Lengsti göngutími frá bílastæðahúsi í miðbænum er þrjár mínútur

Lengsta mögu­lega vega­lengd sem fólk þarf að ganga frá bíl sínum til að kom­ast í alla verslun og þjón­ustu á Lauga­veg­inum er 350 metrar ef lagt er í bíla­stæða­húsi, sem jafn­gildir um þriggja mín­útna gangi miðað við með­al­göngu­hraða.

Þetta kemur fram í úttekt sem Andri Gunnar Lyngberg, arki­tekt hjá Trípólí arki­tektum, og Björn Teitsson upp­lýs­inga­full­trúi unnu.

Í úttekt­inni var lengsta mögu­lega göngu­fjar­lægð sem ein­stak­lingur þarf til að koma sér frá bíla­stæði og að verslun könnuð, ann­ars vegar á Lauga­vegi og hins vegar í Kringl­unni. Munurinn á göngu­lengd­inni er 140 metrar, eða um ein mín­úta, sam­kvæmt úttekt­inni.

[caption id="attachment_32729" align="alignnone" width="1754"] Bíla­stæða­húsin í mið­borg­inni eru merkt með upp­hafs­stöfum þeirra. T er Trað­ar­kots­sund, B Berg­staða­stræti, V Vita­stígur og S Snorra­braut.[/caption]

Lengsta mögu­lega göngu­vega­lengd á Lauga­vegi er 350 metrar, en sú vega­lengd gæti til dæmis komið til ef öku­maður leggur bíl við Berg­staða­stræti en á leið í verslun á horni Frakka­stígs og Lauga­vegs.

Í sam­an­burði við Kringl­una er lengsta mögu­lega vega­lengd frá bíla­stæði og að verslun 210 metrar. Það gæti til dæmis verið ef öku­maður leggur í horni bíla­stæðis hvorum megin við Kringl­una sem er, en þurfi að kom­ast í Vín­búð­ina í Kringl­unni.

[caption id="attachment_32733" align="alignnone" width="1754"] Lengsta mögu­lega vega­lengd frá bíla­stæði og að verslun í Kringl­unni.[/caption]

Höfundar úttekt­ar­innar segja að hún sýni fram á það að mál­flutn­ingur Samtaka kaup­manna og fast­eigna­eig­enda við Laugaveg um að tak­mark­aður bíla­stæða­fjöldi eða lengd bíla­stæða frá verslun hafi slæm áhrif á við­skipti stand­ist ekki skoðun. „Munurinn á göngu­vega­lengd er ein­ungis ein mín­úta í versta falli. Að búast við að fá bíla­stæði við hlið versl­unar á Lauga­vegi er eins og að búast við því að geta ekið bíl upp að verslun inni í Kringl­unni miðri. Sem er aug­ljós­lega fjar­stætt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár