Alþingi samþykkir frumvarp Pírata um refsivert guðlast

Guðlast er ekki lengur refsi­vert á Íslandi eftir að Alþingi sam­þykkti laga­frum­varp Pírata um að 125 gr. almennra hegn­ing­ar­laga yrði felld brott. Á bloggi Pírata er dag­ur­inn í dag kall­aður „mik­ill gleði­dagur fyrir bæði húmorista og alla vini tján­ing­ar­frels­ins.“

Í almennum hegn­ing­ar­lögum frá árinu 1940 var það gert heim­ilt að fang­elsa og sekta hvern þann sem smán­aði trú­ar­kenn­ingar eða guðs­dýrkun lög­legra trú­ar­bragða­fé­laga. Í grein­ar­gerð með laga­breyt­ing­ar­til­lögu Pírata segir að til­efni þessa frum­varps sé árásin á rit­stjórn Charlie Hebdo í París í jan­úar.

„[...] er talið að til­efni árás­ar­innar sé m.a. það að útgáfan hefur birt teikn­ingar af Múhameð spá­manni,“ segir í greina­gerð­inni og að flutn­ings­menn frum­varps­ins vilji með þessu biðja Alþingi að leggja sitt af mörkum við að koma þeim skila­boðum á fram­færi að tján­ing­ar­frelsið muni „aldrei lúta fyrir mann­drápum, ofbeldi eða hót­unum.“

Píratar benda jafn­framt á að íslensk lög­gjöf hafi verið gagn­rýnd af alþjóða­stofn­unum fyrir ýmsa van­kanta, þar á meðal það að svipta megi fólk frelsi fyrir „ólög­mæta tján­ingu, þar á meðal guð­last.“

Laga­greinin sem nú hefur verið felld á brott var svohljóð­andi í almennum hegn­ing­ar­lögum (125 gr. í lögum nr. 19 frá árinu 1940): „Hver, sem opin­ber­lega dregur dár að eða smánar trú­ar­kenn­ingar eða guðs­dýrkun lög­legs trú­ar­bragða­fé­lags, sem er hér á landi, skal sæta sektum eða [fang­elsi allt að 3 mán­uðum]. Mál skal ekki höfða, nema að fyr­ir­lagi sak­sókn­ara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár