm­­nefnd mat einn þeirra fjög­­urra sem hafi næst mesta dóm­­ara­­reynslu, hlaut ekki náð fyrir augum Sig­ríðar þrátt fyrir að hafa lent í 27. sæti á upp­­haf­­legum lista dóm­­nefnd­­ar, eða þremur sætum ofar en Jón Finn­­björns­­son, sem Sig­ríður ákvað að til­­­nefna.

Hörð gagnrýni og veikur rökstuðningur

Lög­manna­fé­lag Íslands gagn­rýndi ákvörðun dóms­mála­ráð­herra um að breyta röðun á list­ann og í umsögnum sem hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Jóhannes Karl Sveins­son sendi inn til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar sagð­ist hann hafa verið í áfalli þegar hann las rök­­stuðn­­ing dóms­­mála­ráð­herra. Þau upp­­­fylli engar lág­­marks­­kröfur stjórn­­­sýslu um rök­­stuðn­­ing og stand­ist auk þess „enga efn­is­­lega skoð­un“.

Tek­ist var harka­lega á um málið á Alþingi í kjöl­far­ið. Stjórn­ar­and­staðan sagði til­lögu dóms­mála­ráð­herra vera alveg órök­studda og kall­aði eftir lengri tíma til að fara yfir mál­ið. Til stóð að afgreiða málið mið­viku­dag­inn 31. maí, og ljúka þing­störfum þann sama dag. Það náð­ist ekki og þetta eina mál varð til þess að þing þurfti að koma saman 1. júní.

Þar var hnakkrif­ist um málið og þáver­andi stjórn­ar­liðar kynntu ýmis sjón­ar­mið sín fyrir því að styðja til­lögur ráð­herra. Þau voru t.d. að Alþingi ætti ekki að hafa vald til að taka ákvörðun í svona máli þar sem það bæri ekki ábyrgð, heldur ráð­herr­ann. Aðrir sögðu kynja­sjón­ar­mið hafa ráðið úrslitum og enn aðrir sögð­ust telja að ráð­herr­ann hefði rök­stutt mál sitt nægj­an­lega vel, en hún bar við auknu vægi dóm­ara­reynslu í rök­stuðn­ingi sín­um.

Stjórn­ar­and­staðan lagði fram frá­vís­un­ar­til­lögu sem var felld 31-30. Hún gerði ráð fyrir meiri máls­með­ferð­ar­tíma fyrir til­lögu ráð­herra. Í kjöl­farið var til­laga ráð­herra sam­þykkt með 31 atkvæða þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar gegn atkvæðum Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Vinstri grænna. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sat hjá.

Svan­­dís Svav­­­ar­s­dótt­ir, VG, og Brynjar Níels­­son, Sjálf­­stæð­is­­flokki, voru ekki við­­stödd atkvæða­greiðsl­una, vegna tengsla við umsækj­endur um starf dóm­­ara við Lands­rétt. Svan­dís var gift Ást­ráði Har­alds­syni og á með honum börn og eig­in­kona Brynjars er ein þeirra sem ráð­herra skip­aði í Lands­rétt.

Ást­ráður stefndi íslenska rík­inu vegna skip­un­ar­inn­ar. Það gerði Jóhannes Rúnar Jóhanns­son líka.

Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, sama dag og rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sprakk, að Sigríður Andersen hafi brotið lög við skipun Land­rétt­ar­dóm­ara. Dóm­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að dóms­mála­ráð­herra hefði átt að óska eftir nýju áliti dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­stöðu, ef hún taldi ann­marka á áliti dóm­nefnd­ar­inn­ar. Í nið­ur­stöðukafla dóms­ins var tekið fram að „stjórn­sýslu­með­ferð ráð­herra hafi ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga nr. 50/2016 sem og skráðar og óskráðar reglur stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um rann­sókn máls, mat á hæfni umsækj­enda og inn­byrðis sam­an­burð þeirra.“

Ríkið var sýknað af bóta­kröfum Ást­ráðs og Jóhann­esar Rúnars. Þeim þætti máls­ins var áfrýjað þeim þætti máls­ins til Hæsta­réttar. Dómur hans var birtur í dag.

Málsmeðferð andstæð stjórnsýslulögum

Í dómnum er fall­ist á miska­bóta­kröfur Ástráðs og Jóhann­esar Rúnars. Þeir fá 700 þús­und krónur hvor vegna skip­unar dóm­ara við Lands­rétt. Hæsti­réttur sýkn­aði hins vegar ríkið af skaða­bóta­kröfu og hafði áður vísað frá ógild­ing­ar­kröfur Ástráðs og Jóhann­esar Rúnars, sem laut að ógild­ingu þeirrar ákvörð­unar dóms­mála­ráð­herra að leggja ekki til við Alþingi að þeir yrðu skip­aðir í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt.

Hæsti­réttur tekur hins vegar einnig afdrátt­ar­lausa efn­is­lega afstöðu til máls­ins. Ef dóms­mála­ráð­herra ætlar að víkja frá áliti dóm­nefndar um veit­ingu dóm­ara­emb­ættis verður slík ákvörðun að vera reist á frek­ari rann­sókn ráð­herra, líkt og kveðið er á um í stjórn­sýslu­lögum.

Í dómi Hæsta­réttar segir að það liggi ekki fyrir að Sigríður hafi ráð­ist í frek­ari rann­sókn á þeim atriðum sem vörð­uðu veit­ingu þeirra fjög­urra dóm­ara­emb­ætta sem málið snérist um og rök­stuðn­ingur hennar til for­seta Alþingis, sem settur var fram í bréfi dag­sett 28. maí 2017, um að víkja frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar full­nægði ekki lág­marks­kröfum.

Þar segir einnig að án til­lits til þess hvort dóms­mála­ráð­herra hafi getað með minn­is­blaði sínu til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, sem sent var 30. maí 2017, bætt úr þeim ann­mörkum, sem voru á rann­sókn hennar, rök­stuðn­ingi og til­lögu­gerð, hafði það minn­is­blað ekk­ert nýtt að geyma umfram það sem fram hafði komið í áliti dóm­nefndar. Sjón­ar­mið um jafna stöðu karla og kvenna gátu ekki komið til álita við veit­ingu ráð­herra á dóm­ara­emb­ætt­unum nema tveir eða fleiri umsækj­endur hefðu áður verið metnir jafn­hæfir til að gegna því. Ekki hafi verið um það að ræða í mál­inu.

„Að gættum þeim kröfum sem gera bar sam­kvæmt fram­an­sögðu var rann­sókn ráð­herra ófull­nægj­andi til að upp­lýsa málið nægi­lega, svo ráð­herra væri fært að taka aðra ákvörðun um hæfni umsækj­enda en dóm­nefnd hafði áður tekið. Var máls­með­ferð ráð­herra að þessu leyti því and­stæð 10. gr. stjórn­sýslu­laga. Leiðir þá af sjálfu sér að ann­marki var á með­ferð Alþingis á til­lögu dóms­mála­ráð­herra þar sem ekki var bætt úr ann­mörkum á máls­með­ferð ráð­herra þegar málið kom til atkvæða­greiðslu á Alþingi.“

Á vef dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er haft eftir Sigríði að nið­ur­staða Hæsta­réttar kveði á um að lagðar verði rík­ari skyldur á ráð­herra að rann­saka málið með sjálf­stæðum hætti. „Ég mun af þeim sökum bregð­ast við þess­ari nið­ur­stöðu Hæsta­réttar með því að setja reglur innan dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins sem taka á því þegar ráð­herra hyggst leggja fyrir Alþingi aðrar til­lögur en þær sem hæf­is­nefnd leggur til við skipun dóm­ara, eins og honum er heim­ilt að gera sam­kvæmt lögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár