Gunnar Bragi og SÞ sátt við þróunarráðstefnu - mannúðarsamtök ytra gagnrýna niðurstöðu

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra er sáttur við nið­ur­stöðu alþjóð­legrar ráð­stefnu um fjár­mögnun þró­un­ar­að­stoðar, og telur hana end­ur­spegla helstu áherslur Íslands. Það sé mik­il­vægt að fátæk­ustu ríkin njóti stærri hluta þró­un­ar­fram­laga, að áhersla sé lögð á til­lit til kynja­jafn­réttis við stefnu­mótun og að áhersla sé lögð á aðgengi að end­ur­nýj­an­legri orku og á sjálf­bæra nýt­ingu nátt­úru­auð­linda.

Aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna sam­þykktu nið­ur­stöðu ráð­stefn­unnar, sem fór fram í Eþíópíu í vik­unni, á mið­viku­dags­kvöld, en ráð­stefn­unni lauk í gær. Hún felur í sér alþjóð­legt sam­komu­lag um fjár­mögnun þró­unar, sem er ætlað að stuðla að hag­vexti og félags­legri þróun með til­liti til umhverf­is­verndar, að því er segir í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Skjalið á að vera stefnu­mót­andi í fjár­mögnun, fjár­laga­gerð og fjár­fest­ingu í þró­un­ar­ríkjum. Lesa má nið­ur­stöð­una í heild sinni á vef Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Meðal þess sem ríkin sam­þykktu er að á ný heita þau því að stefna á að setja 0,7 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í þró­un­ar­mál. Flest ríki eru þó langt frá tak­mark­inu enn, Ísland einna helst, en rétt um 0,2 pró­sent af lands­fram­leiðslu fara til þró­un­ar­mála.

Nú þegar ráð­stefn­unni í Eþíópíu er lokið mun Gunnar Bragi kynna sér starf­semi Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar í Malaví auk þess sem hann mun funda með ráða­mönnum í land­inu.

Gagnrýnt fyrir skattamálin


Nið­ur­stöðu ráð­stefn­unnar hefur verið fagnað af stofn­unum Sam­ein­uðu þjóð­anna, en hún er mjög umfangs­mikil og tekur á ýmsum þáttum. Það sem helst var tek­ist á um, eins og utan­rík­is­ráðu­neytið greinir frá, voru skatta­mál.

Þró­un­ar­ríkin hafa barist fyrir því að skatta­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna yrði breytt og hún efld til þess að tryggja að stór­fyr­ir­tæki nýti sér ekki spill­ingu og lélega laga­setn­ingu í fátækum ríkjum. Nefndin er skipuð 25 skatta­sér­fræð­ingum víða að úr heim­inum.

Eins og fram kemur í til­kynn­ingu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins voru mörg vest­ræn ríki á móti þessum breyt­ingum og færðu þau rök fyrir því að OECD fari nú þegar með alþjóð­leg skatta­mál auk þess sem öllum þró­un­ar­ríkjum bjóð­ist að starfa með Alþjóð­legum vett­vangi um gagn­sæi og upp­lýs­inga­skipti í skatta­málum.

Ríku löndin fengu sínu fram­gengt, en skatta­nefndin mun þó fjölga starfs­dögum sínum og auknir fjár­munir verða settir í hana.

Kjarninn hefur sent utan­rík­is­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn og spurt um afstöðu Íslands til þessa máls.

Í drögum að nið­ur­stöðum ráð­stefn­unnar kom fram að kallað væri eftir fullu gegn­sæi þegar kemur að greiðslum frá stórum fyr­ir­tækjum til rík­is­stjórna, en Ástralir mót­mæltu þessu og orða­lagið var mildað á end­anum.

Mann­úð­ar­sam­tök hafa mót­mælt end­an­legu nið­ur­stöð­unum, ekki síst þætti Ástrala, og Pooja Rangaprasad frá sam­tökum um fjár­hags­legt gegn­sæi segir við Guardian að nið­ur­staðan muni festa í sessi ósann­gjarnt kerfi. „Þró­un­ar­ríkin hafa barist hart fyrir þess­ari nefnd, en sam­komu­lagið mun ekki gera neitt annað en að halda þeim í lít­ils­virð­andi kerfi þar sem hópur 34 ríkja hefur öll völdin.“

Þró­un­ar­ríkin vildu að í skatta­nefnd­inni myndu þau hafa jafn mikið að segja um það hvernig alþjóða­reglur um skatta eru mót­aðar, segir Helen Szoke hjá Oxfam um skatta­nefnd­ina. „Í stað­inn snúa þau heim með mála­miðlun, sem þýðir að lélegar reglur og und­an­skot frá skatti munu halda áfram að ræna frá fátæk­asta fólki heims­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár