Söguleg samþykkt öryggisráðins gegn Íslamska ríkinu

Afleið­ingar árásanna í París

VIka er liðin frá hryðjuverkunum í París.
VIka er liðin frá hryðju­verk­unum í París. Mynd: EPA

Það var væg­ast sagt sér­kenni­leg til­finn­ing að ganga um ell­efta hverfi Par­ís­ar­borgar morg­un­inn eftir árás­irnar; víg­girð­ingar, her­lög­reglu­menn, för eftir byssu­kúlur, blóð­slettur. Fáir á ferli, nema þá kannski heims­pressan sem var að vakna eftir eril­sama nótt, neð­an­jarð­ar­lest­arnar nán­ast tómar, lítil sem engin umferð – ískaldur ótti vofði yfir öllu. Ekki sú París sem maður þekkti.

Hér hefur margt gengið á. Í sögu­legu ljósi er París eitt helsta átaka­svæði Evrópu. Hér hafa geisað borg­ara­stríð og bylt­ingar, heim­styrj­aldir og hörm­ungar; og borgin hefur staðið þetta allt af sér.

París er ein mesta fjöl­menn­ing­ar­borg heims og einmitt í því liggur kraftur hennar. Hún er opin og frjáls; hingað hafa lista­menn, hugs­uðir, við­skipta­jöfrar og vís­inda­menn leitað öldum saman til að vinna í friði og fá að vera þeir sjálfir. En það er alltaf þessi spenna. Fjöl­menn­ing er magnað en við­kvæmt fyr­ir­bæri sem auð­velt er að skemma. Hryðju­verka­menn­irnir eru fyrst og fremst að ráð­ast á sam­stöð­una um fjöl­breytn­ina. Og það sem allir ótt­ast mest þessa stund­ina er að það tak­ist að ein­hverju leyti. Múslimar eru einna hrygg­astir yfir atburðum og ótt­ast um stöðu sína í sam­fé­lag­inu. Ég spjall­aði við Par­ís­ar­búa sem er ætt­aður frá Norður-Afríku og hann sagði þetta:

„Ég get varla gengið niður götu án þess að fólk hlaupi í burtu eða líti á mig tor­tryggn­is­lega. Þetta er ömur­legt. Allt einu er mitt fólk orðið hryðju­verka­menn.“

[adspot]

Bataclan-kynslóðin

Dag­blaðið Libération sló upp þess­ari fyr­ir­sögn í vik­unni og vís­aði til þess að árásin hefði beinst gegn ungu fólki. Þetta er kyn­slóð sem verður hér eftir stöðugt á varð­bergi, á tón­leikum, á fót­bolta­velli, á veit­inga­stað, á bar. Það fylgir æsku og ung­dóms­árum að fá að lifa fjör­ugu og áhyggju­lausu lífi. Nú hafa hryðju­verkin ef til vill tekið það frá þess­ari kyn­slóð.

Búast má við stór­auk­inni gæslu á Evr­ópu­mót­inu í knatt­spyrnu sem fram fer næsta sumar í Frakk­landi. Nú þegar hafa FIFA og fleiri lýst því yfir að hugs­an­lega þurfi að end­ur­skoða öll örygg­is­mál á helstu knatt­spyrnu­völlum í Evrópu. Raunar má þakka örygg­is­gæsl­unni á Stade de France að ekki fór verr. Þar voru 80.000 manns, franski for­set­inn og þýskir ráða­menn. Við getum rétt ímyndað okkur mann­fallið hefðu árás­ar­menn­irnir kom­ist inn á leik­vang­inn eins og þeir ætl­uðu sér. Sömu­leiðis er talað um aukið eft­ir­lit á flug­völlum (eins og það hafi ekki verið nóg fyrir!) og á lest­ar­stöðvum. Svo ekki sé minnst á aukið eft­ir­lit með borg­ur­unum – „for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir“, sem er annað heiti yfir per­sónunjósnir. Allt sem þú segir og skrifar ratar inn í ein­hvern gagna­banka leyni­þjón­ust­unnar.

Afleiðingarnar - stríð og aukið eftirlit

Ef það er ein­hver til­finn­ing á meðal Frakka sem er yfir­sterk­ari reið­inni, dep­urð­inni og ótt­anum yfir þessum árásum þá er það óvissan um afleið­ing­arnar. Hvaða afleið­ingar hefur þetta á sam­fé­lagið og lýð­veldið? Eða Evrópu alla?

Francois Hollande hefur lýst yfir neyð­ar­á­standi næstu þrjá mán­uði, sem jafn­gildir í raun her­lögum, hann hefur boðað stjórn­ar­skrár­breyt­ingar og lýst yfir stríði við Íslamska ríkið. For­sæt­is­ráð­herr­ann, Manuel Valls, er jafn­vel enn djarfari í yfir­lýs­ingum sínum og talar um að hugs­an­lega eigi Frakkar von á fleiri hryðju­verkum, jafn­vel efna­vopa­árásum.

„Búið ykkur undir þetta, þetta verður langt og erfitt“ - Valls varar við því að jafn­vel sjálft Schengen-sam­starfið heyri sög­unni til. Krafa Frakka á neyð­ar­fundi Evr­ópu­ríkja er stór­aukið eft­ir­lit um alla Evrópu. Höf­uð­paur­inn í árás­unum, Abdel Abaaoud, virð­ist hafa haft lítið fyrir því að kom­ast í gengum alla Evrópu til Frakk­lands frá Sýrlandi þrátt fyrir að vera eft­ir­lýstur. Ef þess­ari kröfu um aukið landamæra­eft­ir­lit verður fylgt eftir þá þýðir það í raun að Schengen-sátt­mál­inn sé úr gildi fall­inn.

Víga­sveitir Íslamska rík­is­ins virð­ast vera komnir á fullt skrið, ekki bara í Mið-Aust­ur­löndum, heldur um heim allan. Stöðugt ber­ast fréttir af ódæð­is­verkum þeirra og í gær­kvöld lögðu Frakkar fram ályktun fyrir örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna sem var sam­þykkt - hún er í hnot­skurn þetta:

Öll ríki heims lýsa yfir stríði við Íslamska ríkið.

Öll ríki heims ætla að leggja saman alla krafta sína til þess að leysa vand­ann í Sýrlandi og Írak. Hann sé ógn við sjálfan heims­frið­inn. Fyrsta verkið er að upp­ræta hinn sam­eig­in­lega óvin. Grípa til allra nauð­syn­legra ráða gegn Íslamska rík­inu og öðrum hryðju­verka­sam­tökum.

Í fyrsta skipti í langan tíma tal­ast Banda­ríkja­menn og Rússar við. Kín­verjar og Rússar hafa oft beitt neit­un­ar­valdi í örygg­is­ráð­inu og hindrað ýmsar sam­ræmdar aðgerðir í Mið-Aust­ur­löndum, en nú eru öll ríkin sem eiga fasta­sæti í örygg­is­ráð­inu sam­stíga. Spreng­ing rúss­nesku far­þega­þot­unnar yfir Sína­ískaga, árás­irnar í París og Beirút og sömu­leiðis aftaka á kín­verskum gísl í þess­ari viku hefur leitt til þess­arar sam­stöðu.

Aukinn viðbúnaður á Norðurlöndum

Ástandið í Svíþjóð hefur verið spennu­þrungið síð­ustu daga. Við­bún­að­ar­stig var hækkað í vik­unni eftir víð­tæka leit að írök­skum manni, Mutar Majid; sem er tal­inn vera með hryðju­verk í und­ir­bún­ingi. Hann er einn af þeim fjöl­mörgu sem barist hefur með Íslamska rík­inu í Sýrlandi en síðan snúið til Evrópu. Sænski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Stefan Löfven, til­kynnti um við­miklar aðgerðir lög­regl­unnar, og líkt og Ólafur Ragnar sagði hann þjóð sína hafa lifað í barns­legri ein­feldni hvað varðar hryðju­verkaógn en hvatti fólk til þess að sýna still­ingu.

Norðmenn ætla að herða allt landamæra­eft­ir­lit eftir að grunur kom upp að hinn grun­aði hryðju­verka­maður gæti verið kom­inn til Noregs frá Svíþjóð. Norðmenn ætla að taka á móti 100.000 flótta­mönnum á næst­unni, en nú hefur norska þingið ákveðið að herða á ákvæðum inn­flytj­enda­lög­gjaf­ar­innar. Norðmenn virð­ast tor­tryggnir. Fólk er beðið að fara var­lega, fylgj­ast vel með öllu og til­kynna lög­reglu ef eitt­hvað grun­sam­legt er á seyði.

Mestu við­brögðin eru samt í Finn­landi þar sem dóms­mála­ráð­herr­ann, Jari Lindstöm, hefur viðrað þá skoðun að taka upp dauða­refs­ingar fyrir hryðju­verka­menn. Þeir eigi ekki skilið nein borg­ara­leg rétt­indi. Við svona tal er mörgum brugðið. Dauða­refs­ingar voru aflagðar 1949 og mann­rétt­inda­sátt­máli Evrópu, sem Finnar eru aðilar að, leggur sér­staka áherslu á bann við dauða­refs­ingum.

Áhrifa árásanna í París gætir því víða, þau eru mikil og marg­vís­leg og í hugum margra þeirra sem hafa alist upp við vest­ræn gildi: mann­rétt­indi, frelsi og umburð­ar­lyndi – eru við­brögðin sér­stök og kannski eilítið hættu­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár