Nýjar siðareglur eiga að skerpa á heilindum í störfum hjá hinu opinbera

Rík­is­stjórn hefur sam­þykkt end­ur­skoðun siða­reglna ráð­herra og hyggst skipa starfs­hóp sem fer yfir end­ur­skoðun á siða­reglum.

Rík­is­stjórnin fjall­aði á fundi sínum í morgun um siða­reglur ráð­herra, en mark­miðið með end­ur­skoðun regln­anna verður að skerpa á hags­muna­skrán­ingu ráð­herra með það í huga að skýr aðskiln­aður verði milli almanna- og sér­hags­muna, auk þess sem skerpt verður á því hvernig megi inn­leiða „heil­indi“ í starfi hjá hinu opin­bera, í víð­ara sam­hengi.

Þetta herma heim­ildir Kjarnans, en rík­is­stjórnin til­kynnti um það í dag, að siða­reglur yrðu teknar til end­ur­skoð­unar.

Nú eru í gildi siða­reglur ráð­herra nr. 190/2017 og hafa þær ekki tekið miklum efn­is­legum breyt­ingum frá því þær voru fyrst gefnar út vorið 2011, að því er segir í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni.

Ákveðið var á fund­inum að for­sæt­is­ráð­herra myndi kalla til utan­að­kom­andi sér­fræð­inga til ráð­gjafar „ekki ein­ungis varð­andi siða­reglur ráð­herra heldur einnig varð­andi heil­indi í opin­berum störfum í víð­ara sam­hengi.“

Ráðgert er að setja á fót starfs­hóp sem mun ráð­leggja og aðstoða við að ná fram eft­ir­far­andi þáttum úr stjórn­ar­sátt­mála: „Rík­is­stjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu. Einn þáttur í því er að yfir­fara reglur um hags­muna­skrán­ingu bæði ráð­herra og þing­manna með hlið­sjón af ábend­ingum og alþjóð­legum við­miðum. Annar þáttur er breyt­ingar á lögum sem varða vernd upp­ljóstr­ara og umbætur í umhverfi stjórn­sýslu og við­skipta, meðal ann­ars í takt við ábend­ingar alþjóða­stofn­ana.“

Þá verður gætt að lög­bundnu sam­ráði við Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands, segir í til­kynn­ing­unni.

Í regl­unum er meðal ann­ars vikið að hags­muna­skrán­ingu með þessum orðum:

„2. grein hags­muna­tengsl og hags­muna­á­rekstrar

1. Ráðherra forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar og gætir þess að per­sónu­leg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín. Takist honum ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá.

2. Ráðherra upp­lýsir um fjár­hags­leg hags­muna­tengsl eða önnur slík tengsl sem valdið geta hags­muna­á­rekstum með því að fylla út eyðu­blað á vegum skrif­stofu Alþingis, sbr. reglur um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum alþing­is­manna og trún­að­ar­störfum utan þings. For­sæt­is­ráð­herra getur í sam­ráði við rík­is­stjórn ákveðið að kalla með skipu­lögðum hætti eftir frek­ari upp­lýs­ingum um hags­muna­tengsl ráð­herra sem birtar yrðu almenn­ingi.

3. Ráðherra beitir sér fyrir því innan ráðu­neytis og þeirra stofn­ana sem undir það heyra að tekið sé á hags­muna­á­rekstrum strax og þeir koma upp og hann fær vit­neskju þar um. Þá skal hann beita sér fyrir því að starfs­fólk sé sér með­vitað um mögu­lega hags­muna­á­rekstra og leiðir til að koma í veg fyrir þá.“

Gert er ráð fyrir að starfs­hóp­ur­inn skili skýrslu til for­sæt­is­ráð­herra eigi síðar en 1. sept­em­ber 2018, og verði þá í kjöl­farið skerpt á áherslum sem eiga að tryggja skýran aðskilnað sér­hags­muna frá almanna­hags­munum innan rík­is­stjórn­ar­innar og hins opin­bera.

Rík­is­stjórnin mun stað­festa fyrir sitt leyti og starfa eftir fram­an­greindum siða­reglum ráð­herra á meðan unnið er að end­ur­skoðun sam­kvæmt fram­an­greindu, segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár