Danir auglýsa erlendis til að forða innflytjendum frá Danmörku

Rík­is­stjórn Dan­merkur hygg­ist setja af stað aug­lýs­inga­her­ferð í erlendum dag­blöðum og á sam­fé­lags­miðlum til að koma í veg fyrir að inn­flytj­endur kjósi að koma til Dan­merkur til að búa. Þetta útspil danskra stjórn­valda kemur eftir að Jyllands-Posten fjall­aði um smygl­ara sem stundar man­sal og hjálpar fólki að bera saman ávinn­ing búsetu í mis­mun­andi Evr­ópu­löndum.

Þær upp­lýs­ingar sem þessir smygl­ar­arnir veita fólki eru um bið­tíma í hverju landi eftir því að inn­flytj­endur geti sam­einað fjöl­skyldu sína í land­inu og um fram­færslu­styrki til flótta­manna. Meðal þeirra landa sem fjallað er um í þessum gögnum smyglar­ana eru Danmörk, Svíþjóð og Þýska­land.

[caption id="attachment_34906" align="align­right" width="300"] Inger Støjberg, félags­mála­ráð­herra í Danmörku.[/caption]

Inger Støjberg, félags­mála­ráð­herra í Danmörku, sagði í gær að hún væri til­búin til að prenta aug­lýs­ingar í erlend dag­blöð til að koma í veg fyrir að inn­flyt­endur kæmu til Dan­merkur. „Það er eitt­hvað skrýtið við að flótta­fólk geti ferð­ast um mörg lönd áður en þau enda í Danmörku, Noregi eða Svíþjóð,“ sagði Støjberg í sam­tali við danska rík­is­út­varpið, DR.

Minni­hluta­stjórn Venstre í Danmörku hefur, síðan hún tók við völdum í byrjun sumar, fjallað mikið um mál­efni inn­flytj­enda. Stjórnin nýtur stuðn­ings danska Þjóð­ar­flokks­ins á þingi en sá stjórn­mála­flokkur vill stöðva flæði inn­flytj­enda til Dan­merkur.

Eftir að hafa tekið við völdum skar niður rík­is­stjórnin fram­færslu­styrki til inn­flytj­enda um allt að 45 pró­sent, eitt­hvað sem póli­tískir and­stæð­ingar gagn­rýndu því það eitt myndi ekki minna straum inn­flytj­enda til Dan­merkur. Støjberg segir umfjöllun Jyllands-Posten styrkja sig í þeirri trú að þetta hafi verið rétt skref. Nú sé rétt að tryggja að smygl­arar og hugs­an­legir inn­flytj­endur fái skýr skila­boð.

„Aug­lýs­ing­arnar munu inni­halda upp­lýs­ingar um að bæt­urnar hafa verið helm­ing­aðar og um aðrar tak­mark­anir sem við áætlum að virkja. Slík skila­boð eiga eftir að ber­ast víða,“ sagði hún við DR.

Óvíst er hvar og hvenær augýs­ing­arnar muni birt­ast. „Þær gætu birst í löndum á borð við Tyrkland, þar sem þeir sem stunda man­sal herja á fólk.“

For­stöðu­kona Alþjóða­stofnun Dan­merkur, Ninna Nyberg Sørensen, bendir á ástæður þess að fólk gangi svo langt til að kom­ast að heiman ein­faldar. „Hafi maður verið í stríði eða í flótta­manna­búðum, er það efst í huga manns að hætta ekki fyrr en maður kemst í skjól,“ segir hún.

Inger Støjberg segir aðstæð­urnar ekki leyfa Dönum að taka á móti öllum sem vilji koma. „Við munum að sjálf­sögðu hjálpa fólki í neyð, en við verðum líka að líta okkur nær og þess vegna getum við ekki hjálpað eins og staðan er núna,“ sagði hún.

Áróður af ástralskri fyrirmynd


Þjóð­ar­flokk­ur­inn lagði til í síð­ustu viku að svipuð skila­boð verði send út. Þá vís­aði flokk­ur­inn í aug­lýs­ingu ástr­al­skra stjórn­valda þar sem það er brýnt fyrir fólki sem hygg­ist reyna að kom­ast ólög­lega til Ástralíu að það verði flutt út fyrir lögs­sögu Ástrala; engar und­an­tekn­ingar verði gerðar.

https://youtu.be/rT12WH4a92w

Stjórn­ar­flokk­ur­inn Venstre gagn­rýndi þessa til­lögu hins vegar harð­lega. Jakob Ellemann-Jensen, tals­maður Venstre, sagði mynd­bandið ganga of langt. „Ég held að ástr­alska mynd­bandið sé ekki hug­mynd sem við ættum að herma eftir hér. Það gengur of langt og mér finnst þetta ekki vera leið Dana til að koma skila­boð­unum á fram­færi,“ sagði Ellemann-Jensen í sam­tali við Politiko, stjór­mála­dálk Berl­inske.

Fjöldi hæl­is­leit­enda tvö­fald­að­ist árið 2014, miðað við fyrra ár. Þá komu 14.815 manns í hæl­is­leit til Dan­merkur miðað við 7.557 árið 2013. Gögn Inn­flytj­enda­stofn­unar Dan­merkur benda til þess að árið 2015 verði annað metár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár