Ákveðið að draga tillögu um Hagavatnsvirkjun til baka - „Þetta er orðinn farsi“

Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra hefur gert sam­komu­lag við meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar um að Haga­vatns­virkjun verði ekki sett í nýt­ing­ar­flokk í ramma­á­ætlun, eins og breyt­ing­ar­til­laga nefnd­ar­innar sagði til um og hefur mjög verið deilt um und­an­farna daga. Meiri­hluti nefnd­ar­innar hafði lagt til að fjórum virkj­unum yrði bætt við til­lögu umhverf­is­ráð­herra um að setja Hvamms­virkjun í nýt­ing­ar­flokk. Þar af var Haga­vatns­virkjun, sem verk­efn­is­stjórn um ramma­á­ætlun hefur ekki lokið sinni umfjöllun um.

Það var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sem sagði þing­heimi frá þessum breyt­ingum í svari við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn frá Guðmundi Stein­gríms­syni, þing­manni Bjartrar fram­tíðar, um ramma­á­ætlun. Áður en að fyr­ir­spurn Guð­mundar kom hafði málið verið rætt undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta í tæpa klukku­stund, og und­an­farna tvo þingdaga sömu­leiðis.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar lýstu í morgun yfir mik­illi óánægju með það að breyt­ing­ar­til­laga atvinnu­vega­nefndar um ramma­á­ætlun væri á dag­skrá þriðja dag­inn í röð. Það væri mikið ósætti með málið og tíma­eyðsla að halda áfram að tala um það.

Það kom því stjórn­ar­and­stöð­unni á óvart að for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti um þetta sam­komu­lag milli umhverf­is­ráð­herra og meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar í óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn. „Það er sem sagt búið að gera sam­komu­lag um að breyta breyt­ing­ar­til­lög­unni sem við áttum að ræða hér í dag. Hvenær átti að segja okkur þetta? Hvar eru þessar ákvarð­anir teknar? [...] Þetta er orð­inn farsi,“ sagði Guð­mundur Stein­gríms­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár