Höfundur Matador þáttanna látin – „Maður er ekkert merkilegur af því maður er gamall“

Lise Nørgaard, höf­undur Matador þátt­anna, er látin. Borgþór Arn­gríms­son fer yfir ævi rit­höf­und­ar­ins sem Danir líta nán­ast á sem þjóð­ar­eign.

Úr sjónsvarpsþættinum Matador
Úr sjón­svarps­þætt­inum Matador Mynd: Billetbladet

Danski rit­höf­und­ur­inn og blaða­konan Lise Nørgaard er látin 105 ára að aldri. Flestir kann­ast lík­lega við hana sem höf­und sjón­varps­þátt­anna Matador. Hún taldi sjálf önnur rit­störf sín merk­ari en sjón­varps­hand­ritin. Þegar Lise Nørgaard varð hund­rað ára birt­ist hér í Kjarn­anum umfjöllun um hana. Ummælin í fyr­ir­sögn­inni eru úr þeirri umfjöllun.

Danir líta á hana nán­ast sem þjóð­ar­eign, kon­una sem átti hug­mynd­ina að og skrif­aði að stórum hluta hand­rit, Mata­dor, lang þekktasta og vin­sælasta sjón­varps­mynda­mynda­flokks sem Danir hafa fram­leitt. En saga Lise Nørgaard er miklu meira en bara Mata­dor.

[adspot]Þegar stúlkan, sem síðar fékk nafn­ið Elise, skaust í heim­inn 14. júní 1917 gat faðir henn­ar, kaup­mað­ur­inn Harry Alex­and­er Jen­sen, ekki leynt von­brigðum sín­um. Hann hafði von­ast eftir syni, sem með tíð og tíma gæti tekið við fyr­ir­tæk­inu sem, að hans mati, væri ekki kven­manns­verk. Ekki þýddi þó að deila við dóm­ar­ann. Barn­ið, sem eig­in­konan Olga Sofie Tønder, hafði alið honum var „kun en pige“. Sautján mán­uðum síðar fædd­ist þeim hjónum önnur dótt­ir, sem var skírð Gerda, hún lést 2009. Árið 1920 fjölg­aði enn í fjöl­skyld­unni, þá fædd­ist son­ur­inn Kai. Hann fet­aði í fót­spor föð­ur­ins, varð kaup­maður og síðar fram­kvæmda­stjóri, hann lést fyrr á þessu ári. Systk­inin þrjú, sem alla tíð voru mjög náin fædd­ust í Hró­arskeldu og ólust þar upp. Móðir þeirra, Olga Sofie hafði, áður en elsta barn­ið, Elise, sem síðar breytti nafn­inu í Lise, fædd­ist, átt og rekið fata­versl­un. Hún seldi versl­un­ina skömmu eftir að dóttir­in Gerda fædd­ist og sinnti eftir það heim­il­inu. Í end­ur­minn­ingum sínum seg­ir Lise, að hún sjálf hafi frá upp­hafi verið ákveðin í að hús­móð­ur­hlut­verk­ið, og það að vera fjár­hags­lega háð eig­in­manni, skyldi ekki verða sitt hlut­skipt­i.

Send á hús­mæðra­skóla

Fjöl­skyldu­fað­ir­inn var mjög stjórn­sam­ur, hús­bóndi á sínu heim­ili eins og Lise hefur orðað það. Hann lagði mikla áherslu það við börnin að þau skyldu ætíð leggja sig fram við allt sem þau tækju sér fyrir hend­ur. Við mat­ar­borðið hvatti hann börnin til að segja frá því sem gerst hefði þann dag­inn og Lise segir í end­ur­minn­ingum sínum að hann hafi lagt áherslu á að frá­sögnin væri skemmti­leg og „þar lærði ég að blanda saman gamni og alvöru og með því móti heldur maður athygl­inn­i.“ Fað­ir­inn ákvað,að sögn Lise, að nám við Hús­stjórn­ar­skól­ann í Sorø, væri prýði­legur und­ir­bún­ingur undir líf­ið. „Gjör­sam­lega mis­heppnuð ákvörð­un“ sagði Lise síðar „meira að segja pabbi gat ekki borðað það sem ég eld­aði eftir að hafa verið í skól­anum og mér hefur ekki farið fram“ sagði hún í við­tali fyrir nokkrum árum.

Hró­arskeldu­dag­blaðið

Árið 1935 var Lise Nørgaard ráðin til Rosk­ilde Dag­blad, Hró­arskeldu­dag­blaðs­ins. Eins og ­títt er á litlum fjöl­miðlum þurfti Lise að sinna öllu mögu­legu. Í end­ur­minn­ingum sínum segir hún að ekki hafi allir verið jafn hrifnir af því að „þessi stelpa“ kæmi þegar eitt­hvað frétt­næmt átti sér stað.

[adspot]Eitt sinn var hún send á fund hjá kaup­fé­lags­deild­inni (brugs­for­en­ingen) í Hró­arskeldu. For­maður félags­deild­ar­innar kom í eigin per­sónu á skrif­stofu blaðs­ins dag­inn eftir og var ekki sátt­ur: „Við báðum um blaða­mann og svo sendu þeir stúlku.“ Lise Nørgaard segir að rit­stjóri Hró­arskeldu­dag­blaðs­ins hafi kennt sér mikið og vinnan á blað­inu verið góður skóli.

Hjóna­bönd, barn­eign­ir, Politi­ken, Hjemmet og Berl­ingske

Þótt ann­ríkið og vinnu­á­lagið á Hró­arskeldu­dag­blað­inu hafi verið mikið hafði Lise Nørgaard fleiri járn í eld­in­um. Árið 1938 gift­ist hún Mog­ens Ein­ar Flindt Niel­sen, þau eign­uð­ust fjögur börn en skildu árið 1950. Þá var Lise Nørgaard orðin blaða­maður á Politi­ken, byrj­aði þar árið 1949. Hún hefur margoft sagt að þau nítján ár sem hún var á Politi­ken og stutt vera hennar á Berl­ingske Tidende (heitir núna Berl­ingske) hafi verið skemmti­leg­asti tím­inn á starfs­ferl­in­um. „Ég var, held ég, ágætur blaða­maður en ekki góð móð­ir.“ Börnin hennar hafa tekið undir þetta „hún var nátt­úr­lega aldrei heima“. Árið 1968 réð Lise Nørgaard sig til viku­rits­ins „Hjemmet“ og þar var hún rit­stjóri um tveggja ára skeið 1975 – 1977. Á blaða­manns­ferl­inum skrif­aði Lise um allt milli him­ins og jarð­ar, mikið um neyt­enda­mál og mál­efni kvenna. ­Með fram ­blaða­mennsk­unni sinnti hún ýmsum verk­efn­um, skrif­aði kvik­mynda­hand­rit, hand­rit að útvarps­þátt­um, skáld­sög­ur, tvær bækur um hunda­þjálfun og dæg­ur­laga­texta svo eitt­hvað sé nefnt. Árið 1951 gift­ist Lise Nørgaard Jens Waaben rit­stjóra, hann lést 1984.

Húsið á Krist­jáns­höfn og Mata­dor

Þann 1. maí árið 1970 var frum­sýndur í danska sjón­varp­inu fyrsti þáttur í sjón­varps­þátta­röð sem fékk nafnið Huset paa Christ­i­ans­havn, Húsið á Krist­jáns­höfn. Þætt­irnir fjöll­uðu í stuttu máli um dag­legt líf íbúa í fjöl­býl­is­húsi á Krist­jáns­höfn í Kaup­manna­höfn. Þrátt fyrir að margir af þekkt­ustu leik­urum og kvik­mynda­leik­stjórum Dana stæðu að gerð þátt­anna töldu flestir gagn­rýnendur að þeir yrðu ekki lang­líf­ir. Gagn­rýnend­urnir reynd­ust hins veg­ar hlað­varpa­spek­ing­ar, Húsið á Krist­jáns­höfn er ein vin­sælasta þátta­röð í sögu dansks sjón­varps, alls voru gerðir 84 þætt­ir, sá síð­asti frum­sýndur 31. des­em­ber 1977.

Hand­rits­höf­und­arnir voru all­margir, þar á með­al Lise Nørgaard. Meðal leik­stjór­anna var Erik Ball­ing (1924 – 2005) og það var hann sem komst á snoðir um að Lise Nørgaard ætti í fórum sínum hand­rit að sögu tveggja fjöl­skyldna í smá­bæ. Þegar Erik Ball­ing stakk upp á því við Lise Nørgaard að hún mynda skrifa hand­rits­drög fyrir sjón­varps­þætti tók hún hug­mynd­inni fálega. En Erik Ball­ing var ekki maður sem lét auð­veld­lega segj­ast og að lokum féll­st Lise Nørgaard á að skrifa sögu­þráð sex þátta, sem Nor­disk Film fram­leiddi fyrir DR. Þætt­irnir kost­uðu miklu meira en nokkuð það sem DR hafði áður látið fram­leiða og útvarps­ráðið sá ofsjónum yfir kostn­að­inum og hafði efa­semdir um þætt­ina. Fyrsti þátt­ur Mata­dor var frum­sýndur í DR 11. nóv­em­ber 1978 og er skemmst frá því að segja að þátta­röðin sló algjör­lega í gegn. Á næstu árum voru fram­leiddar þrjár sex þátta syrpur til við­bót­ar, sam­tals urðu þætt­irnir 24 og spanna ára­bilið 1929 til 1947. Það segir sína sögu að sjötti, tólfti og átj­ándi þáttur höfðu ákveð­inn enda­punkt, Nor­disk Film vissi nefni­lega aldrei hvort þætt­irnir yrðu fleiri og sló því varnagla. Þætt­irnir hafa öðl­ast vin­sældir sem eiga sér enga hlið­stæðu í Dan­mörku og um þessar mundir er verið að sýna þátta­röð­ina í átt­unda skipt­i. Lise Nørgaard skrif­aði sjálf hand­rit sextán þátta en aðrir hina átta.

Margt fleira en Mata­dor

Þótt í hugum Dana sé eins­kon­ar sama­sem merki milli Lise Nørgaard og Mata­dor var hún ekki sama sinn­is. Í umfjöllun Kjarnans 2016 kom fram að hún væri stolt­ust af blaða­manna­ferl­inum en það allir tali alltaf um Mata­dor. ,,Þegar ég hitti ókunn­ugt fólk vill það bara tala um Mata­dor, stundum get ég næstum kastað upp vegna þess. En ég sit uppi með þetta.“

Lise Nørgaard fannst það ekki merki­legt að verða göm­ul. ,,Stundum hugsa ég um hvernig á því standi að nán­ast allir gamlir vinir mínir eru dánir en alltaf tóri ég. Í fyrra fór ég í tíu jarð­ar­farir og þær verða ekki færri á þessu ári, ef ég lifi. Þeir vinir sem ég á nú eru nær allir miklu yngri, það er allt í lagi fyrir mig, veit ekki með þá.“

Lise Nørgaard var búin að til­kynna að hún vildi ekki gjafir í til­efni ald­ar­af­mæl­is­ins fyrir rúmum fimm árum. ,,Húsið er fullt af dóti, er eins og graf­hýsi. Súkkulaði vil ég ekki, maður fitnar bara af því og ég vil heldur ekki blóm. Þau visna í vös­unum og svo kemur vond lykt af vatn­inu. Engar gjafir takk.“

Bann­settur far­sím­inn

Lise Nørgaard sagði að far­sím­inn væri algjör plága. ,,Maður fær kannski ein­hverja hug­mynd og byrjar að skrifa, þá hringir sím­inn og svo þegar sím­tal­inu loks­ins lýkur man maður ekki lengur hug­mynd­ina, alveg tómur í koll­in­um.“

Þegar hún var spurð af hverju hún væri þá að svara í sím­ann sagði hún að það yrði hún að gera. ,,Ef ég svara ekki halda börnin mín að ég sé hrokkin af stand­inum og svo mynd­i tengda­son­ur­inn, sem býr í grennd­inni, ryðj­ast inn og segja svo, ja hérna, þú ert þá lif­andi. Þess vegna verð ég að svara. Árum saman hef ég reynt að horfa á glæpa­þætti þar sem ég sé bæði morðið og svo lausn­ina. Það tekst aldrei, sím­inn hringir alltaf og eyði­leggur skemmt­un­ina.“

Frétta­skýr­ingin byggir á umfjöllun sem birt­ist upp­haf­lega árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár