Fjöldinn ekki aðalatriðið heldur gæðin

Ráðherra ferða­mála segir að fjöldi ferða­manna skipti ekki öllu, heldur frekar hvernig gangi að veita góða þjón­ustu og stuðla að meiri dreif­ingu ferða­manna um landið.

Fjöldi ferða­manna hér á landi skiptir ekki öllu máli, heldur frekar hvernig upp­lifun ferða­manna er, hvernig þeir ferð­ist um landið og hvernig gangi að veita þjón­ustu heilt yfir.

Þetta kom fram í við­tali RÚV við Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og nýsköp­unar, í kvöld.

Í apríl síð­ast­liðnum fækk­aði ferða­mönnum um fjögur pró­sent, miðað við sama mán­uði í fyrra, og er það í fyrsta skipti síðan árið 2010 sem verður fækkun milli ára í ferða­þjón­ustu, sé mið tekið af fjölda far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl. Fækkunin nemur um sex þús­und far­þegum, en í máli Þórdísar Kol­brúnar kom fram að erfitt væri að ráða mikið í stöð­una þennan eina mánuð.

Frekar þyrfti að koma í ljós hvernig næstu mán­uðir myndu þró­ast.

Flestar spár hafa gert ráð fyrir áfram­hald­andi vexti í ferða­þjón­ustu, en í fyrra var fjöldi ferða­manna um 2,3 millj­ónir manna. Búist var við því að fjöld­inn gæti farið í 2,5 til 3 millj­ónir á þessu ári.

Und­an­farin ár hefur vöxt­ur­inn í ferða­þjónstu verið ævin­týri lík­astur. Árið 2010 komu um 450 þús­und ferða­menn til lands­ins og hefur fjöld­inn því marg­fald­ast á skömmum tíma. Ferða­þjón­usta er orðin lang­sam­lega fyr­ir­ferða­mesti útflutn­ings­at­vinnu­vegur lands­ins, með um 570 millj­arða millj­arða gjald­eyr­is­tekjur á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár