Ósammála um að brotið hafi verið á akademísku frelsi ísraelska prófessorsins

Finnur Dellsén, pró­fessor í heim­speki við Háskóla Íslands, er ekki sam­mála um að það hafi verið brotið á akademísku frelsi ísra­elsks pró­fess­ors, sem hugð­ist flytja erindi um gervi­greind fyrir helgi, en fékk ekki út af mót­mælum. Hann segir málið ekki vand­ræða­mál fyrir háskól­ann.

Finnur Dellsén segir akademískt frelsi ekki snúast um að að allir hlusti ógagnrýnir á erindið viðkomandi. Heldur frelsið til þess að stunda sínar rannsóknir án þess að yfirvöld þvingi viðkomandi til annars.
Finnur Dellsén segir akademískt frelsi ekki snú­ast um að að allir hlusti ógagn­rýnir á erindið við­kom­andi. Heldur frelsið til þess að stunda sínar rann­sóknir án þess að yfir­völd þvingi við­kom­andi til ann­ars. Mynd: Bára Huld Beck

„Það var ekki brotið á akademísku frelsi neins, slíkt frelsi felur ekki í sér að fólk þurfi að hafa þögn á meðan fyr­ir­les­ari heldur erindi, að allir þurfi að hlusta á þig eða sýna til­tekna virð­ingu, það er ekki akademískt frelsi,“ segir pró­fessor í heim­speki við Háskóla Íslands, Finnur Dellsén. Þar á hann við um þá gagn­rýni sem mót­mæl­endur hafa fengið á sig fyrir að hafa truflað fyr­ir­hug­aðan fyr­ir­lestur ísra­elska pró­fess­ors­ins Gil Epstein, sem hugð­ist flytja erindi um gervi­greind í fyr­ir­lestr­ar­sal Þjóð­minja­safns­ins fyrir helgi. Stuðn­ings­menn Palest­ínu mættu á fund­inn og trufl­uðu fund­inn þannig að Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, sem stóð á bak við erindið, ákvað að slaufa honum án þess að ísra­elski pró­fess­orin næði að hefja erindi sitt, 20 mín­útum eftir að fund­ur­inn hófst. 

Frelsið að rannsaka ekki skert

Kolbeinn Hólmar Stef­áns­son gagn­rýndi fram­ferði mót­mæl­enda, þar á meðal einn starfs­mann háskól­ans sem var þeirra á meðal, Ingólf …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár