Féllst á annað sætið en fékk ekki afsökunarbeiðni: „Því fór sem fór“

Benedikt Jóhann­es­son fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar segir rangt að hann hafi hafnað 2. sæti á lista flokks­ins. Þvert á móti hafi hann fall­ist á beiðn­ina, en einnig gert kröfu um afsök­un­ar­beiðni, sem hafi ekki verið í boði.

Benedikt Jóhannesson fyrrverandi fjármálaráðherra og fyrsti formaður Viðreisnar.
Benedikt Jóhann­es­son fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og fyrsti for­maður Við­reisnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar segir að það sé rangt sem Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir núver­andi for­maður flokks­ins sagði við mbl.is fyrr í dag, að hann hefði hafnað því að taka 2. sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

„Þvert á móti féllst ég á þá beiðni for­manns­ins,“ segir Benedikt, en útskýrir síðan, í færslu á Facebook, að hann hafi talið það „eðli­legt og nauð­syn­legt að áður yrði gert út um þau leið­inda­mál sem hófust á ákvörðun upp­still­ing­ar­nefndar flokks­ins að bjóða mér neðsta sæti list­ans.“[links]

Benedikt óskaði þannig eftir því að fá afsök­un­ar­beiðni frá þeim sem hefðu komið fram við hann með „óvið­ur­kvæmi­legum hætti“ í þessu máli.

„Ég tók fram að þetta væri ein­ungis til þess að ljúka þessum málum af minni hálfu og leggja grunn að góðu sam­starfi. Ég myndi ekki gera þær afsak­anir opin­berar. Þor­gerður svar­aði eftir umhugsun að slík per­sónu­leg afsök­un­ar­beiðni væri ekki í boði. Því fór sem fór,“ segir Benedikt í færslu sinni á Facebook.

Hann seg­ist hafa átt ýmis sam­töl við for­mann flokks­ins, en þau hafi verið sam­mála um að hafa öll sam­skipti þeirra á milli trún­að­ar­mál. „Ástæða þess að ég tala nú um þessi mál er að Þor­gerður kýs að ræða þau opin­ber­lega,“ skrifar Benedikt.

[adspot]

Í við­tali við mbl.is í dag sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir að Benedikt hefði ekki þegið sætið, eftir að hafa verið boðið það. Ekki sagði þar að hann hefði þáð boðið, en gert kröfu um afsök­un­ar­beiðni, eins og hann sjálfur segir frá.

„Áður en upp­still­ing­ar­nefnd­in skil­aði inn lista var rætt við Bene­dikt og hon­um boðið annað sæti í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu sem hann þáði ekki,“ sagði Þor­gerður Katrín við mbl.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár