Sóttvarnarlæknir gefur út nýjar leiðbeiningar vegna zíkaveiru

Eitrað í skólastofu í Venezúela vegna zíkaveirunnar.
Eitrað í skóla­stofu í Venezúela vegna zíkaveirunnar. Mynd: EPA

Zíkaveiran virð­ist ekki ætla að verða eins mikið áhyggju­efni á Ólymp­íu­leik­unum í Brasilíu eins og ótt­ast var í fyrstu. Ekki hefur ræst úr verstu spám hvað varðar far­ald­ur­inn og sökum veð­ur­fars smit­ast nú mun færri heldur en í jan­úar, þegar það var sem heit­ast í Brasilíu. Sjúk­dóma­varn­ar­stofnun Banda­ríkj­anna mælist þó til þess að allar ófrískar konur sem hafa ferð­ast til Brasilíu láti skoða sig þegar þær snúa heim.

Árstíðabundið ástand

Gunnar Jóhanns­son læknir sagði í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í gær­morgun að moskítófl­ug­urnar, sem eru aðal-smit­ber­arnir, séu mjög árs­tíð­ar­bundnar og því sé staðan ekki eins slæm og ótt­ast var í fyrstu.

„Nú er vetur í Suður Ameríku og ekki eins mik­ill raki, en þá eru færri moskítófl­ugur á sveimi heldur en í heit­ustu mán­uð­unum,“ sagði Gunnar. „Sem dæmi má nefna að í jan­úar smit­uð­ust um 2.000 manns í Rio de Janeiro en í síð­asta mán­uði komu 200 ný smit fram.“

Smit í 65 löndum

Sótt­varn­ar­læknir gaf út upp­færðar leið­bein­ingar vegna zíkaveirunnar í gær. Þar segir að í byrjun ágúst­mán­aðar 2016 hafi verið vitað um zikaveirusmit með moskítóflugum í alls 65 löndum. Þar af var 51 land þar sem smit zíkaveiru með moskítóflugum varð fyrst vart á árinu 2015. Flest smit hafa orðið í mið og Suður-Ameríku. Í lok júlí varð í fyrsta sinn vart við smit zíkaveiru með moskítóflugum í Banda­ríkj­unum, því í byrjun ágúst­mán­aðar höfðu alls 14 manns smit­ast á afmörk­uðu svæði í Miami, Florida. Talið er að rekja megi smitið í Miami aftur til 15. júní á þessu ári.

Algeng­asta smit­leið zíkaveirunnar í menn er með biti moskítóflugna. Sýkingin getur líka borist frá móður til fóst­urs, með blóð­gjöf og með kyn­mökum. Lifandi zíkaveira hefur fund­ist í sæði í allt að 24 daga frá upp­hafi ein­kenna zíkaveirusýkingar.

Fyrsta smit í manni árið 1952

Veiran greind­ist fyrst í apa í Úganda árið 1947. Fyrsta til­fellið sem greind­ist í manni var árið 1952. Síðan hafa flest til­felli greinst í Afr­íku, Suð­austur Asíu og á Kyrra­hafs­eyj­unum þar til far­ald­ur­inn braust út í Bras­ilíu árið 2015.

Talið er að veiran valdi svoköll­uðu höf­uðs­mæð­ar­heil­kenni hjá fóstrum ef barns­haf­andi konur eru smit­að­ar. Heil­kennið er alvar­legur fæð­ing­ar­kalli hjá nýbur­um. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin telur að veiran hafi valdið um 4.000 til­vikum þess í Bras­ilíu árið 2015, sam­an­borið við 147 til­vik 2014. 

Fjölskyldan áttaði sig á tengslunum

Gunnar sagði í Morg­un­út­varp­inu frá til­urð þess­arar kenn­ingar. Hún kom til þegar brasil­ísk fjöl­skylda, sem sam­an­stóð af barna­tauga­læknum, fór að skoða málið. Móðirin, dóttir og son­ur­inn voru öll barna­tauga­læknar og ráku sínar stofur.

„Móðirin fór að taka eftir því að mörg til­felli höf­uðs­mæð­ar­heil­kennis komu á stof­una til hennar. Hún spurði dóttur sína hvort hún tæki eftir þessu á stof­unni sinni, sem hún gerði. Bróð­ir­inn sagði það sama. Í kjöl­farið sendu þau út til­kynn­ingu til heil­brigð­is­yf­ir­valda sem hófu skimun og þá kom í ljós að marg­fallt fleiri til­felli voru að grein­ast og mæður barn­anna höfðu smit­ast áður af zíkaveirunni,“ sagði Gunnar. Tengsl zíkaveirunnar og höf­uðs­mæð­ar­heil­kennis hafa þó ekki verið sönnuð, þó að lík­indin séu tölu­verð.

Nota smokk alla meðgönguna

Sótt­varn­ar­læknir beinir því til karl­manna sem hafa verið á svæðum þar sem zíkaveiran er og eiga kyn­mök við barns­haf­andi konu, að nota smokk þar til með­göngu er lokið. Þeir sem hafa dvalið á svæð­inu geta komið í veg fyrir að smita aðra með því að nota smokka. Mælt er með notkun smokka í átta vikur, ef ein­stak­ling­ur­inn hefur ekki haft ein­kenni zíkaveiru sýk­ingar, en í sex mán­uði ef við­kom­andi hefur fengið ein­kenni zíkaveiru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár