13 milljónir settar í úttekt á íslenska skattkerfinu

Þrettán millj­ónir króna af ráð­stöf­un­arfé rík­is­stjórn­ar­innar verða lagðar í úttekt á íslenska skatt­kerf­inu sem Sam­ráðs­vett­vangur um aukna hag­sæld stendur nú að.

Sam­ráðs­vett­vang­ur­inn ákvað á fundi í byrjun þessa árs að ráð­ast í úttekt­ina og koma með til­lögur um það hvernig bæta megi skil­virkni skatt­kerf­is­ins. Úttektin á að vera til­búin í maí.

„Sam­ráðs­vett­vangur um aukna hag­sæld er þverpólítískt sam­tal stjórn­mál­anna, við­skipta­lífs­ins, aðila vinnu­mark­að­ar­ins og háskóla­sam­fé­lags­ins. Þetta starf hefur þegar borið árangur eins og sést á því að fjöl­margar til­lögur verk­efn­is­stjórnar Sam­ráðs­vett­vangs­ins hafa orðið að veru­leika. Mik­il­vægt er að halda þessu góða starfi áfram með nýjum verk­efnum og áskor­unum,“ er haft eftir Sigurði Inga Jóhanns­syni for­sæt­is­ráð­herra í til­kynn­ingu um málið.

Sam­ráðs­vett­vang­ur­inn, sem sett­ur var saman í kjöl­far þess að ráð­gjafa­fyr­ir­tækið McK­insey&Company skrif­að­i ­skýrslu um hag­vaxt­ar­mögu­leika Íslend­inga árið 2012, er þverpóli­tískur og þver­fag­legur vett­vangur sem ætlað er að stiðla að umræðu um leiðir til að ­tryggja hag­sæld á Íslandi. Þar sitja for­menn allra stjórn­mála­flokka sem sæt­i eiga á Alþingi, helstu hags­muna­sam­tök laun­þega og atvinnu­rek­enda, full­trú­ar há­skóla­sam­fé­lags­ins, sveita­fé­laga og stjórn­endur fyr­ir­tækja úr ýmsum­ at­vinnu­grein­um. Vett­vang­ur­inn heyrir undir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið.

Lítið hefur farið fyr­ir­ ­Sam­ráðs­vett­vangnum á þessu kjör­tíma­bili. Hann hefur þó fundað reglu­lega og ­síð­ast þann 13. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þar var ofan­greind úttekt sam­þykkt.

Var í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar

Hug­myndin um heild­stæða úttekt á skatt­kerf­inu var hluti af stefnu­yf­ir­lýs­ingu sitj­andi rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og ­Sjálf­stæð­is­flokks. Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar, sem kynnt var á Laug­ar­vatni í maí 2013, sagði að gerð yrði „út­tekt á skatt­kerf­inu og skatt­kerf­is­breyt­ingum und­an­far­inna ára og lagðar fram til­lögur til úrbóta með­ það að mark­miði að ein­falda skatt­kerf­ið, breikka skatt­stofna, minn­ka ­tekju­teng­ingar og draga úr und­an­skot­u­m.“ Með ein­földun skatt­kerf­is­ins og inn­leið­ing­u já­kvæðra hvata yrði rekstur fyr­ir­tækja ein­fald­ari og skil­virk­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár