Opnað á breikkun Reykjavíkurvegar fyrir Borgarlínu og hjólastíga

Í deiliskipu­lags­til­lögu fyrir vest­urbæ Hafn­ar­fjarðar er gengið út frá því að heim­ildir verði gefnar til að færa eða rífa hátt á annan tug húsa sem standa við Reykja­vík­ur­veg, ef það þurfi að breikka göt­una vegna Borg­ar­línu og hjóla­stíga.

Frá Reykjavíkurvegi. Húsaröðin sem er hér til vinstri á myndinni er sú sem ekki mun njóta hverfisverndar og gæti þurft að víkja ef ákveðið verður að breikka götuna.
Frá Reykja­vík­ur­vegi. Húsa­röðin sem er hér til vinstri á mynd­inni er sú sem ekki mun njóta hverf­is­verndar og gæti þurft að víkja ef ákveðið verður að breikka göt­una. Mynd: Google Maps

Ein húsa­röð sem liggur upp við Reykja­vík­ur­veg í Hafn­ar­firði er skilin undan því að telj­ast vernd­ar­svæði í byggð, í til­lögu að deiliskipu­lagi fyrir vest­urbæ bæj­ar­ins, sem nú er í kynn­ingu. Ástæðan er sögð sú að mögu­lega þurfi að end­ur­hanna aðkom­una til Hafn­ar­fjarðar og breikka göt­una, með til­komu borg­ar­línu­leiðar og nýrra hjóla­stíga, sam­kvæmt því sem fram kemur í grein­ar­gerð skipu­lags­til­lög­unnar.

Með deiliskipu­lags­til­lög­unni er þannig opnað á flutn­ing eða nið­ur­rif húsa sem standa vestan megin við Reykja­vík­ur­veg, húsa sem sum hver eru mjög gömul. Fimm þeirra eru byggð fyrir árið 1920. Hafn­firð­ingar eru ekki allir sáttir með þessa fram­tíð­ar­sýn.

Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar og íbúi í þessum elsta hluta Hafn­ar­fjarðar, segir það hreinar línur að húsa­röðin við Reykja­vík­ur­veg eigi heima innan vernd­ar­svæðis í byggð.

Hann birti bréf til bæj­ar­yf­ir­valda á Facebook-síðu sinni á dög­unum og segir þar að það sé „full­kom­lega frá­leit hugsun að rífa eða fjar­lægja fjöl­mörg hús sem með réttu ættu að vera hluti af skil­greindu vernd­ar­svæði í byggð til að leggja meira mal­bik,“ sama hvort það mal­bik fari undir stræt­is­vagna fyr­ir­hug­aðrar Borg­ar­línu, hjóla­stíga eða eitt­hvað annað.

Í umræðum um málið á sam­fé­lags­miðlum hafa íbúar í sumum þeirra húsa sem reiknað er með að gætu þurft að víkja vegna breikk­unar veg­ar­ins kvartað undan því að hafa ekki verið upp­lýstir sér­stak­lega um málið.

Borgarlína og hjólastígar kalli á breytingar

Í deiliskipu­lags­til­lög­unni segir í umfjöllun um Reykja­vík­ur­veg­inn að sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Borg­ar­línu sé áætlað að þar verði komin borg­ar­línu­braut árið 2030, eftir sömu leið og stræt­is­vagnar aki í dag.

Þá sé Reykja­vík­ur­veg­ur­inn skil­greindur í svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem skil­greind stofn­leið hjól­reiða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og að áætl­anir geri ráð fyrir því að árið 2033 verði búið að koma upp aðskildum hjóla­stígum með­fram göt­unni.

„Til þess að hvort tveggja geti orðið að veru­leika þarf að gera umtals­verðar breyt­ingar á Reykja­vík­ur­veg sem er á köflum þröngur,“ segir í deiliskipu­lags­til­lög­unni. Í fram­haldi segir að hljóð­stig við Reykja­vík­ur­veg sé mjög hátt. Í kjöl­farið segir að af þessum sökum séu mörk vernd­ar­svæðis í byggð í vest­ur­bænum í Hafn­ar­firði dregin inn sem svari einni húsa­röð.

Síðasti dag­ur­inn til að gera athuga­semdir við deiliskipu­lags­til­lög­una er í dag, 30. nóv­em­ber, sam­kvæmt því sem segir á vef bæj­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár