Fleiri myndu bjarga símanum frekar en kettinum í eldsvoða

Meira en helm­ingur þeirra sem eiga snjall­síma halda í hann á meðan þeir sofa. Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar sem gerð var á snjall­síma­hegðun í sjö löndum. Alls tóku meira en 7.000 manns þátt. Fleiri mundu jafn­framt bjarga sím­anum í elds­voða áður en þeir hæfu leit að heim­il­is­k­ett­inum, eða 54 pró­sent þeirra sem tóku þátt.

Könnunin var gerð á inter­netn­inu meðal íbúa í Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Kína, Spáni, Mexíkó og Indlandi af KRC Research fyrir Motorola-raf­tækja­fram­leið­and­ann sem meðal ann­ars fram­leiðir síma. AFP-frétta­stofan greinir frá rann­sókn­inni.

Meðal þess sem kemur fram í nið­ur­stöð­unum var að 60 pró­sent þeirra sem tóku þátt sögð­ust sofa með snjall­sím­ann í hönd­unum. Hæsta hlut­fall þeirra var í Indlandi þar sem 74 pró­sent fólks sagð­ist sofa með sím­ann og í Kína þar sem 70 pró­sent svör­uðu svona.

Hæsta hlut­fall þeirra sem taka sím­ann sinn með á kló­settið var í Kína og Brasilíu en séu öll löndin tekin með sögð­ust 57 pró­sent hafa sím­ann við hönd­ina er þeir tefla við páfan. Þá sagð­ist einn sjötti baða sig með sím­ann sinn á sér.

Samband fólks við snjall­sím­ann virð­ist einnig vera nán­ara en maður skildi ætla, enda seg­ast 22 pró­sent svar­enda frekar vilja sleppa kyn­lífi yfir helgi í stað þess að hafa ekki aðgang að sím­anum sínum. Þá segja 40 pró­sent snjall­síma­eig­enda sím­anum sínum leynd­ar­mál sem þau gæfu ekki upp gagn­vart bestu vinum sínum.

Snjall­sím­arnir eru hins vegar ekki full­komnir. Meiri­hluti fólks, 74 pró­sent, þykir til dæmis sím­inn pirra sig þegar hann truflar á óheppi­legum augna­blikum. Og þeir sem segj­ast ánægðir með snjall­sím­ann sinn voru aðeins 34 pró­sent svar­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár