Gunnar Einarsson hættir sem bæjarstjóri í Garðabæ

Nýr bæj­ar­stjóri mun taka við stjórn­inni í Garðabæ að loknum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í maí 2022. Sá sem hefur gegnt starf­inu síð­ast­lið­inn 17 ár hefur til­kynnt að hann sé að hætta.

Gunnar Einarsson.
Gunnar Ein­ars­son. Mynd: Garðar.is

Gunnar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóri Garða­bæjar, hefur til­kynnt bæj­ar­full­trúum sveit­ar­fé­lags­ins að hann muni hætta sem bæj­ar­stjóri og odd­viti meiri­hlut­ans í Garðabæ að loknu þessu kjör­tíma­bili. Gunnar hefur verið bæj­ar­stjóri í 17 ár og verður brátt 67 ára gam­all.

Í tölvu­pósti sem hann sendi bæj­ar­full­trúum í Garðabæ í kvöld segir Gunnar að hann hafi komið til starfa hjá Garðabæ 25 ára gam­all.

[adspot]Fyrst starf­aði hann sem íþrótta- og tóm­stunda­full­trúi og síðar sem for­stöðu­maður fræðslu- og menn­ing­ar­sviðs áður en hann var ráð­inn bæj­ar­stjóri árið 2005. „Ég hef varið rúm­lega 40 árum starfsævi minni í þjón­ustu við Garð­bæ­inga. Á þessu langa tíma­bili hef ég tekið virkan þátt í upp­bygg­ingu bæj­ar­ins bæði sem emb­ætt­is­maður, stjórn­mála­maður og þátt­tak­andi í félags­starfi innan bæj­ar­markanna. Jafn­framt hef ég fengið tæki­færi frá vinnu­veit­and­anum Garðabæ á að mennta mig til hæstu gráðu.“

Hann seg­ist stoltur að því sam­fé­lagi sem Garðabær er. „Það bíður ann­arra að leiða starfið áfram, von­andi með það við­horf að alltaf er hægt að gera betur. Við verðum aldrei búin með verk­efnið. Með von um áfram­hald­andi far­sæld fyrir Garðabæ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár