Skil á ársreikningum hafa tekið stakkaskiptum eftir að viðurlög voru hert

Eftir að við­ur­lög við því að skila ekki árs­reikn­ingum á réttum tíma voru hert skila mun fleiri fyr­ir­tæki þeim á réttum tíma. Enn þarf almenn­ingur, fjöl­miðlar og aðrir áhuga­samir þó að greiða fyrir aðgang að árs­reikn­ingum.

Ársreikningaskrá heyrir undir embætti ríkisskattstjóra.
Árs­reikn­inga­skrá heyrir undir emb­ætti rík­is­skatt­stjóra. Mynd: Rsk.is

Skil íslenskra fyr­ir­tækja á árs­reikn­ingum sínum til fyr­ir­tækja­skráar hafa batnað mjög á und­an­förnum árum sam­hliða því að við­ur­lög við því að skila þeim ekki á tíma hafa verið hert veru­lega. Nú liggur fyrir Alþingi frum­varp sem mun veita árs­reikn­inga­skrá heim­ild til að fella niður álagðar stjórn­valds­sektir vegna van­skila á árs­reikn­ingi á félög sem hefur verið slitið. Þannig verða félög sem eru ekki í neinni eig­in­legri starf­semi hreinsuð út af skrá án þess að óupp­gerð stjórn­valds­sektin vegna van­skila á árs­reikn­ingi standi í vegi fyrir slitum.

Enn er málum þó þannig háttað á Íslandi að almenn­ingur, fjöl­miðlar og aðrir áhuga­samir þurfa að greiða fyrir aðgang að árs­reikn­ingum fyr­ir­tækja sem dregur úr getu þeirra til að veita aðhald.

Skil voru óásættanleg

Árið 2007 voru 30.308 félög skila­skyld í land­inu og af þeim skil­uðu 15,4 pró­sent árs­reikn­ingum fyrir 1. sept­em­ber, sem er síð­asti skila­dagur ár hvert sam­kvæmt lögum. Alls skil­uðu undir 60 pró­sent félaga í land­inu árs­reikn­ingum áður en það ár var liðið sem þýðir að fjögur af hverjum tíu félögum ákváðu frekar að greiða sektir en að skila inn árs­reikn­ingum sínum. Sum skil­uðu þeim bara alls ekki. Ár eftir ár.

Árið 2015 var staðan orðin umtals­vert betri, en samt ekki nógu góð. Þriðj­ungur þeirra 35.895 félaga sem áttu að skila inn árs­reikn­ingi skil­uðu honum inn fyrir lok ágúst­mán­aðar líkt og lög gera ráð fyrir. Heilt yfir skil­uðu þó um 85 pró­sent félaga reikn­ingum inn til rík­is­skatt­stjóra áður en árið 2015 var á enda.

Árið 2016 voru við­ur­lög við því að skila árs­reikn­ingum seint eða alls ekki hert umtals­vert með laga­breyt­ingu. Til­gang­ur­inn var að bæta skil en einnig að sporna gegn kenni­tölu­flakki og auka gagn­sæi.

[adspot]Skil bötn­uðu veru­lega eftir að lögin voru sam­þykkt. Á árinu 2016 skil­uðu tæp­lega helm­ingur þeirra 38.130 félaga sem voru skila­skyld árs­reikn­ingi sínum fyrir lög­bund­inn tíma­frest og 87 pró­sent þeirra skil­uðu þeim áður en skila­ár­inu var lokið. Á árinu 2017 bötn­uðu þessar tölur enn frekar, þegar 61 pró­sent félaga skil­aði inn árs­reikn­ingi fyrir 1. sept­em­ber og 88 pró­sent áður en því ári var lokið.

Við­ur­lögin, stjórn­valds­sekt upp á 600 þús­und krónur auk þess sem sem árs­reikn­inga­skrá getur kraf­ist skipta á búi þeirra sem ekki fara að lögum um rétt skil, hafa verið notuð. Vegna reikn­ings­árs­ins 2016 sektaði árs­reikn­inga­skrá 4.557 félög. Þar af hafa 1.631 félög ekki staðið skil á árs­reikn­ingi en eru þó enn skráð í fyr­ir­tækja­skrá, og falla því undir það ákvæði laga sem heim­ilar slit þeirra.

Nú liggur fyrir Alþingi frum­varp sem mun veita árs­reikn­inga­skrá heim­ild til að fella niður álagðar stjórn­valds­sektir vegna van­skila á árs­reikn­ingi á félög sem hefur verið slitið. Þannig verða félög sem eru ekki í neinni eig­in­legri starf­semi hreinsuð út af skrá án þess að óupp­gerð stjórn­valds­sektin vegna van­skila á árs­reikn­ingi standi í vegi fyrir slitum.

Gjaldtaka enn hindrun

Það þarf þó að gera fleira til að koma málum sem snúa að árs­reikn­ingum í lag. Á síð­ustu þremur þingum hefur verið lagt fram frum­varp um breyt­ingu á lögum um árs­reikn­ingi og lögum um hluta­fé­lög sem eiga að fela í sér að aðgangur að árs­reikn­inga­skrá og hluta­fé­laga­skrá verði gjald­frjáls.

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins hefur ætið verið Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Með­flutn­ings­menn hans hafa verið aðrir þing­menn Pírata, Andrés Ingi Jónsson, nú utan flokka, og Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar.

Til­gangur frum­varps­ins er að bæta lög­gjöf sem sam­þykkt var árið 2017 sem varð­aði auk­inn aðgang að fyr­ir­tækja­skrá. Í því fólst að almenn­ingur fékk aðgang að fyr­ir­tækja­skrá án gjald­töku. Sú laga­breyt­ing fól þó ekki í sér að aðgengi að gögnum þeirrar skrár, sem er að finna í hluta­fé­laga- og árs­reikn­inga­skrá, yrði án gjald­töku. Því skipti laga­breyt­ingin litlu máli fyrir þá sem þurfa að sækja slíkar upp­lýs­ingar starfs síns vegna.

Breyt­ing­ar­til­lög­urnar hafa hingað til ekki hlotið afgreiðslu. Litlar sem engar líkur eru á því að það muni nást í gegn áður en yfir­stand­andi þingi verður slitið. 

Hefur aðallega áhrif á tvo aðila

Það að veita almenn­ingi, fjöl­miðlum og öðrum áhuga­sömum aðilum gjald­frjálsan aðgang að árs­reikn­inga­skrá og eftir atvikum öðrum gögnum sem skilað er inn til fyr­ir­tækja­skráar um starf­semi fyr­ir­tækja, myndi aðal­lega hafa rekstr­ar­leg áhrif á tvo aðila: fyr­ir­tækja­skrá rík­is­skatt­stjóra og einka­fyr­ir­tækið Creditinfo.

[adspot]Þegar frum­varpið var lagt fram á vor­þingi árs­ins 2018 skil­uðu þessir hags­muna­að­ilar umsögnum um það. Í umsögn rík­is­skatt­stjóra kom fram að tekjur emb­ætt­is­ins af hluta­fé­laga­skrá og árs­reikn­inga­skrá hefðu verið 133,7 millj­ónir króna á árinu 2017. Þar sagði enn fremur að gera megi ráð fyrir því að margir þeirra aðila sem fram til þessa hafi greitt fyrir upp­lýs­ingar úr skránum mun sækja þær upp­lýs­ingar gjald­frjálst verði frum­varpið að lög­um. „Sam­kvæmt fram­an­greindu er því ljóst að fót­unum er veru­lega kippt undan fjár­mögnun á rekstri fyr­ir­tækja­skrár verði inn­heimta þjón­ustu­gjalda að öllu leyti felld nið­ur. Mun rík­is­skatt­stjóri því verða af miklum rekstr­ar­tekjum sem bæta þarf emb­ætt­inu með aukn­ingu á beinu rekstr­ar­fram­lagi. Þeirri breyt­ingu á rekstr­ar­grund­velli fyr­ir­tækja­skrár rík­is­skatt­stjóra, sem fyr­ir­huguð er, má líkja við það að ákveð­inn yrði ókeypis aðgangur að söfnum lands­ins.“

Rík­is­skatt­stjóri sagði að ef fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar fram að ganga þá væri æski­legt að veitt yrði heim­ild til að setja reglu­gerð um afmörkun þeirra upp­lýs­inga sem veita ætti gjald­frjálst aðgengi að og fram­kvæmd hins raf­ræna aðgeng­is. „Hvort heldur átt er við ein­stakar upp­flett­ingar almenn­ings eða aðgang fyr­ir­tækja að gagna­grunnum eða afritun ein­stakra skráa vegna úrvinnslu upp­lýs­inga.“

Taldi ekki óeðlilegt að greitt væri fyrir

Í umsögn rík­is­skatt­stjóra kom fram að 106 millj­ónir króna af þeim 133,7 millj­ónum króna sem stofn­unin hafði í tekjur af því að selja upp­lýs­ingar úr hluta­fé­laga- og árs­reikn­inga­skrá á árinu 2017 hefði komið frá miðl­ur­um. Þ.e. fyr­ir­tækjum sem kaupa upp­lýs­ing­arnar og end­ur­selja þær til við­skipta­vina.

Stærsta fyr­ir­tækið á þeim mark­aði er Creditinfo. Það skil­aði einnig inn umsögn um frum­varp­ið. Þar sagði m.a. að upp­lýs­ing­arnar væru fyrst og fremst nýttar af atvinnu­líf­inu. „Kaup­endur upp­lýs­ing­anna eru að lang­mestu leyti fjár­mála­fyr­ir­tæki, lög­menn, end­ur­skoð­endur og aðrir þátt­tak­endur í við­skipta­líf­inu. Fram­an­greindir aðilar hafa hags­muni af því að afla upp­lýs­ing­anna í tengslum við ákvarð­ana­tökur og ekki óeðli­legt að þeir sem nota upp­lýs­ing­arnar greiði fyrir slíkar upp­lýs­ingar með gjöldum sem lögð eru á skv. heim­ild í lög­um, í stað þess að almannafé verði nýtt til að standa straum af kostn­aði við rekstur skránna.“

Ekki væri séð að það tak­mark­aði aðgang almenn­ings að upp­lýs­ingum úr fram­an­greindum skrám að greitt væri sann­gjarnt gjald fyrir öflun þeirra að mati Creditinfo, enda væri vænt­an­lega í flestum til­fellum um að ræða öflun á ein­staka upp­lýs­ingum fremur en að þörf sé á öflun viða­mik­illa skráa. „Það ætti þó helst við í til­felli fræði­manna en skoða mætti afhend­ingu gagna til slíkra aðila sér­stak­lega, sem þá til­greindu í hvaða til­gangi þörf væri á viða­miklum skrám, hvernig þær yrðu nýttar og hvernig með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga yrði tryggð. Magn­af­sláttur í gjald­skrá væri hugs­an­legur í slíkum til­fell­u­m.“

Auk þeirra hópa sem Creditinfo nefndi í sinni umsögn eru þó ýmsir aðrir sem sækja slíkar upp­lýs­ingar. Meðal ann­ars fjöl­miðl­ar, en í upp­lýs­ingum hluta­fé­laga- og árs­reikn­inga­skrár er að finna allar helstu upp­lýs­ingar um rekstur og eign­ar­hald fyr­ir­tækja lands­ins auk upp­lýs­inga um allar breyt­ingar sem verða t.d. í fjár­mögnun þeirra og stjórn­ar­skip­an.

[adspot]Ljóst má vera að gjald­taka vegna aðgangs að þessum gögnum um fyr­ir­tæki lands­ins er því hindrun fyrir fjöl­miðla, fræði­menn, önnur fyr­ir­tæki og almenn­ing allan.

Hulu svipt af raunverulegum eigendum

Auk þeirra breyt­inga sem ráð­ist hefur verið í á lagaum­hverfi vegna árs­reikn­inga­skila tók gildi mjög ný lög í sumar sem setja þær kvaðir á alla lög­að­ila að upp­lýsa hverjir raun­veru­legir eig­endur (e. beneficial owner) þeirra eru. Nú þegar þurfa allir sem stofna ný félög að gera grein fyrir því og stefnt er að því að allir sem skráðir eru hjá fyr­ir­tækja­skrá verði að gera grein fyrir því hver raun­veru­legur eig­andi þeirra er fyrir 1. mars 2020. Laga­breyt­ingin er liður í auknum vörnum Íslands gegn pen­inga­þvætti, en Ísland var sem kunn­ugt er sett á svo­kall­aðan gráan lista alþjóð­legu sam­tak­ana FATF vegna ónógra slíkra varna fyrr á þessu ári.

Þessi breyt­ing, sem er risa­stórt gagn­sæ­is­skref, teng­ist eðli­lega þeim breyt­ingum sem þrýst hefur verið á um gjald­frjálst aðgengi að árs­reikn­inga- og fyr­ir­tækja­skrá. Fjöl­miðlar, og eftir atvikum aðrir sem þurfa að nálg­ast upp­lýs­ingar um hverjir eigi í raun fyr­ir­tæki sem hafa getað falið eign­ar­hald sitt fram til þessa, munu leika lyk­il­hlut­verk í að veita það aðhald sem þarf til þess að allar fram­an­greindar laga­breyt­ingar þjóni til­gangi sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár