Mynd: EPA

Neyðarástand eða ekki – Eitthvað þarf að gera

Krafa hefur verið uppi í sam­fé­lag­inu um að stjórn­völd lýsi yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum en þau hafa ekki enn séð ástæðu til þess að gera það. Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra hefur þó ekki úti­lokað það og boðar jafn­framt aðgerðir í lofts­lags­málum.

Þjóðir, bæir og borgir víðs­vegar um heim­inn hafa lýst yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum og hefur þrýst­ings gætt hér á landi að íslensk stjórn­völd geri slíkt hið sama. Þau hafa svarað og ekki talið ástæðu til að lýsa yfir neyð­ar­á­standi og telja að aðgerð­irnar tali sínu máli. Ekki eru allir á sama máli og hafa hinir ýmsu hópar haldið áfram að hvetja stjórn­völd að taka þetta skref­inu lengra.

Þann 2. maí síð­ast­lið­inn sam­þykktu breskir þing­menn að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Tillagan var sam­þykkt af þing­mönnum en ber þó enga skyldu til rík­is­stjórnar til athafna. Tillagan var sam­þykkt án atkvæða­greiðslu. Skotar hafa einnig lýst yfir neyð­ar­á­standi, sem og Írar og borgir og bæir í mörgum löndum, til að mynda í Ástralíu, Belgíu, Kanada, Tékk­landi og Frakk­landi.

En hvað felst í því að lýsa yfir neyð­ar­á­standi og eru boð­aðar aðgerðir jafn­vel nægar? Ekki eru allir sam­mála um svörin við þessum spurn­ingum og kann­aði Kjarninn hvað stjórn­völd ætla að gera og hvað hinir ýmsu hópar í sam­fé­lag­inu, sem láta sig málið varða, hafa um það að segja.

Það sem þarf að horfa til eru aðgerðir

Í svari umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að íslensk stjórn­völd leggi áherslu á aðgerðir í lofts­lags­málum og að þau hafi sett sér mark­mið um árangur í þeim efnum. Þar sé lögð höf­uð­á­hersla á að koma aðgerðum í fram­kvæmd sem fyrst. Þannig náist árangur í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum. Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar sé lögð mikil áhersla á lofts­lags­mál og hafi rík­is­stjórnin sett fram viða­mikla aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum.

„Umhverf­is­ráð­herra fagnar alþjóð­legri sem inn­lendri umræð­unni um neyð­ar­á­stand og lofts­lags­mál og því hvernig hún hefur lyft lofts­lags­mál­unum enn hærra. Það er mik­il­vægt. Hann hefur lýst því yfir í fjöl­miðlum að hann úti­loki ekki að neyð­ar­á­standi verði lýst yfir hér á landi en að það sem fyrst og fremst þurfi að horfa til séu þó aðgerðir,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Segir aðgerðaáætlunina alls ekki ganga nógu langt

Margir vilja þó ekki við þessi svör una. Auður Önnu Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, segir í sam­tali við Kjarnann að sam­tökin ítreki áskorun sína að stjórn­völd lýsi fyrir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Á síð­asta aðal­fundi Land­verndar í lok apríl var skorað á íslensk stjórn­völd að lýsa yfir neyð­ar­á­standi vegna lofts­lags­breyt­inga. Þá var ályktað að það verði að útfæra aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum með tölu­legum og tíma­settum mark­miðum. Hún verði að ná til allra sviða sam­fé­lags­ins í takt við alvar­leika vand­ans.

Í grein­ar­gerð Land­verndar segir að nokkur lönd hafi nú þegar lýst yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum og að Ísland þurfi að gera það sama. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá Íslandi auk­ist hratt og sé mun meiri á hvern íbúa lands­ins en í nágranna­lönd­unum. Jafn­framt er bent á að rík­is­stjórn Íslands hafi sent frá sér aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum síð­ast­liðið haust og að sú áætl­unin sé mik­il­vægt skref í bar­átt­unni. Hún gangi hins vegar alls ekki nógu langt; sé ómagn­bundin, án tíma­settra mark­miða og ein­skorð­ist við of fáa sam­fé­lags­geira.

Yfirborð sjávar mun hækka með hlýnun jarðar og er það aðeins ein af afleiðingum loftslagsbreytinga.
Yfirborð sjávar mun hækka með hlýnun jarðar og er það aðeins ein af afleið­ingum lofts­lags­breyt­inga.

Telur ríkisstjórnina ekki vera að standa sig

„Grípa þarf til mun hrað­ari og víð­tæk­ari sam­dráttar í losun fyrir 2030 ef mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi 2040 eiga að nást. Með því að setja tölu­leg og tíma­sett mark­mið fyrir öll svið sam­fé­lags­ins er fyrst mögu­legt að ná sam­drætti í losun og kolefn­is­hlut­leysi.

Stjórn­völd þurfa að setja skýran ramma og áætlun um hvernig það á að ger­ast,“ segir í grein­ar­gerð Land­verndar.

Auður segir að þau hjá Land­vernd hafi sent áskor­un­ina á sex ráð­herra í rík­is­stjórn­inni og að þau hafi fengið þau svör að erindið væri mót­tekið. Ekki hafi heyrst frekar frá ráðu­neyt­unum.

„Ég tel að lang­flestir geri sér grein fyrir því að rík­is­stjórnin sé ekki að standa sig í þessum málum,“ segir Auður. Hún telur að þrátt fyrir það að lýst sé yfir neyð­ar­á­standi dugi það ekki í sjálfu sér en geri ákveðnu við­horfi hærra undir höfði.

Kolefnishlutlaust Ísland í síðasta lagi árið 2040

En hvaða aðgerðir eru þetta sem stjórn­völd tala um? Í svari umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að rík­is­stjórnin hafi sett sér mark­mið um kolefn­is­hlut­laust Ísland í síð­asta lagi árið 2040, sem sé metn­að­ar­fullt mark­mið og gangi lengra en alþjóð­legar skuld­bind­ingar Íslands geri ráð fyrir.

Lögð verði áhersla á þátt­töku allra geira sam­fé­lags­ins og almenn­ings í að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda því verk­efnið sé af þeirri stærð­argráðu að allir þurfi að taka þátt.

„Sem dæmi um aðgerðir sem þegar hefur verið ráð­ist í má nefna að nýverið sam­þykkti rík­is­stjórnin lofts­lags­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins sem er ætlað að vera fyr­ir­mynd fyrir aðrar rík­is­stofn­anir og fyr­ir­tæki og hafa marg­feld­is­á­hrif út í sam­fé­lagið. Kolefn­is­gjald hefur verið hækkað í áföngum síðan rík­is­stjórnin tók við, vinna stendur sem hæst við breyt­ingar á lands­skipu­lags­stefnu þar sem áhersla er m.a. lögð á lofts­lags­mál í skipu­lagi, tryggt hefur verið með reglu­gerðum að gert sé ráð fyrir hleðslu raf­bíla við allt nýbyggt hús­næði á land­inu og vinna við stofnun Lofts­lags­sjóðs er í fullum gangi,“ segir í svar­inu.

Á næst­unni verða kynntar aðgerðir á grund­velli aðgerða­á­ætl­un­ar­innar sem varða meðal ann­ars orku­skipti í sam­göngum, kolefn­is­bind­ingu og jafn­framt hvað varðar sam­starf stjórn­valda við atvinnu­lífið á þessu sviði.

Bent er á að í Bret­landi hafi umræðan um neyð­ar­á­stand orðið til þess að almenn­ingur þrýstir á stjórn­völd að setja sér metn­að­ar­fyllri mark­mið og þau skoði nú að setja sér mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi árið 2050. Íslensk stjórn­völd ætli sem fyrr segir að ná sama mark­miði tíu árum fyrr og vinni nú sam­kvæmt því. „Grund­vall­ar­at­riðið eru og verða aðgerðir, þær eru það sem öllu máli skiptir,“ segir í svari umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins.

Ungmenni mótmæla aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum 15. mars 2019.
Ungmenni mót­mæla aðgerðum stjórn­valda í lofts­lags­málum 15. mars 2019.

Unga fólkinu stendur ekki á sama

Ungt fólk hefur staðið fyrir lofts­lags­verk­falli á föstu­dögum í fleiri vikur og mán­uði og eru þátt­tak­end­urnir hvergi bangnir og halda ótrauðir áfram. Í svari for­svars­manna verk­falls­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að þau hafi kraf­ist þess frá upp­hafi að rík­is­stjórnin lýsi yfir neyð­ar­á­standi og þar með tekið þá afstöðu að það eigi að gera.

„Umfram það er ábyrgð verk­falls­ins að fá vekja athygli á mál­staðnum og þrýsta á þau sem eru í ráð­andi stöðu þegar kemur að breyt­ingum til að sporna gegn lofts­lags­vánni að grípa til aðgerða og lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum,“ segir í svar­inu.

Táknræn viðurkenning á raunverulegum vanda

Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands hefur sömu­leiðis hvatt stjórn­völd til að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Þá telja þau að í yfir­lýs­ingu neyð­ar­á­stands felist tákn­ræn við­ur­kenn­ing á raun­veru­legum vanda lofts­lagskrís­unnar sem við stöndum nú frammi fyrir.

Stúd­enta­ráð sam­þykkti ein­róma yfir­lýs­ing­una og hvetur rík­is­stjórn, þing­heim, bæj­ar­fé­lög og stofn­anir til að gera slíkt hið sama. „Þegar neyð­ar­á­stand ríkir þurfa aðgerðir að vera svo veiga­miklar og kröft­ugar að þær geti mætt vánni sem steðjar að okkur af fullum krafti.“

Þau telja enn fremur að atvinnu­líf og stjórn­völd þurfi að taka höndum saman af alvöru og ráð­ast í rót­tækar aðgerðir til að ná fram breyt­ingum. Þrátt fyrir end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa á Íslandi sé hlut­falls­leg losun Íslands á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum um það bil tvö­föld miðað við önnur lönd í Evrópu og haldi áfram að aukast. Ísland sé aug­ljós­lega þannig statt að gera þurfi miklu meira til að takast á við vand­ann.

Yfirlýsing Stúdentaráðs HÍ
Yfir­lýs­ing Stúd­enta­ráðs HÍ

Stúd­enta­ráðið bendir á að ráð­stöfun 2,5 pró­sent vergrar lands­fram­leiðslu allra þjóða sé ráð­legg­ing skýrslu IPCC. Þetta megi taka til fyr­ir­myndar og ættu stjórn­völd að gera breyt­ingar á eyrna­merktu fé í aðgerðir gegn lofts­lagsógn­inni.

Prestar hvetja stjórnvöld einnig til að lýsa yfir neyðarástandi

Ekki er það ein­ungis unga fólkið og umhverf­is­vernd­ar­sam­tök sem hafa sýnt vilja til þess að íslenska ríkið lýsi yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum heldur hafa umboðs­menn Drottins tekið undir með þeim. Prestar Þjóð­kirkj­unnar hvöttu stjórn­völd í byrjun maí síð­ast­lið­ins til að lýsa yfir neyð­ar­á­standi. Verk­efn­is­stjóri umhverf­is­mála kirkj­unnar segir brýnt að end­ur­heimta vot­lendi í jörðum kirkj­unnar, efla skóg­rækt og raf­bíla­væða Þjóð­kirkj­una.

Á nýaf­stað­inni presta­stefnu var sam­þykkt viða­mikil ályktun um umhverf­is­mál þar sem stjórn Þjóð­kirkj­unnar er meðal ann­ars hvött til að gera úttekt á jörðum í kirkj­unnar, stunda á þeim skóg­rækt í stórum stíl og end­ur­heimta vot­lendi. Kirkjan er hvött til að kolefn­is­jafna ferðir sínar innan þriggja ára, hætta með akst­ur­s­pen­inga og skipta út bens­ín­bílum fyrir raf­bíla. Þá er tekið undir áskorun Land­verndar um að stjórn­völd eigi að lýsa yfir neyð­ar­á­standi vegna lofts­lags­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár