Ný könnun: Fylgi Pírata minnkar en fylgi Sjálfstæðisflokks eykst

Píratar njóta fylgis 33 pró­senta sam­kvæmt nýrri könnun MMR, en það mælist tveimur pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu könnun MMR.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eykst lít­il­lega milli kann­ana, fer úr 33,2% í 34,4. Það er vegna þess að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins jókst milli kann­ana, fór úr 23,1% í síð­ustu könnun í 25,3% nú. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins minnk­aði hins vegar, fór úr 12,2% í 11,4%.

Sam­fylk­ingin fer upp fyrir 10% og mælist nú með 10,6% stuðn­ing en í síð­ustu könnun var stuðn­ing­ur­inn 9,6%. Vinstri-græn fara örlítið niður á við, í 9,6% úr 10,2% í síð­ustu könnun.

Björt fram­tíð mælist með 5,8% og nær því aftur upp fyrir fimm pró­senta þrösk­uld­inn, en í síð­ustu könnun MMR fór fylgi flokks­ins niður í 4,4%.

fylgi stjórn­mála­flokka í sept­em­ber 2015

|

Create infographics

Allar breyt­ingar á fylgi flokk­anna milli kann­ana eru hins vegar innan vik­marka, sem eru allt að 3,1% í hvora átt í könnun af þess­ari stærð, þar sem um 1000 manns eru spurðir. Það þýðir að lík­legt raun­veru­legt fylgi flokka er á bili sem er 3,1% lægra til hærra en nið­ur­stöð­urnar gefa til kynna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár