Sextíu prósent atvinnurekenda vilja klára ESB-viðræður

Sextíu pró­sent þeirra fyr­ir­tækja sem eiga aðild að Félagi atvinnu­rek­enda (FA) hefðu viljað halda aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið áfram, sam­kvæmt nýrri könnun félags­ins. Um 19 pró­sent fyr­ir­tækj­anna segj­ast hlynnt aðild en 41 pró­sent fyr­ir­tækja eru and­víg.

39 pró­sent aðspurðra sögð­ust telja að taka ætti upp evr­una á Íslandi við aðild að ESB, en í sams­konar könnun í fyrra vildu 57 pró­sent taka upp evru. Um fjöru­tíu pró­sent sögð­ust nú vera á móti því að taka upp evr­una en hlut­fallið var 28 pró­sent í fyrra.

Þá sögð­ust 27 pró­sent aðspurðra vera sam­mála því að Ísland ætti að taka ætti upp annan gjald­miðil ein­hliða á Íslandi.

[caption id="attachment_19681" align="alignnone" width="654"] Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar meðal félags­manna FA. Mynd­ritið er af síðu félags­ins.[/caption]

64 pró­sent fyr­ir­tækja með beina félags­að­ild svör­uðu könn­un­inni.

Ný tillaga lögð fram á næstunni


Fram kemur í Frétta­blað­inu í dag að ný til­laga um við­ræðu­slit við Evr­ópu­sam­bandið verði lögð fyrir rík­is­stjórn­ina á allra næstu fundum hennar. Vinna við til­lög­una er á loka­metr­unum í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Blaðið hefur eftir heim­ild­ar­mönnum sínum innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins að sumir þeirra telji litla nauð­syn á fram­lagn­ingu til­lög­unar. Ljóst sé að hún muni taka tíma frá öðrum málum á Alþingi og tím­inn til þing­frest­unar sé naumur.

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að með til­lög­unni séu for­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins að svíkja beinar yfir­lýs­ingar um að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla yrði haldin um fram­hald við­ræðna. „Ef menn ætla að svíkja beinar yfir­lýs­ingar um þetta verður því mætt með eldi og brenni­steini“.

Legið hefur ljóst fyrir und­an­farnar vikur að ný til­laga væri á leið­inni. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra ljáði máls á því í lok síð­asta árs og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, sagði á Alþingi þann 20. jan­úar að hann gerði ráð fyrir því að ný til­laga yrði lögð fram innan fárra daga.

Hann kall­aði jafn­framt eft­ir efn­is­legri umræðu um það hvað það þýði fyr­ir Ísland að ganga í Evr­ópu­sam­bandið.

Meirihluti landsmanna vill ekki slíta viðræðum


Meiri­hluti lands­manna vill ekki að aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu verði dregin til baka, sam­kvæmt nýlegri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir sam­tökin Já Ísland. 35,7 pró­sent vilja að umsóknin verði dregin til baka en 11,1 pró­sent sögð­ust hvorki vera fylgj­andi né and­vígir.

Samkvæmt könnun Capacent Gallup hafa heldur aldrei fleiri verið hlynntir því að Ísland verði aðili að sam­band­inu en nú, eða 46,2 pró­sent. Tæp 54 pró­sent svar­enda voru and­vígir aðild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár