Rúmlega tvö þúsund manns eiga meiri auð en 60 prósent íbúa jarðar

Í árlegri skýrslu Oxfam-sam­tak­anna kemur fram að 22 rík­ustu karlar í heimi eigi meira af auði en allar konur sem búa í Afríku sam­an­lagt. Ef tveir rík­ustu karlar heims myndu stafla öllum fé sínu upp í bunka, og setj­ast á hann, þá sætu þeir í geimnum.

Bilið á milli ríkra og fátækra heldur áfram að aukast samkvæmt Oxfam-samtökunum.
Bilið á milli ríkra og fátækra heldur áfram að aukast sam­kvæmt Oxfam-sam­tök­unum. Mynd: Copyright: <a href='https://www.123rf.com/profile_carlosyudica'>carlosyudica / 123RF Stock Photo</a>

Ríkasta eitt pró­sent heims­ins á meira en 6,9 millj­arðar manns, eða tæp­lega 85 pró­sent íbúa jarðar. Alls eiga 2.153 ein­stak­lingar yfir millj­arð dali, rúm­lega 123 millj­arða króna. Sam­an­lagt átti þessi hópur, í lok árs 2019, meiri auð­æfi en 4,6 millj­arður manns, alls um 60 pró­sent allra íbúa jarðar, sem áttu minnst milli hand­anna í fyrra. Þá eiga 22 rík­ustu karlar heims meira fé en allar konur sem búa í Afríku. Ef skattur á rík­asta eitt pró­sentið yrði hækk­aður um 0,5 pró­sentu­stig í tíu ár þá myndi vera hægt að nota það fjár­magn sem myndi skila sér í sam­eig­in­lega sjóði til að búa til 117 milljón störf í mennta­kerf­inu, heil­brigð­is­kerf­inu og í umönn­un­ar­geirum.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Oxfam-sam­tak­anna um mis­skipt­ingu auðs, sem birt var í dag.

Í skýrsl­unni segir: „Ef allir myndu sitja á auð sínum þannig að honum yrði raðað upp í bunka af 100 dala seðlum, þá myndi þorri mann­kyns sitja á gólf­inu. Ein­stak­lingur í mið­stétt í ríku landi myndi sitja í svip­aðri hæð og ef hann sæti á stól. Tveir rík­ustu menn í heimi myndu sitja í him­in­geimnum.“

Arðgreiðslur hækka mun hraðar en laun

Í skýrsl­unni kemur fram að laun hafi vaxið um þrjú pró­sent innan G7-land­anna (Bret­land, Kan­ada, Frakk­land, Þýska­land, Ítal­ía, Jap­an og Banda­ríkin) á milli 2011 og 2017 en á sama tíma hafa arð­greiðslur til hlut­hafa í skráðum félögum innan sömu landa vaxið um 31 pró­sent. Þá eiga karlar 50 pró­sent meiri auð en konur og er það meðal ann­ars tengt við það í skýrslu Oxfam að konur séu ein­ungis 18 pró­sent af ráð­herrum í rík­is­stjórnum heims­ins og 24 pró­sent af þing­mönnum. Þar af leið­andi komi konur mun síður að ákvörð­un­ar­töku sem hafi áhrif á hvernig kerfi heims­ins þró­ast og virka.

[adspot]Pen­inga­legt virði þeirrar vinnu sem konur vinni launa­laust í heim­inum í dag er, sam­kvæmt skýrsl­unni, að minnsta kosti 10,8 trilljónir dala, eða um 1.328 þús­und millj­arðar króna. Oxfam segir að það sé þrisvar sinnum virði allra tækni­fyr­ir­tækja í heim­inum, en lík­lega fer það eftir því hvernig það virði er metið. Ef horft er á mark­aðsvirði þá er ljóst að fimm stærstu tækni­fyr­ir­tæki heims eru metin á um helm­ing þeirra upp­hæðar.

Hinir ríkustu koma sér undan því að greiða skatt

Oxfam birtir líka tölur, og nið­ur­stöður úr rann­sóknum, sem eiga að sýna umfang skatta­snið­göngu hinna rík­ustu í heim­inum, sem geri þeim kleift að ná árlega um 7,4 pró­sent ávöxtun á auð sinn að með­al­tali. Í skýrsl­unni er vitnað í rann­sókn sem fram­kvæmd var af Max Lawson og birt var í fyrra (Public Good or Private Wealth? Uni­ver­sal health, education and other public services reduce the gap between rich and poor, and between women and men. Fairer taxation of the wealthiest can help pay for them) sem sýni að rík­asta lag heims­insisé að kom­ast hjá því að greiða allt að 30 pró­sent af þeim skatti sem það ætti að vera að greiða, og með því að veikja mögu­leika stjórn­valda út um allan heim til að eyða meiru fé í þá geira sem lík­leg­astir eru til að draga úr mis­skipt­ingu: heil­brigðis- og mennta­geir­unum.

Þar kemur einnig fram að ein­ungis fjögur pró­sent af öllum skatti í heim­inum komi til vegna skatta sem lagðir eru á auð og hinir rík­ustu séu líka þeir sem hagn­ist mest á því að fyr­ir­tækja­skattar hafi víða verið lækk­aðir í sögu­lega lág hlut­föll, enda séu þeir að uppi­stöðu stærstu hlut­hafar þeirra fyr­ir­tækja sem hagn­ist mest á þeirri þróun.

„Millj­arða­mær­ingar geta einnig keypt sér refsi­leysi, haft áhrif á stjórn­mála­menn eða fjöl­miðla og jafn­vel haft áhrif á nið­ur­stöður kosn­inga. Notkun fjár­muna til að hafa áhrif á kosn­ingar og opin­bera stefnu­mótun er vax­andi vanda­mál út um heim allan,“ segir í skýrsl­unni.

Sex tillögur til að breyta stöðunni

Skýrsla Oxfam er að venju birt á sama degi og við­skipta­ráð­stefnan í Davos í Sviss, þar sem margt áhrifa­mesta fólk heims­ins á sviði stjórn­mála og við­skipta kemur saman til skrafs og ráða­gerða, er sett.

Í henni eru lagðar fram sex lykil til­lögur um það hvernig megi vinna gegn vax­andi ójöfn­uði. Sú fyrsta er að auka fjár­fest­ingu í umönn­un­ar­kerfum til að taka á því ójafn­vægi sem er milli kynj­anna þegar kemur að ummönn­un­ar­störfum, sér­stak­lega ólaun­uðum, í heimunum. Í öðru lagi að vinna að því að binda endi á óhof­lega auð­söfnun til að geta bundið endi á öfga­fulla fátækt. Í þriðja lagi að setja lög­gjöf alls staðar sem verndar rétt­indi allra í umönn­un­ar­störfum og tryggir þeim laun sem hægt er að lifa af.

Í fjórða lagi að tryggja að þeir sem vinna í umönn­un­ar­störfum hafi áhrif á stefnu­mótun. Í fimmta lagi að skora skað­leg norm þegar kemur að stöðu kynj­anna á hólm. Í sjötta lagi að virða mik­il­vægi umönn­unar fyrir við­skipti í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár