Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Bochum

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Ég horfði á vídeó til sirka sex í morgun og þá vorum við komnir hingað til Bochum. Ég fór bara út að pissa, smokraði mér aftur í koj­una og sofn­aði. Ég rumskaði um hádegi og svo aftur sirka hálf3. Tíma- og daga­skynið er löngu farið. Það er til dæmis föstu­dags­kvöld núna. Það var líka föstu­dags­kvöld í gær. Og í fyrra­dag. Og verður í rúmar þrjár vikur í við­bót. Dagurinn í dag mark­aði þau tíma­mót að við erum akkúrat hálfn­aðir með prógramið. 19 gigg búin, 19 eftir. Við erum allir með svona passa sem flestir hengja við beltið. Hann bæði veitir okkur aðgang að öllum rýmum hvers tón­leika­staðar en aftan á honum er einnig túrplanið. Það er í tveimur dálkum. Í fyrsta skipti lít ég núna á planið og skoða seinni dálk­inn og það er ótrú­lega jákvætt fyrir ferða­l­úna sál. Við verðum í Hamburg á morgun.

Nú man ég reyndar að við drukkum senni­lega eitt­hvað smá áður en ég fór í víd­eó­málin í nótt. Í enn einni vega­sjopp­unni sturt­aði Baldur öllu klinkinu sínu í svona leikma­sk­ínu sem gengur út á að veiða tusku­dýr með kló. Æi þið vitið, maður hreyfir ein­hvern arm, ýtir á takka, klóin sígur og grípur í haug af tusku­dýrum. Og svo er klóin svo mikið drasl að maður vinnur aldrei neitt. En viti menn, hann náði að veiða hvítan björn með bleika hettu upp úr haugnum. Ég hef aldrei vitað til þess að nokkur hafi unnið í svona kassa. Robert fékk dýrið að sjálf­sögðu að gjöf og nú hefur Tussi fengið félags­skap. Og okkur vantar nafn. Upp­á­stungur vel þegnar.

Hér í Bochum spil­uðum við líka í fyrra og á þessum sama stað. Venjúið er gömul neð­an­jarð­ar­braut­ar­stöð, mjög nið­ur­grafið og hálf­gert völ­und­ar­hús. Salurinn sjálfur er í einum göng­unum, langur og mjór og rúmar 800 manns sam­kvæmt leyfi. Við spil­uðum fyrir 880 manns í kvöld, hér var stapp­upp­selt. Og við vorum í stuði, maður minn. Eftir sánd­tékk fengum við ljóm­andi mat sem því miður var heldur naumt skammt­aður. Um það leyti sem við vorum að koma okkur í gall­ann kíkti á okkur stelpa sem nefn­ist Moni. Hún vinnur fyrir Napalm Records, útgáfu­fyr­ir­tækið sem gefur okkur út. Hún höndlar með flest okkar mál og þess vegna var mjög skemmti­legt að setja and­lit við öll tölvu­póst­sam­skiptin. Hún er svona óskap­lega ágæt og hefur farið vel með okkur. Útlit fyrir að við höldum áfram að vinna með Napalm. Þetta er nefni­lega ekki búið.

[caption id="attachment_12737" align="alignnone" width="4896"] Þetta er mikil artí fartí mynd hjá Baldri. Og mik­ill fjöldi fóta af öllum stærðum og gerðum, en aðeins tvö and­lit; Baldur og Bibbi.[/caption]

Og svo á svið. Þetta gigg tókum við nú bara af lífi. Við spil­uðum fastar en venju­lega, sungum hærra og létum eins og ung­lingapönk­hljóm­sveit. Við lentum reyndar í ein­hverju tækni­ves­eni en ágæt­islókal­maður, í sam­vinnu við Flex, kippti því hratt og örugg­lega í lið. Þjóð­verj­inn tók þessu með sínu við­móti, þarna stóðu tæp­lega þús­und manns og með­tóku hvert slag, hvern tón, hverja hend­ingu. En þau hreyfa sig ekk­ert mjög mikið. Þannig er þetta voða mikið í Þýska­landi. Agi. Járnagi. En allir skemmtu sér hið besta og við áttum skemmti­legar sam­ræður við fjölda fólks eftir á. Tvennt kom fær­andi hendi. Annars vegar kona sem hefur fylgt okkur lengi og er búsett hér í borg að ég held. Hún kom með alls­konar dótarí fyrir okkur að árita, átti alls­konar input í þetta og hitt og var almennt skemmti­leg. Hún kom líka með gjafir. En bara handa Þrása. Hann fékk fullan poka af héð­an­lensku sem og íslensku nammi, hvernig sem hún hefur nú náð í það. Þarna leynd­ist sitt­hvað fleira, geisla­diskur með hljóm­sveit frænda hennar og ég veit ekki hvað. En bara handa Þrása. Ekki okkur hinum. Ætli ein­hver sér­stök ástæða sé fyrir því? Hmm... Hin gjöfin kom frá belgískum strák sem hefur elt okkur all­þónokkuð á túrnum. Hann gaf okkur risa­körfu af belgískum bjór. Allt of stóra, en vel þegna vissu­lega. Baldur tók að sér að þakka honum og hellti hann fullan á barnum. Hann var far­inn að ganga á veggi bless­aður. Belginn, ekki Baldur. Vonandi verður hann ekki úti í nótt, hér er nefni­lega skíta­kuldi. Spenn­andi. En bjór­inn, við komum til með að njóta.

Ég fór í sturtu. Mjög lélega sturtu sem skil­aði mér tveimur örstuttum gusum af volgu vatni, en restin var svellköld. Ég er nú ekki viss um að ég hafi skolað sturtu­sápuna alger­lega af mér en mér finnst ég þó frekar hreinn. Hreinar brækur og svo­leiðis, tann­burstun og þetta helsta. Eins og nýr maður. Svo kúkaði ég í kló­sett með svona stalli. Ég hef áður tekið þetta mál fyrir, þessi hel­vítis kló­sett sem eru með vatns­þrónni fremst en láréttum postu­líns­palli í fall­línu. Hvern and­skot­ann á þetta að fyr­ir­stilla? Er þetta til þess að maður geti skoðað það sem niðrúr manni gekk áður en maður skolar því niður. Og svo skilur þetta allt saman eftir sig alls­konar munstur. Ég brjálast! Þetta er verra svona. Og fyrst ég er nú byrj­aður á þessu skulum við aðeins nefna þessi van­þró­uðu blönd­un­ar­tæki sem eru einmitt ekki blönd­un­ar­tæki. Hvaða apa dettur í hug að hafa tvo krana á vask­inum, annan heitan og hinn kaldan? Hvernig á ég að nota þetta? Svo endar maður kul­blár á hægri hönd og rauðsvið­inn á vinstri, það er ekki eins og það sé ósýni­leg og moð­volg buna í miðj­unni. Blönd­un­ar­tæki. Blönd­unar! Tæki sem blanda!

Nei nú verð ég að tóna mig eitt­hvað niður áður en ég eyði­legg lykla­borðið.

Sökum mat­ar­þurrðar fórum við, ég, Flex og Böbbi á kebab-stað í næstu húsa­lengju. Það var góð hug­mynd. Ég er enn að ropa. Risa­drellir með alls­konar gúr­mei-stöffi í og stór kók í gleri. Og franskar. Og tómatsósa. Og majó. Gleðin með þetta var slík að við beindum hinum strák­unum í þessa átt núna rétt áðan. Þeir koma vænt­an­lega rop­andi hingað inn í bíl von bráðar. Við þre­menn­ingar röltum aðeins um hverfið eftir átið, meira kannski til að teygja úr okkur og fá ferskt loft í lungun en til útsýn­is­öfl­unar. Ætli þetta hafi ekki verið 20 mín­útna labb. Og því miður senni­lega mesta lík­ams­rækt mín frá því að túr­inn hófst. Svona næstum því alla­vega. Sumir hafa nú alveg farið út að hlaupa, ég veit til þess að Þráinn og Baldur hafa báðir reynt að hanga í skott­inu á Robert. Og jafn­vel Jón Geir líka, ég man það ekki alveg.

Hér kemur Jón Geir inn í rútu og færir þær fregnir að kebab-stað­ur­inn hafi verið lok­aður. Og raunar að allt sé lokað. Kannski ekk­ert skrýtið, klukkan er 1.49. En samt, föstu­dagur. Í öðrum fréttum er að Baldur ætl­aði að tékka á Belganum, en sá ætl­aði að sofa í bílnum, svona rétt til að athuga hvort hann væri fros­inn í hel. Bíllinn er horf­inn. Og okkar maður var einn á ferð. Bana­meinið verður víst ekki ofkæl­ing en gæti klár­lega orðið annað. Hann ætl­aði víst að hitta okkur aftur í Eind­hoven eftir tvo daga. Sjáum til.

Það er á að giska sjö tíma akstur til Hamburg. Einhvern tím­ann var talað um að við leggðum af stað klukkan tvö, en ég er líka búinn að heyra þrjú og hálf4. Það skiptir svo sem ekki öllu máli, við erum komnir í rút­una og einu gildir hvort hún hreyf­ist eða ekki. Mig grunar að við förum allir snemma að sofa. Hah. Snemma. Snemma á túr­mæli­kvarða. Ég ætla að halda áfram að horfa á Black Mirror, ein­hverja öfga­fyllstu sjón­varps­þætti sem ég hef séð. Ég horfði á fyrstu tvo í nótt. Alger steik og ansi hreint magnað. Jón er eitt­hvað að brasa hérna kringum okkur, hann gerir það oft. Gunni er í koju. Baldur situr gegnt mér og kvartar undan hungri. Ég veit ekki hvar Þráinn er, kannski bara í koj­unni fyrir aftan mig. Robert er nývakn­aður. Flex og Böbbi eru í Manager. Flexi var rek­inn frá Napoli í dag og ráð­inn til Roma. Árið er 2029. Böbbi átti einmitt leik gegn Bochum í dag, en hann stjórnar Dortmund undir þjálf­ara­nafn­inu Stein­grímur J. Sig­fús­son. Hann keypti Kolbein Sig­þórs­son hér rétt áðan á upp­sprengdu verði. Var reyndar ragur til að eyða svona miklum pen­ingum í mann­inn, en fékk gríð­ar­lega hvatn­ingu frá fram­kvæmda­stjóra Roma sem situr við hlið­ina á honum. Menn hafa ofan af fyrir sér með ýmsu, það er ljóst.

En já, þetta er hálfnað. Það er ótrú­legt.

Meist­ara­legt dags­ins: Frábært gigg.

Sköll dags­ins: Napoli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár