Hryðjuverkamaðurinn í Nice nafngreindur

Lögreglan rannsakar vettvanginn í morgun. Sjá má kerrur sem hafa verið skildar eftir í öngþveitinu í gærkvöldi.
Lög­reglan rann­sakar vett­vang­inn í morgun. Sjá má kerrur sem hafa verið skildar eftir í öng­þveit­inu í gær­kvöldi. Mynd: EPA

Búið er að nafn­greina mann­inn sem myrti að minnsta kosti 84 í Nice í gær­kvöldi. Hann hét Mohamed Lahouaiej Bouhlel og var 31 árs gam­all Frakki sem átti rætur að rekja til Túnis. Frá þessu var greint á Sky News fyrir skömmu.

Maðurinn keyrði vöru­bíl inn í marg­menni við strönd­ina í Nice, en fólkið hafði safn­ast saman til að fagna Bastillu­deg­inum, þjóð­há­tíð­ar­degi Frakk­lands. Bíllinn keyrði um tvo kíló­metra inn í mann­hafið á miklum hraða og mað­ur­inn er sagður hafa sveigt bíl­inn fram og til baka til að valda sem mestum skaða. Hann var að lokum skot­inn til bana af lög­regl­unni.

Til við­bótar við þá 84 sem eru látnir eru 18 alvar­lega slas­aðir á spít­ala. Sky News greinir einnig frá því að að minnsta kosti 10 börn séu á meðal hinna látnu, og að 50 börn séu á spít­ala.

Íslensk stjórn­völd hafa sent sam­úð­ar­kveðjur til Frakk­lands. Þá hefur utan­rík­is­ráðu­neytið beint því til Íslend­inga í Nice og aðstand­enda þeirra að Rauði kross­inn veiti sál­rænan stuðn­ing vegna atburð­anna. Bent er á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og að ef hringt er frá útlöndum sé núm­erið +354 5801710.

Þetta er þriðja mann­skæða hryðju­verka­árásin sem gerð er í Frakk­landi á und­an­förnum tæpum tveimur árum.

Þann 7. jan­úar 2015 var ráð­ist inn í höf­uð­stöðv­ar skop­­mynda­­rits­ins Charlie Hebdo. Þar voru tveir lög­­­reglu­­menn og tíu starfs­­menn blaðs­ins myrt­­ir. Árás­­ar­­menn­irnir voru tveir bræð­­ur, Said Kou­achi og Cherif Kou­achi. Þeir réð­ust sér­­stak­­lega á blað­ið, og ákveðna starfs­­menn þess, vegna teikn­inga sem það hafði birt af Múhammeð spá­­manni. Nokkrar árásir í við­bót sem tengd­ust fylgdu í kjöl­far­ið, meðal ann­ars við bæna­hús Gyð­inga í Par­ís. Alls lét­ust 17 manns í árás­un­um, sem voru þá þær mann­skæð­ustu sem framdar höfðu verið í París frá árinu 1961.

13. nóv­em­ber 2015 var framin röð hryðju­verka í París og Sain­t-Den­is, þar sem þjóð­ar­leik­vangur Frakka, Stade De France, er. Mann­skæð­asta árásin var í Bataclan-­leik­hús­inu þar sem skotið var á áhorf­endur á tón­leikum banda­rísku hljóm­sveit­ar­innar Eag­les of Death Metal. Alls lét­ust 130 manns í árás­unum og hund­ruðir særð­ust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár