„Sportþvotturinn“ í Katar sannarlega ekki sá fyrsti og eflaust ekki sá síðasti

Heims­meist­ara­mótið í Katar hefst á morgun. Yfirvöld þar hafa verið sökuð um „sport­þvott“ – þó umdeilt sé hvort það hug­tak eigi við í til­felli HM 2022. Kjarninn tók saman nokkur sögu­leg dæmi um sport­þvott, frá ólymp­íu­leikum Hitlers fram til okkar daga.

Augu heimsins munu beinast að smáríkinu Katar við Persaflóa næstu vikur.
Augu heims­ins munu bein­ast að smá­rík­inu Katar við Persaflóa næstu vikur. Mynd: EPA

Íþrótta­þvætti og sport­þvottur eru þau tvö orð sem helst hafa verið notuð á íslenskri tungu til þess að ná utan um enska hug­takið „sportswashing“, sem felur í sér rík­is­stjórnir, fyr­ir­tæki eða aðrir aðilar reyni að bæta ímynd sína með því að tengj­ast íþrótta­við­burðum eða íþrótta­liðum og beisla það mjúka vald sem íþrótt­irnar hafa í dæg­ur­menn­ingu nútím­ans. Sveigja almenn­ings­á­litið sér í vil.

Þetta hug­tak hefur verið mikið notað af vest­rænum fjöl­miðlum í tengslum við heims­meist­ara­mótið í fót­bolta, sem hefst á morgun í Katar, með leik heima­manna gegn Ekvadorum. Skal ef til vill engan undra, þar sem hér er aft­ur­halds­samt ólýð­ræð­is­legt ríki, hvar mann­rétt­inda­brot eru dag­legt brauð, að eyða stjarn­fræði­legum upp­hæðum í að halda fót­bolta­mót og setja upp spari­bros framan í heim­inn.

Katar 2022 sé dæmi um hart vald, ekki mjúkt

Sumum þykir reyndar að hug­takið sport­þvottur nái í reynd ekki utan um það sem er að eiga sér stað í Katar. Helsti íþrótta­skríbent breska blaðs­ins Guardian, Barney Ronay, sagði í nýlegum pistli að HM í Katar sner­ist ekki um að yfir­völdum þar lang­aði að Vestur-Evr­ópu­búum lík­aði betur við sig, heldur væri móta­haldið úthugsuð geópóli­tísk örygg­is­að­gerð af hálfu Katara.

Valdið sem hér væri um að ræða væri „hart íþrótta­vald“, ekki mjúkt vald ásýnd­ar­innar, og liður í því að tryggja Katar sess á alþjóða­svið­inu, ekki síst í örygg­is­sam­skiptum við önnur ríki.

[adspot]

Þrátt fyrir að hug­takið sport­þvottur hafi fyrst skotið upp koll­inum og náð útbreiðslu fyrir ein­ungis rúmum ára­tug hafa ýmsir við­burðir og atburðir fyrri tíma verið felldir undir þann sama flokk.

Kjarninn rifj­aði nokkra þeirra upp, í bland við nýrri dæmi, en óhætt er að segja að sport­þvottur hafi færst í auk­ana upp á hið síð­asta.

Þegar Hitler hélt Ólympíuleikana og fékk nasistakveðju frá íslenska hópnum

Árið 1936 var Adolf Hitler búinn að ná trausta­taki á þýsku sam­fé­lagi. Það hafði hann hins vegar ekki árið 1931, þegar Berlín hafði betur en Bar­selóna á Spáni í bar­átt­unni um að fá að halda Ólymp­íu­leika árs­ins 1936.

Í aðdrag­anda leik­anna fór fram nokkur umræða utan Þýska­lands um hvort æski­legt væri að taka þátt í leik­unum vegna stjórn­ar­hátta Hitlers, en svo fór á end­anum fá ríki snið­gengu leik­ana í Berlín. Spán­verjar létu reyndar ekki sjá sig.

Það gerðum Íslend­ingar hins­vegar og heils­aði íslenski hóp­ur­inn, sem var óvenju­stór þar sem Íslend­ingum var boðið að senda sund­knatt­leiklið á leik­ana, meira að segja að nas­istasið á setn­ing­ar­at­höfn leik­anna, sem var áróð­urs­há­tíð Hitlers og þriðja ríkis hans.[links]

„Menn hafa velt vöngum yfir því af hverju þetta var gert. En það var að und­ir­lagi far­ar­stjór­anna. Ann­ars vegar dr. ­Björns Björns­son­ar, aðal­far­ar­stjóra sem hallur var undir þriðja rík­ið, og hins ­vegar Ásgeirs Ein­ars­son­ar. Íþrótta­mönn­unum var í raun fyr­ir­skipað að heilsa að nas­istasið allan tím­ann ­meðan þeir voru í ólymp­íu­þorp­inu og voru margir þeirra ósáttir við það. Fregn­ir af athæf­inu voru birtar hér á landi við mis­jafnar und­ir­tekt­ir,“ skrif­aði Kristinn Haukur Guðnason í frétta­skýr­ingu um för Íslend­inga á Ólymp­íu­leika Hitlers í Kjarnann fyrir nokkrum árum.

Þegar herforingjastjórnin í Argentínu tók á móti heiminum

Árið 1978 fór HM í fót­bolta fram í Argent­ínu, ein­ungis tveimur árum eftir að her­inn rændi völdum í land­inu af lýð­ræð­is­lega kjörnum stjórn­völdum. Ákveðið hafði verið heilum tólf árum fyrr að halda keppn­ina í land­inu og fyr­ir­svars­menn hjá Alþjóða knatt­spyrnu­sam­band­inu FIFA létu ekki valda­rán hers­ins og pynt­ingar og dráp hans á pólítískum and­stæð­ingum raska þeim áætl­unum.

Her­for­ingja­stjórnin, undir stjórn Jorge Rafael Videla, bað­aði sig í sviðs­ljósi keppn­innar og lagði strax frá því að hún tók öll völd í land­inu mikla áherslu á að hún færi fram eins og ákveðið hefði verið. Heims­meist­ara­keppnin var skil­greind sem þjóðar­ör­ygg­is­mál ein­ungis dögum eftir að her­for­ingja­stjórnin tók við stjórn­ar­taumunum í land­inu.

„Að halda keppn­ina mun sýna heim­inum að Argent­ína er traust­verð­ugt land, sem getur tek­ist á við risa­vaxin verk­efni. Og það mun hjálpa til við að takast á við gagn­rýn­ina sem rignir yfir okkur héðan og þaðan úr heim­inum,“ hefur verið haft eftir einum hátt­settum for­ingja stjórn­ar­innar.

Persaflóaríkin og Evrópufótboltinn

Á und­an­förnum rúmum ára­tug hefur það orðið æ algeng­ara að fjár­fest­ing­ar­sjóðir með beinar teng­ingar við stjórn­völd í vell­auð­ugum olíu­ríkjum við Persaflóa eign­ist ráð­andi hlut í knatt­spyrnu­liðum í Evrópu og víðar.

Þekkt­ustu dæmin um þetta eru eign­ar­hald Abu Dhabi United Group á Manchester City í Englandi frá 2008, emírs­ins í Katar á PSG í Frakk­landi síðan árið 2011 og nýleg kaup fjár­fest­inga­sjóðs Sádi-Arabíu á Newcastle United.

Mannréttindabrotamótaröð golfsins

Golf nýtur sívax­andi vin­sælda sem íþrótt. Fjár­fest­ing­ar­sjóður Sádi-Arabíu fór fyrr á þessu ári af stað með nýja alþjóð­lega móta­röð, LIV móta­röð­ina, sem olli miklum usla í golf­heim­inum. Margir af bestu kylfingum heims ákváðu að taka þátt í hinni nýju móta­röð, til dæmis Phil Mickelson, Sergio Garcia og Dustin Johnson.

Verð­launa­féð sem boðið er upp á er afar hátt í sam­an­burði við helstu golf­mót­araðir heims­ins – en gagn­rýnendur hafa sagt móta­röð­ina enn eina aðgerð Sáda til þess að öðl­ast lög­mæti og við­ur­kenn­ingu í augum almenn­ings á Vest­ur­löndum, og beina sjónum um leið frá mann­rétt­inda­brotum sem eiga sér stað í rík­inu.

Pútin, HM í fótbolta og vetrarólympíuleikarnir í Sochi

Vladimír Pútín hefur á und­an­förnum mán­uðum ein­angr­ast á heims­svið­inu, í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu.

Það eru þó ekki mörg ár síðan að hann tók á móti mörgum helstu fyr­ir­mennum ann­arra ríkja í kok­teil­boðum vegna bæði vetr­ar­ólymp­íu­leik­anna í Sochi árið 2014 og HM í fót­bolta árið 2018.

Í aðdrag­anda HM 2018 var rúss­neska ríkið verið ásakað um að hafa eitrað fyrir Skripal-feðgin­unum á breskri grundu. Þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Boris Johnson, bar í kjöl­farið HM í Rúss­landi saman við ólymp­íu­leika Hitlers í Berlín. Rússnesk yfir­völd sögðu ummælin dæma sig sjálf.

Gianni Infantino, for­seti FIFA, kall­aði HM í Rúss­landi besta mót sög­unnar og sagði þá áhorf­endur sem mættu á stað­inn hafa upp­götvað fal­legt land, sem vildi „gjarnan sýna heim­inum að allt sem hefðu verið sagt um það áður væri ef til vill ekki satt.“ Fyr­ir­fram­gefnar hug­myndir fólks hefðu breyst, þar sem fólk hefði séð „hið raun­veru­lega eðli Rúss­lands“.

Þessi orð hafa ef til vill ekki elst neitt sér­lega vel.

Dæmin um sport­þvott úr sög­unni eru svo að sjálf­sögðu mun fleiri – og ef marka má þróun und­an­far­inna ára eru engar líkur á öðru en að rík­is­stjórnir með laskaða ásýnd reyni að bæta hana í gegnum íþróttir, á einn eða annan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár