Ný fasteignabóla að blása út - Viðvörunarbjöllur hringja

Víða um heim eru nú farin að sjást merki um ofhitnun á mörk­uðum með atvinnu­hús­næði, að því er segir í umfjöllun Wall Street Journal í dag. Fjármagn hefur flætt í fast­eigna­verk­efni þar sem er verið að byggja atvinnu­hús­næði og virð­ist lítið lát á því. Fer­metra­verð í heims­borg­unum London, Hong Kong, Osaka og Chicago er nú orðið hærra en það var fyrir fjár­málakrepp­una á árunum 2007 til 2009, en það hríð­féll í kjöl­far hennar, einkum árin 2009 og 2010.

Það sama má segja um Los Angeles, Berlín, New York og Sydney sam­kvæmt grein­ingum frá Real Capital Analytics, sem Wall Street Journal vitnar til í umfjöllun sinni.

Tölur sem sáust bara 2006 og 2007


Á fyrstu sex mán­uðum þessa árs juk­ust fjár­fest­ingar í atvinnu­hús­næð­is­verk­efnum um 36 pró­sent í Banda­ríkj­unum og námu sam­tals 225,1 millj­arði Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 29 þús­und millj­örðum króna. Í Evrópu var svip­aða sögu að segja, en þar jukustum fjár­fest­ingar í atvinnu­hús­næði um 37 pró­sent, í 148 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur rúm­lega 20 þús­und millj­örðum króna. Þetta er mesta aukn­ing í fjár­fest­ingum sem þessum í Evrópu síðan í byrjun árs 2007.

Lágvaxtaumhverfi þrýstir fjármagni í fasteignir


Það sem er talin helsta ástæðan fyrir þess­ari miklu aukn­ingu í fjár­fest­ingum í atvinnu­hús­næði eru afar hag­stæða lána­skil­yrði, þar sem vextir eru víð­ast hvar við núllið, auk þess sem stefnu­breyt­ing hefur orðið hjá stórum fjár­fest­inga­sjóðum í Asíu og Mið-Aust­ur­löndum sem beina nú fjár­magni sínu frekar í atvinnu­hús­næði en skulda­bréf sem í boði eru á mark­aði. Jacques Gordon, yfir­maður grein­inga hjá LaSalle Invest­ment Mana­gement eign­ar­stýr­ing­ar­fé­lag­inu í Chiacago, segir í sam­tali við Wall Street Journal að yfir­leitt sé svona mikil og skörp hækkun í einum eigna­flokki boð­beri frekar slæmra tíð­inda. Í þessu til­viki sé stór hópur fjár­festa að færa til fjár­magn yfir í eigna­flokk sem til lengdar litið eigi frekar að vera stöð­ugur í vexti, og þá alls ekki svona miklum eins og raunin er.

Nokkur stór við­skipti hafa fangað athygli fjöl­miðla. Þar á meðal eru kaup kín­verska félags­ins Anbang Insurance Group á Waldor-Astoria hót­el­inu í New York, í febr­úar síð­ast­liðnum, en félagið greiddi tæp­lega tvo millj­arða Banda­ríkja­dala fyrir hót­elið, eða sem nemur tæp­lega 270 millj­örðum króna. Tveimur mán­uðum síðar setti svo annað kín­verskt félag, Sunshine Insurance Group Co., met þegar það greiddi yfir tvær millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 270 millj­ónir króna, fyrir hvert her­bergi Baccarat Hót­els­ins í New York, sam­tals um 230 millj­ónir dala, eða sem nemur um þrjá­tíu millj­örðum króna.




Thank you @BaccaratHotels for an unfor­getta­ble stay! You blew my mind!


A photo posted by @mrmoudz on Aug 11, 2015 at 4:59am PDT

Varðhundarnir fylgjast grannt með gangi mála

Seðla­banki Banda­ríkj­anna fylgist grannt með gangi mála á þessum mark­aði, og gerir stöð­una að umtals­efni í skýrslu sinni til Banda­ríkja­þings, í lok síð­asta mán­aðar. Í henni segir að mik­ill þrýst­ingur sé á þennan eigna­flokk og verð á atvinnu­hús­næði sé að hækka hratt (“valuation pressures in commercial real estate are ris­ing as commercial property prices continue to increase rapidly.”). Líf­eyr­is­sjóðir í Banda­ríkj­unum hafa nú um 7,7 pró­sent af eignum sínum bundnar í fast­eignum og hefur hlut­fallið hækkað úr 6,3 pró­sent árið 2011, sem telst umtals­vert mikil hækkun á skömmum tíma, af því er segir í umfjöllun Wall Street Journal.

Örmarkaðurinn á Íslandi

Sé litið sér­stak­lega til örmark­að­ar­ins á Íslandi, og mark­aðar með atvinnu­hús­næði sér­stak­lega, þá hefur raun­verð á atvinnu­hús­næði hækkað um átján pró­sent á einu ári, sem telst mikil hækkun, tölu­vert umfram hækkun á mark­aði með íbúðir. Um þetta er meðal ann­ars fjallað í

Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands

frá því í maí, en þar segir að verðið hafi hækkað um tæp­lega helm­ing frá því það var lægst i upp­hafi árs 2011. Velta hefur enn fremur auk­ist jafnt og þétt en er ennþá ekki eins mikil og hún var mest, á árunum 2005 til 2007.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár