„Við erum bara börn, framtíð okkar skiptir máli!“

Gríð­ar­legur fjöldi ung­menna mót­mælti á Aust­ur­velli í dag aðgerðum stjórn­valda vegna lofts­lags­breyt­inga en þetta eru fjórðu mót­mælin sem haldin eru – og lang­fjöl­menn­ust. Stemn­ingin var raf­mögnuð þegar hund­ruð barna og ung­linga hróp­uðu: „Aðgerðir: Núna!“

Ungmenni hvaðanæva að úr heim­inum mót­mæltu aðgerðum stjórn­valda í lofts­lags­málum. Íslensk börn og ung­lingar létu sig ekki vanta en mörg hund­ruð mar­ser­uðu frá Hall­gríms­kirkju niður Skóla­vörðu­stíg, Banka­stræti, Aust­ur­stræti og niður á Aust­ur­völl þar sem hóp­ur­inn safn­að­ist saman.

Mikil stemn­ing var meðal ung­menn­anna og voru kröf­urnar skýrar; þau vilja aðgerðir í lofts­lags­málum og þau vilja þær núna. Einnig hróp­uðu þau í takt: „Við erum bara börn, fram­tíð okkar skiptir máli!“

Á Facebook-síðu við­burð­ar­ins kemur fram að um verk­fall sé að ræða og að það sé inn­blásið af hinni sænsku Gretu Thunberg en skóla­verk­fall hennar hefur vakið mikla athygli. Nú þegar hafa tug­þús­undir ung­menna farið að hennar for­dæmi og flykkst út á götur til að mót­mæla aðgerð­ar­leysi stjórn­valda í bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ingar, meðal ann­ars í Belgíu, Bret­landi, Banda­ríkj­unum, Ástralíu, Þýska­landi og Svíþjóð.

Kröfugangan hófst við Hallgrímskirkju
Kröfu­gangan hófst við Hall­gríms­kirkju
Ungmenni mótmæla! Mynd: Bára Huld Beck
Ungmenni mót­mæla! Mynd: Bára Huld Beck
Gengið var niður Bankastrætið.
Gengið var niður Banka­strætið.

„Við viljum sýna stjórn­völdum að almenn­ingur sé með­vit­aður um alvar­leika máls­ins og vilji rót­tækar aðgerðir,“ skrifa þau.

Þau benda á að stjórn­völd hafi sett sér aðgerð­ar­á­ætlun í lofts­lags­málum til árs­ins 2030 sem geri meðal ann­ars ráð fyrir kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2040. „Við viljum styðja við bakið á þeim aðgerðum, en betur má ef duga skal. Núver­andi aðgerða­á­ætlun er ekki í sam­ræmi við mark­mið um að halda hlýnun innan 1,5 gráðu á heims­vísu og við krefj­umst aðgerða sem eru lík­legar til að skila þeim árangri.“

Ljóst sé að stór­auka þarf fjár­fram­lög til lofts­lags­að­gerða. Milli­ríkja­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál (IPCC) reikn­ast til að verja þurfi 2,5 pró­sent af heims­fram­leiðslu til lofts­lags­mála á ári til árs­ins 2035 til að halda hlýnun innan við 1,5 gráður. Núver­andi áætlun er upp á 0,05 pró­sent af þjóð­ar­fram­leiðslu á ári næstu fimm árin.

Mótmælendur
Mót­mæl­endur

Þau krefj­ast þess að Ísland taki af skarið, hlusti á vís­inda­menn, lýsi yfir neyð­ar­á­standi og láti hið minnsta 2,5 pró­sent af þjóð­ar­fram­leiðslu renna beint til lofts­lags­að­gerða. Þar verði atvinnu­lífið einnig að axla ábyrgð og til þess verði ákveðin við­horfs­breyt­ing að eiga sér stað.

„Við viljum afdrátt­ar­lausar aðgerðir. Núna. Fyrir kom­andi kyn­slóðir. Fyrir lofts­lagið!“

Mótmælendur
Mót­mæl­endur

Kjarninn greindi frá því í gær að hin sextán ára Greta Thun­berg hefði verið til­nefnd til Frið­ar­verð­launa Nóbels en hún hefur öðl­ast heims­frægð fyrir bar­áttu sína og aktí­visma gegn lofts­lags­breyt­ing­um.

„Við höfum til­nefnt Gretu Thun­berg vegna þess að ef við gerum ekk­ert til að koma í veg fyrir lofts­lags­breyt­ingar þá verður það til­efni til stríða, átaka og fjölgun flótta­manna,“ sagði norski þing­mað­ur­inn Freddy André Øvstegård. „Greta Thun­berg hefur komið af stað fjölda­hreyf­ingu sem ég lít á sem mikið fram­lag til frið­ar­mála.“

Greta er fædd í Stokk­hólmi þann 3. jan­úar 2003 og er dóttir leik­ar­ans Svante Thun­berg. Í frétta­skýr­ingu RÚV um þessa athygl­is­verðu stelpu segir að afskipti hennar af lofts­lags­málum hafi byrjað fyrir alvöru í maí í fyrra þegar hún var meðal vinn­ings­hafa í rit­gerða­sam­keppni sem Svenska Dag­bla­det efndi til. Upp úr því hafi ýmsir haft sam­band við hana og næstu vikur hafi verið lagt á ráðin um aðgerðir sem skólakrakkar gætu gripið til til að vekja athygli á lofts­lags­mál­um.

Greta Thun­berg
Greta Thun­berg

Hún hafi hins vegar ekki séð fram á að þær aðgerðir myndu gera mikið gagn, þannig að hún ákvað að gera þetta bara ein og sjálf. Það fyrsta sem hún hafi gert var að útbúa stórt spjald á stofu­gólf­inu heima hjá sér með áletr­un­inni Skol­strejk för klima­tet eða Skóla­verk­fall fyrir lofts­lag­ið.

Þann 20. ágúst hafi hún skrópað í skól­anum og setið þess stað ein með spjaldið fyrir utan þing­húsið í Stokk­hólmi, ákveðin í að vera þar á skóla­tíma hvern ein­asta dag fram yfir sænsku þing­kosn­ing­arnar 9. sept­em­ber. Krafa hennar var ein­föld. Að rík­is­stjórn Sví­þjóðar myndi draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í sam­ræmi við Par­ís­ar­sam­komu­lag­ið.

Eftir 9. sept­em­ber hafi Greta farið að mæta í skól­ann fjóra daga í viku og látið nægja að vera í verk­falli á föstu­dög­um. Og smátt og smátt hafi fleiri farið að veita þessu upp­á­tæki eft­ir­tekt, ekki bara í Stokk­hólmi og ekki bara í Sví­þjóð, heldur út um allan heim.

Athygli vakti þegar Greta ferð­að­ist með lest til Katowice í des­em­ber síð­ast­liðnum – þar sem hún ávarp­aði aðild­ar­ríkja­fund­inn COP-24 – og aftur til Davos í jan­úar til að ávarpa árlegan fund Alþjóða­við­skipta­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftslagsbreytingar

Mest lesið undanfarið ár