Stórveldisdraumarnir brunnu á Yangze-fljóti

Und­an­farið hafa hér verið rifj­aðar örlaga­rík­ustu sjóorr­ustur sög­unnar. Orrustan við Rauð­hamra eða 赤壁 dæm­ist vera sú 5. örlaga­rík­asta. Nema hvað hún var alls ekki háð á sjó.

Í blá­byrjun 3. aldar ET ríkti upp­lausn í Kína. Hið mik­il­feng­lega Han-veldi, sem hafði sam­einað landið í fjórar aldir, var komin að fótum fram. Mið­stjórn­ar­valdið í höf­uð­borg­inni Luoyang (700 kíló­metra frá Bejing) var lamað vegna spill­ingar innan hirð­ar­innar, valda­ránstil­rauna lukku­ridd­ara og upp­reisna bænda­fólks.

Þegar vald keis­ar­ans var orðið lítið nema nafnið tómt gripu hér­aðs­stjórar og her­for­ingjar tæki­færið og gerð­ust sjálf­stæðir drottn­arar hver á sínu svæði. Brátt var Kína orðið að blóð­velli þar sem tugir smá­kónga börð­ust um völd, auð­lindir og fólk.

Höf­uð­borgin var brennd til ösku.

Á þessum tíma reis Cao Cao upp sem öfl­ug­asti maður Norður-Kína. Hann var emb­ætt­is­maður af mik­illi valda­ætt og reynd­ist nú bæði útsmog­inn og raun­sær stjórn­mála­maður. Cao Cao tókst að hand­sama hinn unga keis­ara Xian og stjórn­aði svo í hans nafni. Hann sam­ein­aði norð­ur­hluta Kína eftir 20 ára borg­ara­stríð, kom á aga og nýtti róm­aðar landbú­mað­ar­umbætur til að brauð­fæða gríð­ar­legan her sem …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár