Vopnaburður lögreglunnar hefur verið mikið hitamál í Íslensku samfélagi síðustu vikur og mánuði. Spurningar um hvar lögreglan á að geyma skotvopn, hver á að hafa aðgang að þeim, með hvaða hætti er best að nálgast þær og hvenær er réttlætanlegt að nota þær eru spurningar sem nú brenna á mörgum. Reynum við sem samfélag eftir bestu getu að svara þeim. Samt hefur ríkt ríkt þögn frá þeim aðilum sem í lýðræðislegu samfélagi ættu að fagna allri umræðu um málið. En þeir aðilar eru lögreglan og Innanríkisráðneytið,sem hefur yfirumsjón með lögreglunni.
Öll viljum við svör við spurningum sem brenna á okkur í þessu erfiða máli, því þarna erum við að ræða grundvallar breytingar á því hvernig hin almenni borgari sér lögregluna. Persónulega væri ég til í að fá svör við fjölda spurninga sem brenna á mér um þetta mál og ég veit að ég er ekki sá eini sem langar að vita svör við þessum spurningum um framtíð sambands hins almenna borgara við hin almenna lögreglumann hér á landi. Sumsé svör við hvort við viljum sjá lögreglu sem á auðvelt með að ná í vopn og þar með getur mögulega átt það í hættu á að nota þau þegar ekki á við eða viljum við lögreglu sem þarf sérstaklega að kalla eftir því að vopnum sé komið til þeirra sem lengir þá bið tímann þar til lögrelgan getur brugðist við?
Hvernig virka þessir vopnakassar sem eru í bílunum? Hversu auðvelt er fyrir lögreglumann að opna kassann án samþykkis yfirmanns síns? Hveru oft er breytt um aðgangsorð á kassanum og hversu líklegt er það að yfirmaður sé að fara neita almennum lögreglumanni að nota skotvopn eftir að beiðni hefur borist? Hvenær á síðustu 10 árum hefur sú staða komið upp að lögreglan hafi ekki getað beðið eftir skotvopnum frá sérsveitinni?
Þessar spurningar og fleiri brenna á mér og samfélaginu í heild en æpandi þögnin sem heyrist frá lögreglu og ráðuneyti gerir það að verkum að við fáum ekki svör. Milli lögreglu og borgara þarf að ríkja traust og lögreglan þarf að vera í virku samtali við borgara til þess að tryggja það traust. Óska ég því hér með eftir því að lögreglan og ráðuneytið svari þessum spurningum með öðru en bara því að „þetta eigi sér langan aðdraganda og að ekki séu um að ræða aukingu i vopnabúri lögreglunar“. Með samræðunni einni getur nauðsynlegt traust ríkt á milli lögrelunnar og borgaranna sem hún á að vernda.
Höfundur er fyrrverandi formaður Hallveigar - Ungra Jafnaðarmanna í Reykjavík. Grein þessi byggir á persónulegum skoðunum höfundar og endurspeglar ekki samþykkta stefnu félagsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir