Mynd: 123rf

Ríkustu 238 fjölskyldur landsins eiga 260 milljarða króna

Alls eiga rík­ustu fimm pró­sent lands­manna 40,8 pró­sent alls eigin fjár sem til er í land­inu. Eigið fé rík­asta 0,1 pró­sent þeirra hefur auk­ist um 98 millj­arða króna frá árinu 2010.

Ríkasta 0,1 pró­sent fram­telj­enda áttu 260,2 millj­arða króna í lok árs 2018 í eigin fé. Um er að ræða alls 238 fjöl­skyldur. Alls jókst eigið fé þeirra – eignir þegar búið er að draga frá allar skuldir – um 23,6 millj­arða króna í fyrra. Frá árinu 2010 hefur eigið fé rík­asta 0,1 pró­sent lands­manna auk­ist um 98 millj­arða króna, eða 68 pró­sent.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um skuldir og eignir lands­manna sem birt var síð­degis í gær á vef Alþingis.

Þar segir enn fremur að fimm pró­sent rík­ustu Íslend­ing­arnir, alls 11.900 fjöl­skyldur, hafi átt eigið fé upp á 1.864 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Það er 218 millj­örðum krónum meira en hóp­ur­inn átti í árs­lok 2017 og rúm­lega tvö­föld sú upp­hæð sem hann átti í árs­lok 2010. Frá því ári hefur millj­örð­unum í eigu þessa hóps fjölgað um 970. Þessi hópur átti 40,8 pró­sent af öllu eigið fé lands­manna í lok síð­asta árs, sem þýðir að hin 95 pró­sent fjöl­skyldna í land­inu áttu 59,2 pró­sent þess.

Ríkasta eitt pró­sent lands­manna, alls 2.380 fjöl­skyldur, áttu alls 802,1 millj­arð króna í lok síð­asta árs, tæp­lega 84 millj­örðum krónum meira en árið áður. Auður þessa hóps hefur auk­ist um 353 millj­arða króna frá árs­lokum 2010, eða um 78 pró­sent.

Hlut­falls­lega lækkar hlutur allra ofan­greindra hópa lít­il­lega af heild­ar­eigin fé þjóð­ar­innar milli ára.

3.179 nýir milljarðar frá 2010

Kjarninn greindi frá því í októ­ber að eigið fé Íslend­inga hækk­aði um 641 millj­arða króna í fyrra. Það er næst mesta hækkun sem átt hefur stað í vexti á eigin fé frá því að Hagstofa Íslands hóf að halda utan um þær tölur. Metið var sett á árinu 2017 þegar eigið fé Íslend­inga jókst um 760 millj­arða króna.

Upp­gangur síð­ustu ára hefur skilað því að eigið fé lands­manna, eignir þeirra þegar búið er að draga skuldir frá, hefur farið úr því að vera 1.565 millj­arðar króna í lok árs 2010 í að vera 4.744 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Hann hefur aldrei verið meiri.

Til hafa orðið 3.179 millj­arðar króna í nýju eigin fé í íslensku sam­fé­lagi á þessum örfáu árum. Það hefur rúm­lega þre­fald­ast.

Af þessum millj­örðum króna sem orðið hafa til frá árinu 2010 hafa 1.379 millj­arðar króna farið til efstu tíu pró­sent lands­manna, sem telur 22.213 fjöl­skyldur. Það þýðir að 43 pró­sent alls nýs auðs hefur endað hjá þessum hópi.

Eigið fé vanmetið hjá ríkum

Eigið fé rík­ustu hópa lands­manna er stór­lega van­metið. Öll verð­bréfa­eign (hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum, eign­ar­skatts­frjáls verð­bréf, stofn­sjóðs­eign og önnur verð­bréf og kröfur) er nefni­lega metin á nafn­virði, en ekki mark­aðsvirði.

Það þýðir að ef verð­bréf í t.d. hluta­fé­lögum hafi hækkað í verði frá því að þau voru keypt þá kemur slíkt ekki fram í þessum tölum. Úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands hefur til að mynda hækkað um vel yfir 20 pró­sent frá því snemma í jan­úar 2019 og um 40 pró­sent frá byrjun árs 2015. Það er enda eðli verð­bréfa að þau eiga að hækka í verði. Ef það væru ekki vænt­ingar um slíkt þá myndi eng­inn kaupa þau.

Þessi hópur er líka lík­leg­astur allra til að eiga eignir utan Íslands sem koma ekki fram í tölum Hag­stof­unnar, en áætlað hefur verið að íslenskir aðilar eigi hund­ruð millj­arða króna í aflands­fé­lögum sem ekki sé gert grein fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár