Undirskriftasöfnun Kára sú sjötta stærsta í sögunni

Yfir 48 þús­und manns hafa nú skrifað undir und­ir­skrifta­söfnun Kára Stef­áns­sonar um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Söfnunin er þar með komin í sjötta sæti yfir stærstu und­ir­skrifta­safn­anir á Íslandi, sé tekið mið af listum þar sem stærstu safn­an­irnar hafa verið teknar saman.

Fimm und­ir­skrifta­safn­anir hafa verið stærri en sú sem nú er í gangi. Í fimmta sæti er nýleg­asta stóra söfn­unin, sem fór fram undir nafn­inu Þjóð­ar­eign í fyrra. Ríflega 51 þús­und manns skrif­uðu undir áskorun á for­seta Íslands að vísa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hverjum þeim lögum sem Alþingi sam­þykkir þar sem fisk­veiði­auð­lindum væri ráð­stafað til lengri tíma en eins árs, á meðan ekk­ert ákvæði um þjóð­ar­eign á auð­lindum er í stjórn­ar­skrá.

Árið 2014 skrif­uðu svo tæp­lega 54 þús­und manns undir kröfu um að áfram­hald við­ræðna um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu yrði sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Í þriðja sæti yfir stærstu und­ir­skrifta­safn­an­irnar er und­ir­skrifta­söfn­unin Varið land, frá árinu 1974. Rúmlega 55.500 manns skrif­uðu undir þá und­ir­skrifta­söfnun og hún sker sig úr í hópi þess­ara vin­sæl­ustu safn­ana að því leyti að hún fór eðli máls­ins sam­kvæmt ekki fram á inter­net­inu. Mark­miðið með henni var að sýna stuðn­ing við veru banda­ríska varn­ar­liðs­ins á Íslandi.

Rúmlega 56 þús­und skrif­uðu undir áskorun til Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands, um að hann setti Icesave samn­ing númer 2 í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2010. Það gerði hann á end­anum, sem mark­aði tíma­mót í lýð­veld­is­sög­unni, enda í fyrsta sinn sem þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fór fram eftir beit­ingu mál­skots­réttar for­seta.

Lang­fjöl­menn­asta und­ir­skrifta­söfn­unin á list­anum snérist um að halda Reykja­vík­ur­flug­velli í Vatns­mýr­inni og hún hét Hjartað í Vatns­mýr­inni. Undir hana skrifðu tæp­lega 70 þús­und manns árið 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár