Ríkasta eitt prósentið tók til sín 82 prósent af nýjum auð í fyrra

42 rík­ustu ein­stak­lingar heims eiga nú jafn mikið og þeir 3,7 millj­arðar mann­kyns sem eiga minnst. Níu af hverjum tíu í hópi hinna ofur­ríku eru karlar og rík­asta eitt pró­sentið á nú meira en allir hinir til sam­ans.

Nánast allir sem teljast ofurríkir eru karlmenn..
Nánast allir sem telj­ast ofur­ríkir eru karl­menn.. Mynd: Pexels.com

Alls fór 82 pró­sent af öllum auð sem varð til í heim­inum á árinu 2017 til rík­asta eitt pró­sent íbúa hans. Sá helm­ingur mann­kyns sem á minnst fékk ekk­ert af við­bót­ar­auð sem varð til á síð­asta ári í sinn hlut. Nýjar tölur frá Credit Suisse sýna að 42 rík­ustu ein­stak­lingar heims eiga nú jafn mikið og þeir 3,7 millj­arðar manna sem eiga minnst. Ríkasta pró­sent heims­ins á meira en hin 99 pró­sent hans til sam­ans. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Oxfam um mis­skipt­ingu auðs, sem gerð var opin­ber í gær.

[links]Í skýrsl­unni kemur fram að millj­arða­mær­ingum hafi aldrei fjölgað jafn mikið og í fyrra, þegar einn nýr slíkur varð til á tveggja daga fresti. Samtals voru þeir sem áttu einn millj­arð dali eða meira 2.043 um síð­ustu ára­mót.

Alls jókst auður millj­arða­mær­inga um 762 millj­arða dala á árinu 2017, eða um 78.486 millj­arða íslenskra króna. Þessi við­bót­a­r­auður einn saman myndi duga til að binda sjö sinnum endi á fátækt í heim­inum, sam­kvæmt mati Oxfam.

Í skýrsl­unni segir enn fremur að hættu­leg og illa borguð störf fjöld­ans greiði fyrir yfir­gengi­legan auð hinna fáu. Konur séu í verstu stör­f­unum og að nán­ast allir hinna ofur­ríku séu karl­menn, eða níu af hverjum tíu.

[adspot]Oxfam segir að rík­is­stjórnir þurfi að skapa jafn­ari sam­fé­lög með því að for­gangs­raða vel­ferð venju­legra launa­manna og smærri mat­væla­fram­leið­enda í stað þess að for­g­ans­raða í þágu hinna ríku og valda­miklu.

Auður hinna efnameiri vex mun hraðar en hinna

Í skýrsl­unni segir að á tíma­bil­inu 2006 til 2015 hafi auður venju­legs launa­fólks auk­ist um tvö pró­sent á ári á meðan að auður millj­arða­mær­inga í heim­inum auk­ist um 13 pró­sent á ári, eða sex sinnum hraðar en auður launa­fólks­ins.

Þar er tekið dæmi af rík­asta manni Nígeríu, sem þénar nægi­lega háar vaxta­greiðslur af eignum sínum á ári til að leysa um tvær millj­ónir sam­landa sinna úr fátækt. Í Indónesíu eiga fjórir rík­ustu menn lands­ins meira en þær 100 millj­ónir íbúa þess sem eiga minnst. Þrír rík­ustu menn Banda­ríkj­anna eiga meiri auð en sá helm­ingur þjóð­ar­innar sem á minnst, um 160 millj­ónir manns. Í Brasilíu myndi ein­stak­lingur sem þénar lág­marks­laun þurfa að vinna í 19 ár til að þéna það sem ein­stak­lingur sem til­heyrir 0,1 pró­sent rík­asta hluta lands­ins þénar á einum mán­uði.

Ríku verða ríkari á Íslandi

Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber að mis­skipt­ing auðs hafi haldið áfram að aukast á Íslandi á árinu 2016. Í lok þess árs áttu þær rúm­lega 20 þús­und fjöl­skyldur sem til­heyra þeim tíu pró­sentum þjóð­ar­innar sem eiga mest eigið fé – eignir þegar skuldir hafa verið dregnar frá – 2.062 millj­arða króna í hreinni eign. Alls átti þessi hópur 62 pró­sent af öllu eigin fé í land­inu. Eigið fé hans jókst um 185 millj­arða króna á árinu 2016. Eigið fé hinna 90 pró­sent lands­manna jókst á sama tíma um 209 millj­arða króna. Það þýðir að tæp­lega helm­ingur þeirrar hreinu eignar sem varð til á á árinu 2016 fór til tíu pró­sent efna­mestu fram­telj­end­anna.

Frá árinu 2010 og til loka árs 2016 tvö­fald­að­ist eigið fé Íslend­inga. Í lok árs 2010 var það 1.565 millj­arðar króna en var 3.343 millj­arðar króna í lok árs 2016. Ef horft er ein­ungis í krónu­tölur þá má sjá að eignir efstu tíundar þjóð­ar­innar hafi auk­ist úr 1.350 millj­örðum króna í 2.062 millj­arða króna á tíma­bil­inu, eða um 712 millj­arða króna. Því fór 40 pró­sent af öllum krónum sem urðu til í nýju eigin fé frá lokum árs 2010 og fram til loka árs 2016 til þeirra tíu pró­sent fjöl­skyldna sem eiga mest á hverjum tíma fyrir sig.

Vanmetinn auður

Virði eigna þessa hóps er reyndar van­met­inn. Þessi hópur á nefni­lega nær öll verð­bréf lands­ins í eigu ein­stak­linga, eða 86 pró­sent slíkra. Í tölum Hag­stof­unnar er þær fjár­mála­legu eignir sem telj­ast til hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum á nafn­virði, eign­ar­skatts­frjáls verð­bréf, stofn­sjóðs­eign og önnur verð­bréf og kröfur. Og í töl­unum eru þau metin á nafn­verði, ekki mark­aðsvirði, sem er mun hærra. Alls á tíu pró­sent rík­asti hluti lands­manna verð­bréf, m.a. hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum eða skulda­bréf, sem metin eru á 383,4 millj­arða króna á nafn­virði. Hin 90 pró­sent þjóð­ar­innar eiga verð­bréf sem metin eru á 62,2 millj­arða króna að nafn­virði. Þessi skipt­ing hefur hald­ist að mestu eins á und­an­förnum árum. Í lok árs 2010 átti efsta tíund lands­manna líka 86 pró­sent allra verð­bréfa.

Virði verð­bréfa í eigu Íslend­inga hækkað um 23 millj­arða króna að nafn­virði á árinu 2016. Þar af hækk­uðu bréf rík­ustu tíu pró­sent þjóð­ar­innar um 21,8 millj­arða króna. Því fór um 95 pró­sent af allri virð­is­aukn­ingu verð­bréfa til rík­ustu tíundar Íslend­inga á árinu 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár