Höfum alla þekkinguna en „það eina sem vantar er viljinn“

Formaður Ungra umhverf­is­sinna segir að ein teg­und af lofts­lagsaf­neitun sé að afneita alvar­leika ástands­ins og hvað við þurfum að grípa hratt til aðgerða. „Þetta er ekki eitt­hvað sem leys­ist af sjálfu sér heldur þurfum við að taka stór skref núna.“

Ný skýrsla milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar leit dags­ins ljós í síð­ustu viku en þar kemur fram að hlýnun jarðar geti haft afdrifa­ríkar afleið­ingar hér á landi, sem og auð­vitað ann­ars staðar. Örfáir ára­tugir séu til stefnu til að halda hlýnun jarðar undir tveimur gráðum.

Kjarninn leit­aði til Tinnu Hall­gríms­dóttur for­manns Ungra umhverf­is­sinna til að ræða skýrsl­una, hvað hægt væri að gera og hvernig unga fólkið kæmi inn í umræð­una um lofts­lags­mál.

Hún segir að þrátt fyrir að hún lifi og hrær­ist í þessum mála­flokki þá hafi tekið á að lesa nýju skýrsl­una.

„Það tekur alltaf á að sjá þetta svona svart á hvítu og með sífellt meiri vís­inda­legri vissu. Sú staða sem við erum í núna fær mig oft til að hugsa til ann­arra ham­fara eða skelfi­legra atburða af manna­völdum í gegnum sög­una. Það er auð­velt að líta til baka og spyrja sig: Af hverju gerði eng­inn neitt? Var ekki hægt að afstýra þessu á ein­hvern máta?

Munurinn núna er að við sjáum fram á ham­farir sem við erum með gríð­ar­lega mikla vís­inda­lega þekk­ingu á; orsökum þeirra og afleið­ingum og hvernig við eigum að bregð­ast við. Við höfum getu til að bregð­ast við og afstýra þess­ari veg­ferð sem við erum á – það eina sem vantar er vilj­inn.“

Berum einnig ábyrgð á öðrum lífverum

Tinna segir að í raun­inni sé ekki hægt að rétt­læta á neinn hátt að bregð­ast ekki við með full­nægj­andi hætti – bæði fyrir kom­andi kyn­slóðir og fyrir alla sem uppi eru núna. „Ungmenni dags­ins í dag munu upp­lifa sífellt verri afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga út sína ævi. Þetta er handan við hornið. Svo má ekki gleyma að lofts­lags­breyt­ingar hafa áhrif á allar aðrar líf­verur sem deila með okkur plánet­unni, svo ábyrgð okkar liggur einnig gagn­vart þeim.”

Tinna er búin að vera í fjögur ár í stjórn Ungra umhverf­is­sinna en sam­tökin hafa verið starf­andi síðan árið 2013. Ungir umhverf­is­sinnar eru frjáls félaga­sam­tök en til­gangur félags­ins er að vera vett­vangur ungs fólks á Íslandi til að láta gott af sér leiða í umhverf­is­málum.

Af hverju fórstu að velta fyrir þér lofts­lags­málum á sínum tíma?

„Ég byrj­aði eins og mörg að hafa áhyggjur af ástand­inu og gerði það sem er svona hefð­bundið fyrsta skref, að taka eigin lífs­stíl í gegn í þeim til­gangi að vera sem umhverf­is­væn­ust. Ég reyndi líka að hafa áhrif á aðra í kringum mig með því að vekja athygli á mál­efn­inu en eftir ákveð­inn tíma fann ég að ég var kom­inn á ein­hvern enda­punkt og var föst, og fannst ég ekki vera að gera nægi­lega mikið til að breyta ástand­inu. Ein­stak­lings­mið­aðar aðgerðir hafa ein­ungis áhrif upp á vissu marki, og þess vegna er mik­il­vægt að hafa frjáls félaga­sam­tök og aðrar hreyf­ingar þar sem þú getur fundið mátt­inn í fjöld­anum og þrýst á kerf­is­lægar breyt­ingar.“

Hún segir að henni hafi fund­ist hún ekki vera að gera nóg og þess vegna tekið þá ákvörðun að beita sér með mark­vissum hætti fyrir Unga umhverf­is­sinna.

Tinna bendir á að einstaklingsmiðaðar aðgerðir hafa einungis áhrif upp á vissu marki. Meira þurfi til.
Tinna bendir á að ein­stak­lings­mið­aðar aðgerðir hafa ein­ungis áhrif upp á vissu marki. Meira þurfi til.

Varðandi stjórn­völd og aðgerðir þeirra, hvernig finnst þér þau hafa staðið sig und­an­farin ár?

„Við erum búin að sjá miklar úrbætur í lofts­lags­málum núna á þessu kjör­tíma­bili en stað­reyndin er sú að við þurfum að ganga miklu lengra og við þurfum hrað­ari og rót­tæk­ari skref.“

Lofts­lags­málin þurfi að gegn­sýra alla stefnu­mótun stjórn­valda.

Vilja að stjórnvöld lýsi fyrir neyðarástandi í loftslagsmálum

Tinna segir að Ungir umhverf­is­sinnar hafi staðið að verk­efni sem kall­ast Sólin og gengur út á það að koma lofts­lags- og umhverf­is­mál­unum almennt í brenni­dep­il­inn í kom­andi kosn­ingum. „Í byrjun árs gáfum við út kvarða sem verður not­aður til að meta lofts­lags- og umhverf­is­stefnu allra flokka. Við sendum kvarð­ann á flokk­ana og höfum við einnig fundað með þeim flestum – og svo kemur ein­kunn sem við birtum þann 3. sept­em­ber.“

Þannig veiti Ungir umhverf­is­sinnar leið­sögn fyr­ir­fram, haldi sam­tali gang­andi milli ungs fólks og stjórn­mála­fólks og svo komi aðhaldið með þess­ari ein­kunn.

Hvernig kerf­is­breyt­ingum eruð þið að leita eftir?

„Við viljum að stjórn­völd lýsi fyrir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum og grípi til aðgerða í sam­ræmi við það. Kerfið þarf samt að vera í stakk búið til að takast á við þetta stóra verk­efni, en nauð­syn­legt er að efla stjórn­sýslu lofts­lags­mála og tryggja aðhalds­hlut­verk Lofts­lags­ráðs og vís­inda­ráð­gjafar í stefnu­mótun.

Við viljum einnig sjá jarð­efna­elds­neyt­is­laust Ísland mun fyrr en nú er áætlað, end­ur­heimt alls fram­ræsts vot­lendis sem er ekki í notkun sem fyrst, hækkun á kolefn­is­gjaldi og svona mætti áfram telja. Allar aðgerð­irnar má finna í kvarð­anum á heima­síð­unni okkar.”

Tinna segir að Íslend­ingar verði einnig að setja sér metn­að­ar­fyllri mark­mið um sam­drátt í losun og upp­færa aðgerða­á­ætlun í sam­ræmi við það.

Tíminn er að renna út

Hvernig finnst þér stjórn­mála­fólk og flokk­arnir standa sig í þessum mála­flokki?

Hún bendir á að allir flokkar vilji hafa „lofts­lags-front“ og sýna að þeir séu að beita sér fyrir mála­flokknum. „Auðvitað er þetta mál mál­anna núna en svo er mis­mun­andi hversu stór skref fólk er til­búið að taka og hvers konar nálgun það vill.

Við verðum að hafa í huga að ein teg­und af lofts­lagsaf­neitun er að afneita alvar­leika ástands­ins og hvað við þurfum að grípa hratt til aðgerða. Þetta er ekki eitt­hvað sem leys­ist af sjálfu sér heldur þurfum við að taka stór skref núna. Það er ekki nóg að vera umhugað um lofts­lags­málin og ætla að gera eitt­hvað smá hér og þar – heldur þurfum við á rót­tækum aðgerðum að halda. Tíminn er að renna út.“

Loftslagsmálin valda stanslausum kvíða og áhyggjum hjá mörgum ungmennum, segir Tinna.
Lofts­lags­málin valda stans­lausum kvíða og áhyggjum hjá mörgum ung­mennum, segir Tinna.
Ungt fólk hefur krafist róttækari aðgerða í loftslagsmálum í hádeginu á föstudögum í yfir tvö ár.
Ungt fólk hefur kraf­ist rót­tæk­ari aðgerða í lofts­lags­málum í hádeg­inu á föstu­dögum í yfir tvö ár.

Upplifir þú að það sé vilji fyrir þessum stóru skrefum innan stjórn­mál­anna?

„Það mun koma í ljós þegar við sjáum hvað hver flokkur ætlar að leggja til mál­anna fyrir kom­andi kosn­ingar. Hvernig landið liggur í raun og veru.“

Ekki verður um það deilt að unga fólkið hefur sýnt lofts­lags­mál­unum mik­inn áhuga á síð­ast­liðnum árum. Augljósa ástæðan er sú að ungt fólk mun reyna á eigin skinni afleið­ingar breyt­ing­anna – frekar en þeir sem eldri eru. Hver telur þú að ástæðan sé fyrir því að ungt fólk brenni fyrir mál­efn­inu í svo miklum mæli?

„Já, ég held að miklu leyti sé það vegna þessa. Ef við horfum á þessa tak­mörkun á hlýnun við 1,5 gráðu, sem er auð­vitað ekki ákjós­an­legt ástand þótt það sé mark­miðið, þá er 1,5 gráðu hlýnun miklu nær en við héldum. Við sjáum að helm­ings­líkur eru á því að að ná 1,5 gráðu hlýnun á fyrri hluta fjórða ára­tugar þess­arar aldar. Svo ef við horfum aðeins lengra fram í tím­ann þá erum við, ef við grípum ekki til nógu rót­tækra aðgerða sem fyrst, að horfa fram á yfir 2 gráðu hlýnun – jafn­vel upp í 3 gráðu hlýnun fyrir árið 2060. Hvernig fram­tíð er það sem bíður ungs fólks í dag?“ spyr hún.

Hlutverk stjórnmálafólks að lyfta kvíða af herðum unga fólksins

„Þá fyllist man auð­vitað hræðslu, kvíða og jafn­vel reiði vegna ófull­nægj­andi aðgerða um allan heim en okkur sem sam­fé­lagi hefur ekki tek­ist nægi­lega vel að takast á við þetta stóra vanda­mál. Þá finnst mér mik­il­vægt að beina þessum til­finn­ingum í réttan far­veg sem er þá til dæmis akti­vism­inn. Að finna að man er að minnsta kosti að reyna að gera eitt­hvað til að bæta ástandið. En við verðum nátt­úru­lega að gera okkur grein fyrir því að það er hlut­verk stjórn­mála­fólks að lyfta þessum kvíða af herðum unga fólks­ins með því að koma fram með nægi­lega góðar aðgerðir, þar liggur ábyrgðin.“

Ungt fólk hefur haldið svo­kallað lofts­lags­verk­fall á Aust­ur­velli í hádeg­inu á föstu­dögum í yfir tvö ár. Tinna segir að það sé ekki ákjós­an­leg staða að ungt fólk taki sér frí eða skrópi í skóla eða vinnu til að mót­mæla í svona langan tíma. „En okkur líður þannig að við þurfum að gera þetta. Við viljum sýna að okkur er annt um þetta vanda­mál og að þetta sé ekki eitt­hvað sem hefur horfið úr huga ungs fólks þrátt fyrir að það sé margt annað í gangi. Þetta veldur sífelldum kvíða og áhyggjum.“

Upplifið þið að hlustað sé á ykkur?

„Nei, ekki nægi­lega mikið. Það er vilji til sam­tals en þegar kemur að því að mæta kröfum okkar kemur annar tónn í sam­ræð­urnar. Til að mynda hafa stjórn­völd ekki lýst yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum, né komið fram með aðgerðir sem sam­rým­ast því neyð­ar­á­standi sem við erum í. Sama með kröfu okkar um aukin fram­lög til lofts­lags­mála en þau eru ekki full­nægj­andi að okkar mati, þrátt fyrir nýlega hækkun.“

Þurfum að grípa tækifærið núna

Tinna bendir jafn­framt á að stjórn­völd hafi ekki lög­fest mark­mið um sam­drátt í losun fyrir árið 2030 en það er ein af kröfum unga fólks­ins. Þó sé búið að lög­festa mark­mið um kolefn­is­hlut­laust Ísland árið 2040, sem sé vissu­lega fram­för.

Varðandi lofts­lagskvíð­ann, hvað er hægt að gera til að sporna við honum að þínu mati?

„Mis­mun­andi hlutir virka fyrir mis­mun­andi aðila og fer það líka eftir alvar­leika kvíð­ans. Fyrir mig per­sónu­lega, eins og ég nefndi áðan, þá er það lofts­lagsaktí­vism­inn sem hefur hjálpað mér hvað mest – það er hægt að láta í sér heyra á sam­fé­lags­miðlum, í fjöl­miðlum og í gegnum sam­ráðs­gátt stjórn­valda; að skrifa umsagnir um mál sem þér er annt um. Og svo hjálpar mikið að finna sér frjáls félaga­sam­tök, eða til dæmis póli­tíska hreyf­ingu, til að finna sam­stöðu í bar­átt­unni eða bara til að hafa ein­hvern til að deila með þeim til­finn­ingum sem þú ert að upp­lifa í tengslum við lofts­lags­mál.”

Tinna seg­ist binda vonir við að í því neyð­ar­á­standi sem nú geisar muni skap­ast tæki­færi til upp­bygg­ingar og upp­stokk­unar. Þá skipti máli að breyt­ing­arnar eigi sér stað sem allra fyrst og þá sé von að við náum þeim mark­miðum sem þarf til að halda verstu afleið­ingum í skefjum.

„Þetta er mögu­legt en glugg­inn sem við höfum til að gera eitt­hvað í alvör­unni er alltaf að minnka og minnka en hann er ennþá opinn og við þurfum bara að grípa tæki­færið núna.“

Hún hvetur allt ungt fólk sem er umhugað um umhverf­is­mál að skrá sig í félagið og taka þátt í starf­inu á þeirra vegum en hægt er að gera það á vef­síðu sam­tak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár