Lífeyrissjóðir lánuðu meira til íbúðarkaupa í fyrra en bankar

Líf­eyr­is­sjóðir lán­uðu tæp­lega 50 pró­sent meira til íbúð­ar­kaupa á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2017 en þeir gerðu allt árið 2016. Útlán þeirra voru hærri en útlán banka til heim­ila vegna íbúð­ar­kaupa.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu alls 14,5 millj­arða króna til sjóðs­fé­laga sinna vegna íbúð­ar­kaupa í nóv­em­ber síð­ast­liðnum, sem næst hæsta upp­hæð sem þeir hafa lánað til þeirra í einum mán­uði. Mest lán­uðu þeir í ágúst 2017, þegar útlánin námu 14,6 millj­örðum króna.

[links]Á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2017 lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir sam­tals 132,2 millj­arða króna til sjóðs­fé­laga sinna. Á öllu árinu 2016 lán­uðu sjóð­irnir alls 89 millj­arða króna. Því voru útlán þeirra á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2017 43,2 millj­örðum krónum hærri, eða 48,5 pró­sent hærri, en á öllu árinu 2016. Þetta kemur fram í nýbirtum hag­tölum Seðla­banka Íslands um stöðu líf­eyr­is­sjóða lands­ins.

Á sama tíma­bili, fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs, lán­uðu bankar og aðrar inn­láns­stofn­anir 129 millj­arða króna í ný íbúða­lán að frá­dregnum upp­greiðslum. Líf­eyr­is­sjóð­irnir lán­uðu því hærri upp­hæð í íbúða­lán en bankar lands­ins.

Ná forystu á íbúðamarkaði

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa lengi lánað sjóð­fé­lögum sínum til íbúð­ar­kaupa. Þau lán hafa þó verið þannig að mun lægra láns­hlut­fall hefur verið í boði sem gerði það að verkum að fólk sem átti lítið eigið fé gat illa nýtt sér þau lán. Það breytt­ist allt haustið 2015 þegar sjóð­irnir hækk­uðu láns­hlut­fall sitt og bjóða upp á enn hag­stæð­ari kjör. Frá þeim tíma hafa þeir lánað sjóðs­fé­lögum sínum 228 millj­arða króna til íbúð­ar­kaupa.

Það má segja að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafi náð for­ystu á íbúða­lána­mark­aði á síð­ustu tveimur árum. Frá byrjun árs 2017 og út nóv­em­ber juk­ust útlán banka og ann­arra inn­láns­stofn­ana til heim­ila lands­ins, að frá­dregnum upp­greiðslum, til að mynda um 129 millj­arða króna, sam­kvæmt tölum sem Íbúða­lána­sjóður birti í dag. Bankar lán­uðu því lægri upp­hæð á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins í fyrra í íbúða­lán en líf­eyr­is­sjóðir.

[adspot]Áhrif Íbúða­lána­sjóðs á þessum mark­aði hafa verið hverf­andi árum saman, þar sem hann er ekki sam­keppn­is­hæfur varð­andi kjör né umfang lána. Almenn útlán hans námu t.d. undir tveimur millj­örðum króna á fyrstu tíu mán­uðum síð­asta árs.

Ástæða þess að líf­eyr­is­sjóð­irnir eru að ná í flesta nýju við­skipta­vin­ina er ein­föld: þeir geta boðið upp á mun betri kjör. Þannig bjóða fjórir líf­eyr­is­sjóðir upp á verð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum sem eru nú um stundir vel undir þremur pró­sentum. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins býður upp á bestu kjörin þar, eða 2,69 pró­sent vexti og allt að 75 pró­sent hámarks­veð­hlut­fall.

Sá banki sem býður upp á bestu breyti­legu verð­tryggðu vext­ina er hins vegar Lands­bank­inn, þar sem slíkir vextir eru 3,83 pró­sent. Það munar því um 30 pró­sent á hag­kvæm­ustu verð­tryggðu lánum sem íslenskur líf­eyr­is­sjóður býður upp á og þeim sem íslenskum banki býður upp á. Þó er vert að minna á að bank­arnir bjóða upp á hærra láns­hlut­fall. Lands­bank­inn býður til að mynda sínum við­skipta­vinum upp á 85 pró­sent lán og allir bjóða upp á við­bót­ar­lán fyrir þá sem eiga lítið eigið fé.

Því er staðan þannig að þeir sem eiga lítið eigið þegar þeir ráð­ast í íbúð­ar­kaup eiga helst mögu­leika á að fá nægj­an­lega há lán hjá bönkum lands­ins, sem bjóða upp á mun lak­ari kjör en líf­eyr­is­sjóð­irnir.

Segja að almenningur sé látinn borga bankaskatt

Það er ástæða fyrir þess­ari stöðu. Hún er meðal ann­ars sú að stóru við­skipta­bank­arnir þurfa að greiða banka­skatt og sér­stakan fjár­sýslukatt. Þeir skattar hafa ekki verið afnumdir þótt að íslensku bank­arnir séu nær allir komnir í eigu íslenska rík­is­ins og búið sé að semja við kröfu­hafa föllnu bank­anna um slit þrota­búa þeirra.

[adspot]Katrín Júl­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja, skrif­aði grein sem birt­ist í Kjarn­anum 1. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem fjallað var um þessa stöðu. Þar sagði hún meðal ann­ars að í umræð­unni gleym­ist oft sú stað­reynd að bankar og spari­sjóðir séu í harðri sam­keppni við aðra lán­veit­endur sem búa við mun hag­felld­ara skattaum­hverfi. „Þannig borga til að mynda líf­eyr­is­sjóðir ekki banka­skatt en þeir eru harðri sam­keppni við aðild­ar­fé­lög SFF við veit­ingu fast­eigna­lána svo dæmi séu tek­in.[...]Það verður eitt helsta bar­áttu­mál SFF á kom­andi ári að íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki fái að búa við sam­bæri­legt sam­keppn­isum­hverfi og aðrir á sama mark­að­i.“

Um er að ræða umtals­verðar fjár­hæðir. Í fjár­lögum er til að mynda gert ráð fyrir að tekjur rík­is­sjóðs á árinu 2018 af banka­skatti, sem er 0,376 pró­sent af skuldum banka, verði 9,2 millj­arðar króna. Í fyrra skil­aði hann um 8,8 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann. Bank­arnir hafa haldið því fram að þessi skattur sé ekk­ert annað en álag ofan á útlán, sem almenn­ingur þurfi á end­anum að borga.

Þess vegna er staðan enn þannig í dag að þeir vextir á íbúða­lánum sem bank­arnir bjóða eru í lang­flestum til­vikum ekki jafn góðir og þeir sem líf­eyr­is­sjóðir geta boðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár