Forsætisráðherra segir þingstörf geta teygst fram í október

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir að þingið geti hugs­an­lega setið fram í októ­ber ef þurfa þykir. Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi í dag. Stjórn­ar­and­staðan gagn­rýndi mjög lít­inn fram­gang þing­starfa í þing­inu, sér­stak­lega í ljósi þess að sam­kvæmt end­ur­skoð­aðri starfs­á­ætlun þings­ins frá því í vor á því að ljúka eftir viku.

„Það hefur komið mér aðeins á óvart að heyra hérna til dæmis í fund­ar­stjórn, heyrði það í þing­inu í gær, aðeins þau sjón­ar­mið sem komu fram hjá hátt­virtum þing­manni um að hér sé þriggja vikna starfs­á­ætlun og svo muni þing­inu ljúka vegna þess að á fundi með for­mönnum flokk­anna sem ég og fjár­mála­ráð­herra áttum í aðdrag­anda þings­ins kynntum við þær hug­myndir um að fresta sam­komu­degi þings­ins, halda áfram þing­störfum fram í sept­em­ber, hugs­an­lega út sept­em­ber og lengur ef þurfa þykir með þeirri nið­ur­stöðu að kjósa í lok októ­ber. Þetta eru ekki nein ný tíð­indi,“ sagði Sigurður Ingi.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra tók í svip­aðan streng og sagði að það hlyti að hafa verið öllum ljóst þegar breyt­ingar á starfs­á­ætlun hafi verið sam­þykktar í vor að það yrði með þeim fyr­ir­vara að enn ætti eftir að koma í ljós hvenær boðað yrði til kosn­inga og hvernig þing­störf gengju. Síðar í umræð­unni sagði hann að þeir Sigurður Ingi hefðu verið afskap­lega skýrir með það á fundum með öllum flokkum að til stæði að breyta sam­komu­degi nýs þings. „Við höfum jafn­framt verið skýrir með það að að öllu óbreyttu muni þurfa að fjölga þing­dögum. Þetta tel ég að ætti ekki að koma neinum í opna skjöldu.“

Þessu voru stjórn­ar­and­stæð­ingar hins vegar ósam­mála. Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður VG, sagði engar for­sendur hafa breyst frá því að starfs­á­ætlun þings­ins var sam­þykkt í vor. „Hér hefur verið unnið vel en á sama tíma ger­ist það núna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra, sem er for­ystu­maður fram­kvæmd­ar­valds­ins, lætur eins og starfs­á­ætlun Alþingis sé einskis virði, sé ekki papp­írs­ins virði. Hann kemur hingað inn og til­kynnir Alþingi það og for­seta þar á meðal að til standi að funda hér ein­hverjum vikum saman eftir að starfs­á­ætlun Alþingis er lokið. Þetta er ótækt.“

Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði það koma veru­lega á óvart að heyra Sigurð Inga lýsa því yfir að þing myndi sitja jafn­vel út sept­em­ber. „Við erum með starfs­á­ætlun sem er sam­þykkt af for­sætis­nefnd og for­seta. Ég veit ekki til hvers við erum með starfs­á­ætlun ef við ætlum síðan ekki að virða hana.“

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði ljóst að meiri­hlut­inn væri að þvæla málum fram yfir áætluð þing­lok til að geta tafið kosn­inga­bar­átt­una. „Þeir ætla að halda þing­inu hérna eins lengi og eins nálægt kosn­ingum og þeir geta.“

Líkt og fram kom í Kjarn­anum í gær þurfti að fresta þremur atkvæða­greiðslum um frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar í gær vegna lélegrar mæt­ingar þing­manna. Það var svo aftur til­fellið í dag og kom fram í ræðu Óttars Proppé, for­manns Bjartrar fram­tíðar, að þrír stjórn­ar­þing­menn hafi verið í þing­sal í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár