Norður-Kórea mundi ekki þyrma lífi neins Bandaríkjamanns

Ef Norður-Kórea mætir Banda­ríkj­unum á víg­vell­inum á ný munu Norður-Kóreu­menn tryggja að eng­inn Amer­ík­ani kom­ist lífs af, segir Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu. 62 ára vopna­hléssamn­ingi er nú fagnað í Pjongj­ang.

Kóreu­stríð­inu lauk aldrei form­lega með frið­ar­samn­ingi heldur hefur vopna­hlé ríkt milli Norður- og Suður-Kóreu og banda­manna þeirra síðan 27. júlí 1953. Þá var her­laust svæði meðal ann­ars skil­greint til þess að skilja á milli ríkj­anna. Stjórn­völd í Pjongj­ang hafa alltaf fagnað samn­ingnum sem upp­gjöf banda­manna í suðri.

Fólk á götum höf­uð­borg­ar­innar Pjongj­ang fylgd­ist með ræðum, veif­aði fánum og hróp­aði sig­ur­orð yfir banda­rískri heims­valda­stefnu, meira en hálfri öld eftir að strí­ið­inu lauk. „Tíma­bilið þegar Banda­ríkin kúg­aði okkur með kjarn­orku­sprengjum er liðið. Banda­ríkin eru ekki lengur upp­spretta hót­ana og hræðslu okkar heldur erum við helsta ógn Banda­ríkj­anna,“ sagði Kim Jong-un í ræðu sem sjón­varpað var í rík­is­sjón­varpi Norður-Kóreu.

Í gær, sunnu­dag, hót­aði nýr varn­ar­mála­ráð­herra lands­ins, Pak Yong Sik, því að stjórn­völd væru nú reiðu­búin að berjat gegn Banda­ríkj­unum þar til eng­inn væri eftir til að skrifa undir upp­gjaf­ar­skjal.

[caption id="attachment_15151" align="alignnone" width="620"] Kim Jong-un, þriðji ætt­liður leið­toga í Norður-Kóreu, hefur fylgt línu föður síns og afa í áróð­urs­stríði lands­ins gegn Vest­ur­veld­unum.[/caption]

 

Bandaríkin vilja semja um kjarnorkuna


Yfir­maður sendi­nefndar Banda­ríkj­anna um kjarn­orku­á­ætlun Norður-Kóreu í Seul, höf­uð­borg Suður-Kóreu, sagði blaða­mönnum í dag að Banda­ríkin séu til­búin til að semja um kjarn­orku­á­ætl­un­ina. „Samn­ing­ur­inn við Íran er frá­bært dæmi um lið­leika Banda­ríkj­anna í samn­ingum og vilja til að vinna með þjóðum sem við höfum átt í lang­vinnum deilum við,“ sagði Sidney Seiler.

Samn­ing­ur­inn við Íran, sem Banda­ríkin gerðu á dög­unum, sýni einnig að gatan sé greið vilji Norður-Kórea losna úr diplómat­ískri og efna­hags­legri ein­angrun, sagði Seiler einnig.

Löndin fimm sem sögu­lega hafa leitt við­ræður um kjarn­orku­á­ætlun Norður-Kóreu, hefur ekki hist form­lega að ræða málið í sex ár. Allar þreyf­ingar um að hitt­ast aftur hafa engu skilað. Löndin fimm eru Banda­ríkin, Suður-Kórea, Kína, Japan og Rússland.

Stjórn­völd nyrðra hafa þegar sagt að þau hafi ekki áhuga á samn­ing við Banda­ríkin eins og Íran hefur gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár