Aldrei áður í sögunni hefur fjöldi flóttamanna verið svo mikill

Ný skýrsla Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir árið 2015 um mál­efni flótta­manna í heim­inum hefur litið dags­ins ljós. Þar kemur meðal ann­ars fram að fjöldi þeirra sem þurfi að flýja heim­kyni sín á mín­útu sé 24 og að helm­ingur þeirra sé börn undir 18 ára.

Samkvæmt mati Sam­ein­uðu þjóð­anna voru 65.3 millj­ónir manna á flótta, hæl­is­leit­endur eða á ver­gangi við lok árs 2015. Þetta er aukn­ing um 5 millj­ónir á einu ári. Þetta kemur meðal ann­ars fram í frétt BBC um málið. Í skýrslu SÞ segir að þetta sé í fyrsta skiptið í sög­unni sem fjöldi flótta­manna fer yfir 60 millj­ónir.

Þetta jafn­gildir einum af hverjum 113 manns í heim­inu en flestir koma frá Sýrlandi, Afganistan og Sómalíu. Í skýrsl­unni kemur einnig fram að 24 mann­eskjur þurfi að flýja heim­kyni sín á hverri mín­útu og að helm­ingur þeirra sé börn undir 18 ára. Þetta gegn­um­streymi af fólki sé það mesta síðan í seinni heim­styrj­öld­inni en það hefur ýtt undir útlend­inga­hatur og öfga-hægri stefnu í Evrópu að margra mati.

Filippo Grandi, yfir­maður flótta­manna­mála SÞ, hefur áhyggjur af þróun mála í Evrópu og hann hvetur leið­toga í Evrópu að sam­ræma reglur um flótta­menn og leið­rétta nei­kvæðar staðalí­myndir um hæl­is­leit­endur. Hann segir að flótta­menn séu ekki ógn, þeir séu hins vegar að flýja ógn­andi aðstæður og að þeir hafi góð áhrif á þróun sam­fé­laga.

En þrátt fyrir mik­inn flótta­manna­straum inn í Evrópu þá kemur fram hjá SÞ að 86% flótta­manna séu nú í fátæk­ari ríkjum eins og til dæmis Tyrk­landi, Pakistan og Líbanon. Eft­ir­sótt­ustu löndin séu þó hin rík­ari, eins og Þýska­land, Banda­ríkin og Svíþjóð.

Kjarninn fjall­aði um í síð­ustu viku þá gríð­ar­legu aukn­ingu sem orðið hefur í umsóknum um vernd á Íslandi fyrstu fimm mán­uði árs­ins miðað við í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár