Verðbólgudraugurinn hleður batteríin

Verð­bólga hefur hald­ist lág und­an­farin tvö ár í sögu­legum sam­an­burði. Hún hefur hald­ist fyrir neðan 2,5 pró­sent mark­mið, en nú eru blikur á lofti.

Verð­bólga mælist nú 1,8 pró­sent og hefur verið undir 2,5 pró­sent lög­bundnu verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands í meira en átján mán­uði. Svo langt tíma­bil undir mark­miði þekk­ist varla í hag­sög­unni í seinni tíð.

Stöðugleiki og alþjóðamarkaðir

En hvers vegna hefur verð­bólga verið svona lág, sé miðað við stöðu mála hér á landi? Fjár­magns­höftin eru lyk­il­at­riði hvað þessa stöðu varðar, þar sem þau hafa gert Seðla­bank­anum það kleift að koma á stöð­ug­leika í geng­is­málum, og stýra þannig hag­kerf­inu með áhrifa­meiri hætti en ella væri hægt. Þetta hefur í reynd skipt sköpum, sam­hliða sífellt meira gjald­eyr­is­inn­streymi, meðal ann­ars vegna vaxtar í ferða­þjón­ust­unni. 

Þá hefur hrá­vöru­verð einnig sett mikið strik í reikn­ing­inn, en verð á olíu hefur lækkað um ríf­lega 60 pró­sent á síð­ustu fjórtán mán­uðum. Verðið á hrá­olíu var um tíma í fyrra 110 Banda­ríkja­dalir á tunnu en það hefur sveifl­ast í kringum 45 Banda­ríkja­dali að und­an­förnu. Þetta hefur leitt til verð­lækk­unar á ýmsum öðrum vörum, enda olía grund­vall­ar­for­senda í marg­vís­legum rekstri og fram­leiðslu. Þetta hjálpar til við að halda verð­bólg­unni í skefjum.

Ekki búist við óstöðuguleika á genginu

Ekki er búist við því að þau skref sem stigin verða á næst­unni, þegar kemur að losun fjár­magns­hafta, muni valda óstöð­ug­leika á gjald­eyr­is­mark­aði, að því er fram kom í máli Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra, þegar hann kynnti sam­komu­lag við kröfu­hafa hinna föllnu banka og greiðslur slita­búa með svoköll­uðu stöð­ug­leika­fram­lagi, til að liðka fyrir gerð nauða­samn­inga til að gera und­an­þágu frá fjár­magns­höftum mögu­lega. Samtals munu slita­búin greiða 379 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag, en seðla­bank­inn metur stöðu mála þannig að fjár­mál­stöð­ug­leika sé ekki ógnað með veit­ingu und­an­þágu. Heildar umfang stöð­ug­leika­fram­lag, að öllu með­töldu, er talið nema tæp­lega 500 millj­örðum króna. Ljóst er að skulda­staða rík­is­sjóðs mun batna stór­lega og miklum þrýst­ingi á gengi krón­unnar verður aflétt með þess­ari aðgerð, og öðrum aðgerðum sem eru hluti af heild­ar­á­ætlun um losun fjár­magns­hafta.

Launaþróun gæti vakið drauginn

Í yfir­lýs­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands, frá vaxta­á­kvörð­un­ar­degi 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, kemur fram að verð­lags­þróun á alþjóða­mörk­uðum, og styrk­ing krón­unnar, hafi hægt á vaxta­hækk­unum. Í grunn­inn hafi kjara­samn­ingar, sem hafa falið í sér 20 til 30 pró­sent launa­hækk­anir á næstu þremur árum, ýtt undir það að verð­bólga muni aukast mikið og vextir hækka sömu­leiðis. Ekki sé inni­stæða fyrir svo miklum og hröðum hækk­unum launa. „Verð­bólgu­horfur til lengri tíma litið hafa því ekki breyst umtals­vert þótt nær­horfur séu betri. Nið­ur­staða kjara­samn­inga og til­tölu­lega háar verð­bólgu­vænt­ingar benda eftir sem áður til þess að verð­bólga muni aukast á næstu miss­erum. Á móti kemur lækkun alþjóð­legs vöru­verðs og tæp­lega 4% hækkun á gengi krón­unnar frá síð­ustu vaxta­á­kvörðun þrátt fyrir mikil gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans [...] Aukist verð­bólga í fram­haldi af kjara­samn­ingum svipað og spár benda til mun pen­inga­stefnu­nefndin þurfa að hækka vexti frekar eigi verð­bólgu­mark­miðið að nást til lengri tíma litið. Hve mikið og hve hratt ræðst af fram­vind­unni og því hvernig greið­ist úr þeirri óvissu sem nú er til staðar. Sterkari króna og alþjóð­leg verð­lags­þróun hefur gefið svig­rúm til að hækka vexti aðeins hægar en áður var talið nauð­syn­legt en breytir ekki þörf fyrir aukið aðhald á næstu miss­erum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Verður gengið hægt um gleðinnar dyr?

Hag­stjórnin verður krefj­andi á næstu miss­erum, þrátt fyrir að það verði að telj­ast mik­ill léttir fyrir hag­kerfið ef tekst að losa um fjár­magns­höft og stór­bæta skulda­stöðu rík­is­sjóðs, sam­hliða því að vandi vegna slita­búa föllnu bank­anna og aflandskróna verður leystur. Á innan við þremur mán­uðum hefur verið leyst end­an­lega úr stórum málum sem glím hefur verið við frá hruni. Icesave-málið er úr sög­unni, skuldir við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn hafa verið greiddar upp og nú hefur lausn náðst í greiðslu­jafn­að­ar­vanda sem snéri að slita­bú­unum, eins og áður segir. Óhætt er að segja, að allt séu þetta jákvæðar fréttir sem miklu breyta til góðs.

Bjarni Bene­dikts­sonar líkti þessum tíma­mótum við það, að sól­ar­geisla væri nú hleypt inn í hag­kerfið. Um margt virð­ast það orð að sönnu, en hætt­urnar eru þó fyrir hendi, einkum og sér í lagi þegar kemur að verð­bólgu­þrýst­ingi inn­an­lands.

Þrýst­ingur til hækk­unar verð­bólgu er tölu­verður vegna launa­hækk­ana, og má nefna hækkun á opin­berri þjón­ustu sveit­ar­fé­laga sér­stak­lega sem þátt sem fólk gæti fundið fyrir á næstu miss­erum. Launa­kostn­aður er stór hluti af rekstr­ar­kostn­aði sveit­ar­fé­laga, og því munu mörg sveit­ar­fé­lög þurfa að bregð­ast við með gjald­skrár­hækk­unum og aukn­ingu tekna, til þess að ná endum saman. Svigrúm er ekki mikið til ann­ars.

Alþjóð­leg þróun gæti auk þess stuðlað að hækkun verð­bólg­unnar, og er nær­tæk­ast að nefna olí­una í þeim efnum. Ef hún fer að hækka aftur, þá gæti það skilað sér fljótt í hærra olíu­verði á Íslandi og einnig í hærra verði á öðrum inn­fluttum vörum, í ljósi þess hve mikil áhrif olíu­verðið hefur á und­ir­liggj­andi kostnað í ýmsum geirum. Ef að olíu­verð hækkar um tíu pró­sent, svo dæmi sé tekið, þá gæti það komið á versta tíma fyrir aðstæður hér á landi þegar inn­lendur kostn­aður er að hækka hratt. Samspil inn­lendrar og erlendrar þró­unar gæti skapað tölu­vert krefj­andi aðstæður á næst­unni, eins og Seðla­bank­inn hefur raunar bent á. En það er ekk­ert nýtt fyrir íslenska hag­kerfið, sem þekkir þá stöðu vel, þegar verð­bólgu­draug­ur­inn er byrj­aður að hlaða batt­er­íin. Hins vegar er vandi að spá fyrir um hvernig verð­bólgu­aukn­ingin kemur fram, og hvenær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár