Sigmundur Davíð segist tilbúinn að mæta fyrir siðanefnd og segja frá einkasamtölum þingmanna

Sig­mundur Davíð fór yfir Klaust­urs­málið í Bítinu á Bylgj­unni í morgun. Hann seg­ist til­bú­inn að lýsa einka­sam­tölum fyrir siða­nefnd Alþingis en hann seg­ist vanur því að vinna með fólki sem kalli hann öllum illum nöfnum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins segir að ef siða­nefnd vilji kalla eftir upp­tökum af sam­ræðum þing­manna til að rann­saka, þá seg­ist hann skilja það sem svo að nefndin vilji fá allar upp­tökur af sam­tölum þing­manna sem til eru. Þetta kom fram í Bítinu á Bylgj­unni á morgun þar sem rætt var við Sigmund Davíð og Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur.

„Ég skal segja þér bara fyrir mitt leyti að ef það er vilji nefnd­ar­innar að allt sem menn hafa sagt í einka­sam­tölum um félag­ann, sem eru hlutir sem eru fyrir neðan allar hellur, komi fram þá skal ég mæta fyrir nefnd­ina og lýsa því nákvæm­lega.“

Sig­mundur segir að ef siða­nefnd ætlar að kalla eftir upp­tökum, þá hljóti upp­tökur af sam­tölum ann­ara að skila sér til hennar líka. Hann seg­ist ekki eiga slíkar upp­tökur sjálfur enda segir hann það óheim­ilt að taka menn upp í leyf­is­leysi án þeirra vit­undar en svarar því ekki hvort hann viti af til­vist slíkra upp­taka hjá öðrum. „Ég skal bara svara þess­ari spurn­ingu almennt. Ef þessi siða­nefnd núna vill kalla eftir upp­tökum þá vænt­an­lega er hún að biðja um allar þær upp­tökur sem menn eiga af slíku og ég hugsa að þær muni þá ein­hverjar skila sér“ segir Sig­mundur.

Þessi orð áttu ekki hafa neinar afleiðingar

Sig­mundur var einnig spurður um hvað hann teldi að íslenskir stjórn­mála­menn þurfi að gera af sér til að segja af sér. Hann svar­aði því að hlut­irnir þyrftu að vera settir í sam­hengi, það sé munur á aðgerðum og orðum og munur á orðum sem sögð eru opin­ber­lega og í einka­sam­tölum. „Þarna var um að ræða orð, ekki aðgerðir. Það var um að ræða orð sem þeir sem þau sögðu, sögðu í hugs­ana­leys­ingi eða æsingi“

Sig­mundur seg­ist vera sam­mála því að þau ummæli sem látin voru falla á Klaustur bar séu ófyr­ir­gef­an­leg en bendir þó á að þessi orð áttu ekki hafa neinar afleið­ingar. „Já algjör­lega en orð sem áttu ekki að hafa neinar afleið­ingar. Svo getum við skoðað gjörðir manna og orð sem þeir hafa opin­ber­lega með það að mark­miðið að þau hafi afleið­ingar. Hvernig þing­menn og reyndar miklu fleiri leyfa sér sumir að tala opin­ber­lega. Hvað þeir leyfa sér að segja á Facebook og hvað þeir gera því margir hafa auð­vitað gert ýmis­legt sem, af því þú nefnir útlönd, erlendis myndi leiða til afsagnar.“[adspot]

Nota mistök til að bæta sig

Aðspurður sagð­ist Sig­mundur Davíð ekki ætla að segja af sér vegna Klaust­ur­máls­ins, heldur trúi hann því að menn geti notað mis­tök til þess að bæta sig.

„Ef við tökum fót­bolta­sam­lík­ingu; sá sem er búinn að skora sjálfs­mark hefur mestan hvata af öllum leik­mönn­unum að bæta sig og gera betur. Og þetta er gríð­ar­lega sterkur hvati sem við höfum til þess að bæta okkur og fara yfir lið­inn veg. Við þing­menn­irnir höfum ein­sett okkur að þetta verði til þess að við verðum til fyr­ir­myndar í allri fram­komu, í því hvernig við tölum við fólk, hvernig við tölum um fólk, hvernig við högum okkur í tengslum við hluti eins og skemmt­anir. Og von­andi kemur út úr því eitt­hvað gott því mis­tök geta annað hvort brotið mann niður og orðið til þess að menn gef­ist upp, eða þá að það er hægt að snúa þeim upp í að verða eitt­hvað gott, grunnur að ein­hverju góðu,“ segir hann.

Varðandi mál Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar sem báðir hafa tekið sér leyfi frá þing­störfum segir Sig­mundur þetta sam­tal ekki spegla þeirra innra mann og hann treysti þeim til að vinna úr sínum málum. „Öl er annar maður er stundum sagt og það á sann­ar­lega við í þessu sam­hengi.“

Fólk kallað hann einræðisherra og líkt honum við fjöldamorðingja

Sig­mundur tók undir það að klaust­urs­at­vikið væri ekki til þess fallið að bæta ímynd Alþingis en sagð­ist sjálfur allt of oft hafa setið við svip­aðar aðstæður og fylgst með umræðum. „Jafnvel bara haldið þeim gang­andi og fylgst með því hvernig hlut­irnir þró­uð­ust til að fylgj­ast sem mest með því hvað menn eru að segja um náung­ann.“

Aðspurður hvernig þetta hafi áhrif á störf þings­ins og sam­starf hans við aðra þing­menn seg­ist Sig­mundur hafa verið kall­aður öllum illum nöfnum á sínum póli­tíska ferli. Hann seg­ist hafa langa reynslu af að vinna með fólki sem hafi meðal ann­ars kallað hann ljótan, feitan og geð­veikan. Hann segir að þetta hafi líka átt sér stað í sumum til­vikum opin­ber­lega. „Kallað mig ein­ræð­is­herra, líkt mér við fjöldamorð­ingja. Sagt ótrú­lega rætna hluti í einka­sam­tölum í aðdrag­anda flokks­þing, hringt í kjör­dæmið mitt og bert út sögur um mið. Heyrt brand­ara sem eru sagðir um mig í öðrum flokkum sem margir hverjir eru neð­an­beltis og mjög svartir,“ segir Sig­mundur.

Hefð að fara á barinn þegar fjárlög eru rædd

Gagnrýnt hefur verið að þegar sex­menn­ing­arnir á Klaustri ræddu málin sín á milli voru þá stóð þing­fundur enn yfir. Sig­mundur segir eðli­legt að fólki þyki það ein­kenni­legt en þetta sé ein af venjum alþingis. „Það hefur verið síðan ég byrj­aði á þing­inu og eflaust mikið lengur í tengslum við fjár­laga umræðu það er tími sem menn skipta sér á vaktir. Ein­hverjir rölta út á þing­flokks­skrif­stofur eða stað eins og þennan og ræða málin á mjög öðrum nótum svo ekki sé meira sagt. Ég held ég hafi setið, því ég nefndi það áðan að ég hafi oft setið undir svona tali áður að ég hafi oft setið með þing­mönnum úr öðrum flokkum.“ Hann segir þetta þó einn af þeim hlutum þurfi að breyt­ast og segir að hann muni ekki klikka á ein­hverju svona aftur.

Þurfi hugrekki til að segjast kjósa Miðflokkinn

[links]Spurður um kann­anir sem birst hafa síð­ustu daga þar sem Mið­flokk­ur­inn mælist ekki með mann inn á þingi og mik­ill meiri­hluti vill að sex­menn­ing­arnir segi af sér gefur Sig­mundur lítið fyrir það.

„Án þess að ég geri lítið úr þessu en ef maður hefði alltaf átt að fylgja könn­unum hvern dag fyrir sig þá hefði orðið lítil þróun hjá mér í póli­tík­inni. Það þarf gríð­ar­legan kjark, gríð­ar­legt hug­rekki til að líta út frá sím­anum eða Facebook eða sýn­ingu í Borg­ar­leik­hús­inu í fyrra­dag til að svara í sím­ann og segj­ast ætla kjósa Mið­flokk­inn,“ segir hann.

„Að sjálf­sögðu mun fólk sem kynni hugs­an­lega að vera til­búið til að kjósa okkar vilja sjá að okkur sé alvara og við séum ein­læg í því til að nota þessi mis­tök til að verða betur og læra af þeim. Ég er sann­færður um að við getum það því við höfum áður lent í erf­ið­leikum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár