Umboðsmaður Alþingis: Árni Sigfússon var vanhæfur

Umboðs­maður Alþingis hefur skilað áliti þess efnis að Árni Sig­fús­son hafi verið van­hæfur til að veita styrki úr Orku­sjóði til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands vegna vensla sinna við for­stjóra hennar, sem er bróðir hans.

Tryggvi Gunnarsson er umboðsmaður Alþingis.
Tryggvi Gunn­ars­son er umboðs­maður Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Umboðs­maður Alþingis hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Árni Sig­fús­son hafi verið van­hæfur til að veita styrki úr Orku­sjóði til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands í fyrra­haust vegna vensla við for­stjóra mið­stöðv­ar­innar, sem er bróðir hans. Hann telur enn fremur að úthlut­anir úr Orku­sjóði í fyrra­haust hafi þar af leið­andi ekki verið í sam­ræmi við lög. Þetta kemur fram í áliti Tryggva Gunn­ars­sonar, umboðs­manns Alþingis, dag­settu 2. mars síð­ast­lið­inn.

Í álit­inu segir: „Umboðs­maður tók fram að hæf­is­reglur stjórn­sýslu­laga ættu við um hæfi nefnd­ar­manna ráð­gjaf­ar­nefndar Orku­sjóðs þegar nefndin gerir til­lögur til ráð­herra um lán­veit­ingar og ein­stakar greiðslur úr Orku­sjóði. Þar sem Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands hefði sótt um styrk úr sjóðnum og fyr­ir­svars­maður hennar væri bróðir for­manns ráð­gjaf­ar­nefnd­ar­innar væri for­mað­ur­inn tengdur fyr­ir­svars­manni aðila máls­ins í skiln­ingi regln­anna og nefnd­ar­maður í þeirri stöðu teld­ist van­hæfur. Umboðs­maður féllst ekki á þær skýr­ingar ráðu­neyt­is­ins að þáttur nefnd­ar­for­manns­ins hefði verið lít­il­fjör­legur í merk­ingu lag­anna og ylli þar með ekki van­hæfi eða félli undir und­an­tekn­ingar frá hæf­is­regl­unum að öðru leyti. Nið­ur­staða umboðs­manns var því sú að for­maður ráð­gjaf­ar­nefndar Orku­sjóðs hefði verið van­hæfur til með­ferðar máls­ins og að hann hefði ekki mátt taka þátt í und­ir­bún­ingi, með­ferð eða úrlausn þess. Þar sem fyrir lá að hann tók þátt í und­ir­bún­ingi til­lagn­anna og sat fund þar sem þær voru afgreiddar taldi umboðs­maður að með­ferð máls­ins hefði ekki verið í sam­ræmi við lög.“

Umboðs­maður Alþingis beinir þeim til­mælum til iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­eyt­is­ins að það hafi þau sjón­ar­mið sem rakin séu í áliti hans fram­vegis í huga í störfum sínum.. Að öðru leyti yrði það að vera verk­efni dóm­stóla að skera úr um hvort ann­markar á máls­með­ferð í máli Valorku, sem kvart­aði til umboðs­manns vegna máls­ins, leiddu til bóta­skyldu af hálfu rík­is­ins.

Ragnheiður Elín skipaði nefndina

Orku­sjóður er í eigu rík­is­ins og er hlut­verk hans að stuðla að hag­kvæmri nýt­ingu orku­linda lands­ins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða sem miða að því að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis. Yfir­um­sjón og ábyrgð með sjóðnum er hjá iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra.

Í des­em­ber 2014 sam­þykkti Alþingi að gera breyt­ingar á lögum um Orkusjóð. Í þeim breyt­ingum fólst meðal ann­ars að Orkuráð var lagt niður en í stað þess á iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra að skipta þriggja manna ráð­gjafa­nefnd til fjög­urra ára sem hefur það hlut­verk að gera til­lögur til ráð­herra um lán­veit­ingar og ein­stakar greiðslur úr Orku­sjóði sam­kvæmt fjár­hags- og greiðslu­á­ætlun sjóðs­ins.

Laga­breyt­ingin tók gildi 1. jan­úar 2015 og í byrjun þess árs skip­aði Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, þrjá ein­stak­linga í ráð­gjafa­nefnd­ina. Þeir eru Árni Sig­fús­son, Franz Viðar Árnason og Halla Hrund Loga­dóttir.

Árni var auk þess skip­aður for­maður nefnd­ar­innar.

Árni sagði umfjöllun vera „ljótan leik“

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að umboðs­maður Alþingis væri með kvörtun fyrir­tæk­is­ins Valorku vegna styrk­veit­ingar Orku­sjóðs til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands í fyrra­haust til með­höndl­unar. Valorka sendi upp­haf­lega kvörtun til iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins vegna styrk­veit­ing­ar­innar þann 24. sept­em­ber 2015 og í fram­hald­inu sendi fyr­ir­tækið kvörtun til umboðs­manns Alþingis.

Frétta­blaðið greindi frá því í okt­o­ber 2015 að mið­stöðin hefði fengið fjórð­ung þeirra styrkja sem Orku­sjóður hafði nýverið úthlutað til alls ell­efu verk­efna í fyrra haust. Í umfjöllun blaðs­ins kom fram að for­maður nefnd­ar­innar sem velur hverjir fá styrki, Árni Sig­fús­son, er bróðir for­stjóra Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands, Þor­steins Inga Sig­fús­sonar. Árni vék ekki sæti þegar fjallað var um styrk­veit­ing­una. Árni kall­aði umfjöllun Frétta­blaðs­ins „ljótan leik“ í sam­tali við Stundina. Hann hafn­aði því að eitt­hvað væri athuga­vert við úthlut­un­ina, enda væri hún til rík­is­stofn­unar, ekki per­sónu­lega til bróður hans.

Valdimar Öss­ur­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Valorku, sem sótti einnig um styrk til Orku­sjóðs en fékk ekki, taldi styrk­veit­ing­una ólög­mæta eins og að henni var staðið. Ástæðan væri sú að Árni og Þor­steinn Ingi væru bræður og þar með væri Árni van­hæfur til að veita styrk til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar. Slík veit­ing stang­ist á við 2. kafla stjórn­sýslu­laga og hljóti því að dæm­ast ómerk, að mati Valdi­mars.

Í 2. kafla stjórn­sýslu­laga segir að nefnd­ar­maður sé van­hæfur til með­ferðar máls ef hann „er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ætt­leið­ingar“ eða ef hann „teng­ist fyr­ir­svars­manni eða umboðs­manni aðila með þeim hætti“. Auk þess telj­ast nefnd­ar­menn van­hæfir ef „að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­drægni hans í efa með réttu“.

Iðnaðar- og við­skipta­ráðu­neytið svar­aði erindi Valorku með bréfi sem sent var til fyr­ir­tæk­is­ins 14. októ­ber 2015. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu sendi Valorka í fram­hald­inu kvörtun til umboðs­manns Alþingis sem sendi í kjöl­farið bréf til ráðu­neyt­is­ins með nokkrum spurn­ingum um málið. Bréf umboðs­manns var sent 3. nóv­em­ber 2015 og því svarað þann 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Hann hefur nú kom­ist að nið­ur­stöðu og birti álit sitt í síð­ustu viku.

Afgerandi niðurstaða

Í áliti sínu segir umboðs­maður að hæf­is­reglur stjórn­sýslu­laga ættu við um hæfi nefnd­ar­manna ráð­gjaf­ar­nefndar Orku­sjóðs þegar hún gerði til­lögur til iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Árni væri því van­hæfur til að veita styrki til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands vegna tengsla sinna við for­stjóra hennar. Hann féllst ekki á skýr­ingar ráðu­neytis í mál­inu um að þáttur Árna hefði verið lít­il­fjör­legur í merk­ingu lag­anna og ylli þar með ekki van­hæfi. „Nið­ur­staða umboðs­manns var því sú að for­maður ráð­gjaf­ar­nefndar Orku­sjóðs hefði verið van­hæfur til með­ferðar máls­ins og að hann hefði ekki mátt taka þátt í und­ir­bún­ingi, með­ferð eða úrlausn þess. Þar sem fyrir lá að hann tók þátt í und­ir­bún­ingi til­lagn­anna og sat fund þar sem þær voru afgreiddar taldi umboðs­maður að með­ferð máls­ins hefði ekki verið í sam­ræmi við lög.“

Umboðs­maður Alþingis fjall­aði einnig um til­kynn­ingu sem birt var á vef­síðu ráðu­neyt­is­ins vegna máls­ins þar sem upp­lýst var um opin­bera styrki til Valorku án þess að birtar væru upp­lýs­ingar um sam­bæri­legar styrk­veit­ingar til ann­arra aðila sem störf­uðu að verk­efnum á sama sviði. Í áliti umboðs­manns segir: „Umboðs­maður fékk ekki séð að til­kynn­ingin hefði verið í nægj­an­legu sam­hengi við frétt Frétta­blaðs­ins um vensl for­manns ráð­gjaf­ar­nefnd­ar­innar og for­stjóra Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar sem átti að vera til­efni hennar og aðra gagn­rýni fyr­ir­svars­manns A ehf. sem þar kom fram. Hann taldi því að ráðu­neytið hefði ekki sýnt fram á að fréttin, og/eða fyr­ir­spurn Frétta­blaðs­ins til ráðu­neyt­is­ins af því til­efni, hefði veitt ráðu­neyt­inu rétt­mætt til­efni til að hafa frum­kvæði að því að birta umræddar upp­lýs­ingar með þeim hætti sem gert var. Efni til­kynn­ing­ar­innar hefði að þessu leyti ekki verið í sam­ræmi við vand­aða stjórn­sýslu­hætti.
Umboðs­maður beindi þeim til­mælum til ráðu­neyt­is­ins að það hefði þau sjón­ar­mið sem rakin væru í álit­inu fram­vegis í huga í störfum sínum. Að öðru leyti yrði það að vera verk­efni dóm­stóla að skera úr um hvort ann­markar á máls­með­ferð í máli A ehf. leiddu til bóta­skyldu af hálfu rík­is­ins, teldi félagið til­efni til slíks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár