Pirraðir ráðherrar: „Þetta gjamm er algjörlega óþolandi“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra sátu fyrir svörum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Allar fyr­ir­spurnir dags­ins snér­ust með einum eða öðrum hætti um laga­setn­ingu á verk­föll, sem Alþingi sam­þykkti um helg­ina. Ekki bar á öðru en að bæði Bjarni og Kristján létu fyr­ir­spyrj­endur og frammíköll úr þingsalnum fara í taug­arnar á sér, eins og sjá má á upp­tökum hér að neðan.

Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, spurði Bjarna um sam­keppni um menntað vinnu­afl á Íslandi. Hann ræddi um fjölda­upp­sagnir á spít­öl­unum, Íslend­ingar ættu í mik­illi sam­keppni um menntað vinnu­afl. Hann spurði svo að lokum hvort það gæti ekki verið að fólk væri óánægt með LÍN, Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóð, hús­næð­is­kerfið, hátt mat­ar­verð og fleira, og ef þessi mál yrðu leyst væri hægt að halda mennt­uðu vinnu­afli á Íslandi.

„Virðu­legi for­seti, hér í þing­sal er mikil ókyrrð og menn þola mis­vel þegar er komið inn í umræð­una með sjón­ar­mið sem er ekki stjórn­ar­and­stöð­unni að skapi. Spurning er hvort stjórn­ar­and­staðan vilji kannski frekar ræða um ein­hver önnur mál, eða kannski fara í fund­ar­stjórn for­seta hér, eða gefa manni tæki­færi til að bregð­ast við fyr­ir­spurn. Ég sé á and­litum hér í þing­sal að það er eng­inn áhugi á svari við spurn­ingum.“

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, spurði Kristján Þór út í lausn deilna í heil­brigð­is­kerf­inu, og sömu­leiðis um upp­sagnir heil­brigð­is­stétta og hvort rík­is­stjórnin hefði ekki getað for­gangs­raðað frekar í þágu heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Kristján Þór svar­aði því til að það hefði verið for­gangs­raðað í þágu heil­brigð­is­kerf­is­ins síð­ustu tvö ár. Jón Þór kall­aði fram í fyrir Krist­jáni, eins og heyra má á upp­tök­unni hér að ofan, og það end­aði með því að Kristján sagði: „ef hátt­virtur þing­maður vill svar skal hann gefa ræðu­manni færi á að svara. Þetta gjamm er algjör­lega óþol­andi að verða.“

Bæði Katrín Jak­obs­dóttir og Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir spurðu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár