Andvíg Borgarlínu en fylgjandi innihaldi hennar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík leggst gegn Borg­ar­línu en lofar sér­a­kreinum, betri skýlum og tíð­ari ferðum. Fram­bjóð­andi í 2. sæti segir óábyrgt að taka afstöðu með eða á móti Borg­ar­línu núna. „Hentar stjórn­mála­mönnum að hafa þetta loðið,“ segir sam­göngu­verk­fræð­ingur.

Eyþór Arnalds
Eyþór Arnalds Leiðtogi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni er and­vígur Borg­ar­línu, en fram­bjóð­and­inn í öðru sæti segir óábyrgt að gera Borg­ar­línu að kosn­inga­máli. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Afstaða Sjálf­stæð­is­flokks­ins til Borg­ar­línu, nýs kerfis almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, er óljós þegar mán­uður er til kosn­inga. Sveit­ar­stjórn­ar­menn flokks­ins í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur styðja verk­efnið, en fram­bjóð­end­urnir í borg­inni leggj­ast gegn því eða taka ekki afstöðu. Borg­ar­full­trúar flokks­ins greiddu atkvæði gegn verk­efn­inu í borg­ar­stjórn, en aðeins einn þeirra er enn í fram­boði í kosn­ing­unum í vor. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir rík­inu snið­inn þröngur stakkur til að fjár­magna Borg­ar­línu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í borg­inni kynnti kosn­inga­lof­orð sín fyrr í mán­uð­inum, en ekki var minnst á Borg­ar­línu í kafl­anum um sam­göngur. Hins vegar snúa lof­orðin að bættum Strætó, sér­a­kreinum fyrir vagna og tíð­ari ferðir, sem allt eru meg­in­at­riði í Borg­ar­línu­verk­efn­inu. „Þau eru stór en þau eru raunsæ og þau borga sig sjálf,“ sagði Eyþór Arnalds, odd­viti list­ans, um kosn­inga­lof­orðin. Hann hefur gagn­rýnt Borg­ar­línu fyrir að vera dýra og þung­lama­lega lausn. „Ég vil hverfa frá draum­sýnum um lesta- og borg­ar­línu­kerfi,“ sagði hann í grein í Morg­un­blað­inu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Var and­vígur frek­ari upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis fyrir kosn­ingar en gagn­rýnir nú meiri­hlut­ann fyrir að hunsa vand­ann

Eyþór Arnalds lýsti sig ger­sam­lega mót­fall­inn auk­inni áherslu á upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis í Reykja­vík í kosn­inga­prófi RÚV í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Nú leggur hann fram bók­anir þar sem meiri­hlut­inn er gagn­rýndur fyrir að „hunsa mála­flokk­inn“.
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár